Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Page 62

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1984, Page 62
REIKISTJÖRNURNAR 1984 Á eftir hverjum mánuði í dagatalinu (á bls. 7, 11 o. s. frv.) eru upp- lýsingar sem eiga að gera mönnum auðveldara að þekkja björtustu reikistjörnurnar. Þótt útreikningarnir séu miðaðir við Reykjavík má J yfirleitt nota niðurstöðurnar annars staðar á landinu án mikillar skekkju, nema tölurnar sem sýna hvenær reikistjörnur eru í hásuðri. Þær þarf að leiðrétta um 4 mínútur fyrir hverja gráðu sem munar á lengd staðarins og lengd Reykjavíkur (bæta við, ef staðurinn er vestar en Reykjavík, draga frá ef hann er austar). Merkúríus er næst sólu af öllum reikistjörnum og fremur erfitt að sjá hann frá íslandi. Birta hans er mjög breytileg, en þegar hún er mest, er hann á við björtustu fastastjörnuna (Síríus). Við góð skilyrði má greina Merkúríus með berum augum um það leyti sem sól er 6° undir sjónbaug, og er hann þá sýnilegur í nokkra stund eftir myrkur að kvöldi eða fyrir birtingu að morgni. f góðum sjónauka sýnir Merkúríus kvartilaskipti líkt og tunglið. Venus er auðþekkt af því að hún er björtust allra stjarna. Sem kvöld- stjarna verður hún sýnileg berum augum strax eftir sólsetur að kvöldi, og sem morgunstjarna sést hún fram að sólarupprás, og jafnvel eftir að sól er komin á loft, ef skilyrði eru góð. í sjónauka sýnir Venus kvart- ilaskipti líkt og tunglið. Mars ber rauðleitan blæ sem einkennir hann frá öðrum reikistjörn- / um. Birta hans er mjög breytileg, en hann er venjulega daufari en Júpíter og sambærilegur við björtustu fastastjörnur. Júpíter er alltaf bjartari en nokkur fastastjarna og gengur næst Ven- usi að birtu meðal reikistjarnanna (Mars getur orðið bjartari, en það er sjaldgæft). Fjögur stærstu tungl Júpíters eru sýnileg í litlum sjón- auka, þó ekki alltaf samtímis. Á bls. 65 er greint frá því, hvenær þau myrkvast. Satúrnus er að birtu til áþekkur björtustu fastastjörnum. í góðum sjónauka sjást hinir frægu hringir, sem auðkenna Satúrnus frá öðrum reikistjörnum. Halli hringanna í átt frá jörðu er minnstur í júlí (19°) en mestur í desember (23°). Stærsta tungl Satúrnusar, Títan, sést í litlum stjörnusjónaukum. Birtustig þess í gagnstöðu er nálægt +8,5. Til frekari glöggvunar fer hér á eftir mánaðarlegt yfirlit um stöðu þessara fimm björtustu reikistjarna eins og þær munu sjást frá íslandi á árinu 1984. Janúar Venus, Satúrnus og Mars eru sýnilegar, allar á morgunhimni. Venus er þeirra langbjörtust, en næst sól og lægst á lofti. í janúarbyrjun nær * hún 8° hæð á suðurhimni við sólarupprás í Reykjavík, en í janúarlok hefur hæð hennar minnkað f 3°. Mars og Satúrnus eru sunnarlega í sól- brautinni og því einnig lágt á lofti. Mars er í meyjarmerki í byrjun mánaðarins, en reikar til austurs yfir í vogarmerki, þar sem Satúrnus (60)
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.