Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1950, Page 70

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1950, Page 70
! / var bjargað. Sama dag strandaði brezki togarinn „Sargon“ við Hafnarmúla í Patreksfirði. Fórust 11 skipverjar, en 6 var bjargað af mönnum úr Rauða- sandshreppi, og voru þar ýmsir hinir sömu og við björgun áhafnarinnar af togaranum „Dhoon“ i des- ember 1947. Þótti þessi björgun einnig mikið afrek. — Alvarleg flugslys voru tvö á árinu. 7. marz rakst farþegaflugvél á leið frá Vestmannaeyjum til Rvikur á Skálafell á Hellisheiði. Fórust þar 4 menn. 27. marz rakst æfingaflugvél á hús i Rvík, og fórust tveir menn, sem i vélinni voru. — 12. desember féll snjóflóð á bæinn Goðdal í Bjarnarfirði syðra í Strandasýslu. Fórust þar 6 manns, en einum manni var bjargað. Var það húsbóndinn, Jóhann Krist- mundsson, og hafði hann þá verið 4 sólarhringa í snjóflóðinu. Stjórnarfar. Stjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar sat að völdum allt árið. Fjölmörg lög voru afgreidd frá Alþingi, m. a. ýmis lög um dýrtíðarráðstafanir, um þátttöku íslands í fjárhagslegri endurreisn Vestur-Evrópuríkjanna, um aðstoð við bátaútveginn, um hvalveiðar o. m. fl. Stjórnin lagði í október fram fjögurra ára áætlun um eflingu atvinnulífsins. Ríkið bauð út tvö happdrættislán innanlands, og var hvort að upphæð 15 millj. króna. Útvegur. Árið var yfirleitt fremur lélegt aflaár. Heildaraflinn varð um 409 000 tonn (árið áður um 431 000). ísfisksveiði varð rúm 154 000 tonn (árið áður um 75 000). Hraðfrystur fiskur var rúm 76 000 tonn (árið áður 71 000), saltfiskur 28 000 tonn (árið áður um 75 000), niðursoðinn fiskur rúm 400 tonn (árið áður 300). Fiskur seldur til neyzlu innan- lands var um 2900 tonn (árið áður 2500). Þorsk- afli var lítill á vetrarvertiðinni, því að gæftir voru slæmar, og auk þess var þátttaka í þorskveiðunum mun minni en ella vegna síldveiðanna í Hvalfirði. Togararnir fóru 322 isfiskssöluferðir til Bretlands, (68)
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.