Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Blaðsíða 87
Hljóðstyrkurinn er þó ekki beinn mælikvarði á hljóðhæðina
(háværðina) eins og eyrað greinir hana, því að næmleiki eyrans er
einnig háður öldutíðni hljóðsins.
Hljóðhækkun
1 fón (phon) = sú hljóðhækkun sem mannseyrað leggur að jöfnu við
hækkunina er styrkaukningin 1 desibel veldur á jafn háværu hljóði
af tíðninni 1000 Hz. Þegar hljóðhæð er tilgreind í fón er átt við það
hversu mikið þyrfti að magna minnsta heyranlegt hljóð af tíðninni
1000 Hz til þess að fá sömu hljóðhæð, dæmt með eyranu.
Geislavirkni
1 bekerel (becquerel, Bq) = geislavirkni efnismagns sem 1 kjarna-
sundrun verður í á hverri sekúndu.
1 kúrí (curie, Ci) = 3,7 • 1010 Bq. 1 gramm af radíni hefur geislavirkni
sem er mjög nálægt því að vera 1 kúrí.
Geislaálag (raffræðilegt)
1 röntgen (R) = það geislaálag röntgengeisla eða gammageisla sem í
lofti leiðir til myndunar rafa (jóna) er hafa til samans hleðsluna
1/(3 • 109) kúlomb af hvoru formerki fyrir sig (+ og -) í hverjum
1,293 mg lofts (= 2,58 • 10~4 C/kg). Þessi eining (röntgen), sem
miðast við álagið á loft, er fremur ófullkominn mælikvarði á álagið
á aðra hluti.
Geislaálag (orkufræðilegt)
1 grei (gray, Gy) = það geislaálag hvers kyns geislunar sem veldur því
að hvert kg efnis tekur í sig geislaorku sem nemur 1 júl. Gy =
, Vkg-
1 rad = 0,01 Gy. Fyrir röntgengeislun og gammageislun á efni manns-
líkamans svarar 1 rad nokkurn veginn til 1 röntgen. Geislaþol
líkamans í rad er misjafnlega mikið, eftir þvf hver geislunin er.
Þannig veldur 1 rad af alfaögnum og hraðfara nifteindum um það
bil tíu sinnum meiri skaða líffræðilega séð en 1 rad af röntgen-
geislum, gammageislum eða betageislum.
Geislaálag (líffræðilegt)
1 rem = það geislaálag hvers kyns geislunar, sem hefur ámóta líffræði-
leg áhrif og álagið 1 rad af röntgengeislum eða gammageislum.
Algengt geislaálag á mannslíkamann frá náttúrlegu umhverfi er
0,1 rem á ári. Sem stendur er ekki talin þörf á sérstökum varúðar-
ráðstöfunum ef álagið er undir 0,5—7,5 rem á ári (markið er
breytilegt eftir líkamshlutum). Snögg geislun sem nemur 25 rem á
allan líkamann hefur ekki merkjanleg áhrif, en 600-1000 rem er
banvænn skammtur.
(85)