Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Blaðsíða 62
REIKISTJÖRNURNAR 1984
Á eftir hverjum mánuði í dagatalinu (á bls. 7, 11 o. s. frv.) eru upp-
lýsingar sem eiga að gera mönnum auðveldara að þekkja björtustu
reikistjörnurnar. Þótt útreikningarnir séu miðaðir við Reykjavík má J
yfirleitt nota niðurstöðurnar annars staðar á landinu án mikillar
skekkju, nema tölurnar sem sýna hvenær reikistjörnur eru í hásuðri.
Þær þarf að leiðrétta um 4 mínútur fyrir hverja gráðu sem munar á
lengd staðarins og lengd Reykjavíkur (bæta við, ef staðurinn er vestar
en Reykjavík, draga frá ef hann er austar).
Merkúríus er næst sólu af öllum reikistjörnum og fremur erfitt að sjá
hann frá íslandi. Birta hans er mjög breytileg, en þegar hún er mest, er
hann á við björtustu fastastjörnuna (Síríus). Við góð skilyrði má
greina Merkúríus með berum augum um það leyti sem sól er 6° undir
sjónbaug, og er hann þá sýnilegur í nokkra stund eftir myrkur að
kvöldi eða fyrir birtingu að morgni. f góðum sjónauka sýnir Merkúríus
kvartilaskipti líkt og tunglið.
Venus er auðþekkt af því að hún er björtust allra stjarna. Sem kvöld-
stjarna verður hún sýnileg berum augum strax eftir sólsetur að kvöldi,
og sem morgunstjarna sést hún fram að sólarupprás, og jafnvel eftir að
sól er komin á loft, ef skilyrði eru góð. í sjónauka sýnir Venus kvart-
ilaskipti líkt og tunglið.
Mars ber rauðleitan blæ sem einkennir hann frá öðrum reikistjörn- /
um. Birta hans er mjög breytileg, en hann er venjulega daufari en
Júpíter og sambærilegur við björtustu fastastjörnur.
Júpíter er alltaf bjartari en nokkur fastastjarna og gengur næst Ven-
usi að birtu meðal reikistjarnanna (Mars getur orðið bjartari, en það
er sjaldgæft). Fjögur stærstu tungl Júpíters eru sýnileg í litlum sjón-
auka, þó ekki alltaf samtímis. Á bls. 65 er greint frá því, hvenær þau
myrkvast.
Satúrnus er að birtu til áþekkur björtustu fastastjörnum. í góðum
sjónauka sjást hinir frægu hringir, sem auðkenna Satúrnus frá öðrum
reikistjörnum. Halli hringanna í átt frá jörðu er minnstur í júlí (19°) en
mestur í desember (23°). Stærsta tungl Satúrnusar, Títan, sést í litlum
stjörnusjónaukum. Birtustig þess í gagnstöðu er nálægt +8,5.
Til frekari glöggvunar fer hér á eftir mánaðarlegt yfirlit um stöðu
þessara fimm björtustu reikistjarna eins og þær munu sjást frá íslandi á
árinu 1984.
Janúar
Venus, Satúrnus og Mars eru sýnilegar, allar á morgunhimni. Venus
er þeirra langbjörtust, en næst sól og lægst á lofti. í janúarbyrjun nær *
hún 8° hæð á suðurhimni við sólarupprás í Reykjavík, en í janúarlok
hefur hæð hennar minnkað f 3°. Mars og Satúrnus eru sunnarlega í sól-
brautinni og því einnig lágt á lofti. Mars er í meyjarmerki í byrjun
mánaðarins, en reikar til austurs yfir í vogarmerki, þar sem Satúrnus
(60)