Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1944, Page 123
(Framh. frá 2. kápusiðu.)
fáir af hinum mörgu kaupendum ritanna nú geta átt þess
kost að eignast svo um muni af þeim. MeS því aS kaupa
sem mest af gömlum árgöngum, auka þeir verSmæti þess
safns af ritunum, sem þeir eiga eSa eignast, svo aS nemur
margfait meira fé en gömlu árgangarnir kosta nú.
Það borgar sig því margfaldlega að verja nokkrum
tugum króna til þess að eignast sem mest af gömlum
árgöngum Almanaksins og Andvara. Sé keypt í einu
það, sem til er af ritum þessum, hvoru fyrir sig, frá
upphafi og fram til 1939 — eða þótt skemur sé, ef um
félagsmenn er að ræða, sem eiga eldri árganga, — þá
kostar árgangurinn aðeins eina krónu.
Ný félagsrit.
Um Ný félagsrit gegnir líku máli og um Andvara, en
hann má skoða beint áframhald þeirra. Enn er til nolikuS
af þeim, þótt þar séu líka óbætanleg skörð. Einstakir ár-
gangar af þessu fræga tímariti Jóns Sigurðssonar, er
liefur aS geyma margar beztu ritgerðir hans, kosta 'aSeins
eina krónu.
Ævisaga Jóns Sigurðssonar
eftir dr, Pál Eggert Ólason. I.—V. bd.
Þetta stórmerka ritverk gengur nú óðum til þurSar.
Þykir ekki ástæSa til, eins og verðlagi háttar nú, aS
selja það viS lækkuSu verSi. Verður þaS selt eftirleiSis
viS upphaflegu verði, 35 kr. öll 5 bindin, meSan upp-
lagiS endist.
Bókasafn þjóðvinafélagsins I.—IX.
Aðeins fáein cintök eru enn til af safni þessu. Kost-
ar það aðeins 25 kr., ef öll bindin eru keypt í einu.
Um önnur rit félagsins, einstakar bækur og hefti og
verð þeirra, skal vísað I bókaskrána í Almanaki 1941.