Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Blaðsíða 5
SKÝRINGAR VIÐ ALMANAKIÐ
Fánadagur J) Tunglið h Satúrnus
• Nýtt tungl 2 Merkúríus w Úranus
€ Fyrsta kvartil $ Venus V Neptúnus
O Fullt tungl eJ Mars E Plútó
O Síðasta kvartil 2J. Júpíter s Stjörnuhröp
í töflum um sólargang telst dögun þegar sólmiðjan á uppleið er 18°
undir sjónbaug (láréttum sjóndeildarhring) og dagsetur þegar sól er
jafnlangt undir sjónbaug á niðurleið. Er þá himinn aldimmur yfir at-
hugunarstað. Birting og myrkur reiknast þegar sólmiðjan er 6° undir
sjónbaug. Sólarupprás og sólarlag telst þegar efri rönd sólar sýnist
vera við sjónbaug og er þá reiknað með ljósbroti í andrúmsloftinu sem
nemur 0,6°. Hádegi er þegar sólmiðjan er í hásuðri. Miðnætti (lág-
nætti) er 12 stundum síðar. Sólarhæð (H°) er hæð sólmiðju yfir sjón-
baug á hádegi (ljósbrot meðreiknað).
Um björtustu fastastjörnur og reikistjörnur er þess getið hve bjartar
þær eru, hvenær þær eru í hásuðri frá Reykjavík og hve hátt þær eru þá
yfir sjóndeildarhring. Einnig er tekið fram, í hvaða átt og hæð stjörn-
urnar eru við myrkur og í birtingu. Birtan er tilgreind í birtustigum,
sbr. bls. 73. Hæðin reiknast í gráðum yfir sjónbaug og er Ijósbrot þá
meðtalið. Punktalína merkir að stjarna sé undir sjónbaug aílan myrk-
urtíma sólarhringsins.
Merkinu % fylgir nafn þeirrar loftsteinadrífu sem um er að ræða.
Hverrar drífu gætir venjulega í nokkrar nætur, en merkið er sett við þá
dagsetningu sem svarar til hámarksins.
O 21 28 merkir að tungl sé fullt kl. 21 28.
2 3° S j) kl. 07 merkir að Venus sé 3° sunnan við tunglið kl. 07. Út-
reikningarnir miðast við Reykjavík, en tíminn er stundum tilgreindur
þótt tungl sé undir sjónbaug þar þegar samstaðan verður.
5 lengst í austur (18°) merkir að Merkúríus sé lengst í austur frá sólu
og að fjarlægð hans frá sólu á himinhvolfinu sé 18°.
Tungl hæst (44°) merkir að tungl sé hærra á lofti í hásuðri frá
Reykjavík en dagana á undan og eftir, og að hæð þess nemi 44°.
Táknið 5 í stað tölu í tungldálkunum merkir að tungl sé svo sunnar-
lega á himinhvelfingunni að það nái ekki að koma upp í Reykjavík.
Táknið 2 merkir að tungl sé svo norðarlega á hvelfingunni að það
setjist ekki.
Feitt letur í flóðdálkunum auðkennir hæstu flóðin. Flóðhæð í
Reykjavík (tilgreind í svigum) reiknast frá fleti sem er 0,22 m undir
sjávarborði á meðalstórstraumsfjöru, þ. e. 2,15 m undir meðalsjávar-
borði og 1,82 m undir núllpunkti hæðakerfis Reykjavíkur.
Um tímareikning. f almanaki þessu eru allar stundir taldar eftir mið-
tíma Greenwich sem nú er íslenskur staðaltími. A stöku stað reiknast
stundirnar fram yfir 24. Þannig myndi tímasetningin „25 32“ hinn 12.
janúar tákna það sama og 01 32 hinn 13. janúar.
(3)