Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1944, Page 101
ins hefur þrátt fyrir það verið margvísleg og hin
mikilvægasta fyrir sjávarútveginn. Hannes Hafliða-
son lagði grundvöllinn að þessu starfi, en í stjórnar-
tíð Kristjáns Bergssonar varð starfsemi þess maig-
þættari en áður og hneigðist meira í áttina til hag-
rænna nota fyrir útgerðina. Hér verður ekki unnt
að minnast á annað en höfuðviðfangsefni félagsins.
A fyrri styrjaldarárunum hafði félagið allmikil
afskipti af oliusölunni í landinu, og varð það út-
veginum tvímælalaust til mikils liagnaðar. Þá hafði
það einnig á þessum árum erindreka erlendis, sem
átti að fylgjast með þeim breytingum, er kynni að
verða á framleiðslu sjávarafurða hjá öðrum þjóð-
uin og jafnframt að hafa auga með sölumöguleikum
íslenzkra sjávarafurða. Áhrifa Fiskifélagsins hefur
gætt mjög í sambandi við löggjöf um fiskveiðar,
atvinnu við siglingar, fjölbreyttari og betri hagnýt-
ingu afurðanna, tryggingarmál útvegsins o. s. frv.
enda hefur Fiskifélagið, eða réttara sagt stjórn þess,
verið eins konar ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í slík-
um málum. Árið 1925 voru samþykkt lög um söfn-
un aflaskýrslna, og var félaginu falið það starf, en
(99)
Ilannes Hafliðason.
Jón Bergsveinsson.