Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1926, Blaðsíða 45
39
endur skili verkefni í aðalnámsgrein sinni við lok náms-
ins.*) Og það verkefni verður þeirra aðalpróf.
Hér er í raun réttri farin mjög sama leið og við
háskólanám. Pað mun þykja djarfræði, að láta sér koma
slíkt til hugar, af því að til þess að nema á þennan hátt,
þurfi sérstaklega mikinn þroska. En þetta er einmitt sú
leið, sem fjölmargir alþýðumenn fara, sem leita sér ment-
unar af fullri alúð. Að vísu vill það oft bresta, að þeir
taki nám sitt nógu skipulega. En einmitt það, þarf að
kenna. Pað þarf að kenna það, að nota sér bækur og
kenslu með scrstakt langmið framundan — annað en
það, að taka »próf«. Til þess mun vandfundið annað
betra en kjörsvið og sérstakar úrlausnir. Og fátt mun
betur reynast til að læra það, að safna sundurleitri þekk-
ingu og sundraðri orku að einu marki. — Um þroska
þeirra unglinga, er koma í alþýðuskóla um tvítugt, skal
það að vísu viðurkent, að hann er ærið misjafn. En
mörgum þeirra hefir lífsreynslan, mentaþráin og við-
Ieitnin lagt þau vopn í hendur, að þeir eru engu miður
færir um, að stunda nám á sjálfstæðan hátt en háskóla-
borgarar, sem eru stúdentar að nafnbót.
Hliðstætt þessu er það, að yngri deildar nemendur
velji sér verkefni til sumarnáms. Petta er að vísu erfitt
og jafnvel erfiðara en hitt. En á það er að líta, að venju-
legast er sjálfsnám alþýðumanna þessu skyldast. Pað
er tómstundastarf í önnum dagsins. Reynslan hefir sýnt,
að hér má komast furðu langt. Til skýringar skal hér
bent á nokkra flokka verkefna:
*) Pví til nokkurrar skýringar, hvernig pessu námi var hagað
hér í skólanum sl. vetur, verður á öðrum stað i ritinu birt rit-
gerð, er einn nemandinn — 18 ára gömul stúlka — skilaði
sem verkefni, er hún hafði leyst af hendi í aðalnámsgrein sinni.
Svo er til ætlast, að ritið birti framvegis eina slíka ritgerð á ári.
A. S.