Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1926, Page 107
101
Próf
(úr skýrslu prófdómara, sra. Hermanns Hjartarsonar á Skútustöðum
og Kristjáns Jónassonar á Narfastöðum).
„Dagana 19.—24. apríl s. 1. voruin við undirritaðir við próf
nemenda Alpýðuskóla Þingeyinga, samkv. skipun sýslunefndar
Suður-lJingeyjarsýslu. Nemendur höfðu þá lokið skriflegu prófi
í reikningi undir liandleiðslu kennaranna, og voru okkur sýndar
úrlausnirnar. Að öðru leyti vorum við viðstaddir prófið.
í yngri deild var prófið skriflegt i reikningi, og i islensku
lögðu neinendur fram stila, sem peir liöfðu gert um veturinn. Að
öðru leyti var prófið munnlegt í þeirri deild.
[Próftöflu slept hér.]
í eldri deild skólans var prófið alt skriflegt, nema i íslensku
að nokkru leyti. Af því að svo mjög lék á ýmsu um það, i hvaða
námsgreinum nemendur hennar höfðu tekið þátt um veturinn, og
hve misjafna alúð hver þeirra hafði lagt við námsgreinarnar, voru
ekki gefnar einkunnir í stigum, heldur aðeins gefnar umsagnir
um prófið.
1. Anna Guðmundsdóttir.
Aðalnám íslensk tunga og bókmentir. Skilaðri góðri ritgerð
um Jónas Hallgrímsson og gerði mjög góða úrlausn í aðal-
námsgreininni við prófið.
Aukanámsgreinar íslandssaga, danska, landafræði, náttúru-
fræði og teikning. Gerði góðar úrlausnir við próf í ölluin
námsgreinunum.
2. Birna Ólafsdóttir.
Aðalnám íslensk tunga og islenskar bókmentir. Skilaði rit-
gerð um Eggert Ólafsson. Ritgerðin var efnismikil og bar
vitni um mikla vinnu, en máli og stíl ábótavant. Gerði sæmi-
lega úrlausn við próf í aðalnámsgreininni.
Aukanámsgreinar íslandssaga, danska, lankafræði, náttúru-
fræði og teikning. Gerði góðar úrlausnir við próf.
3. Einar Karl Sigvaldason.
Aðalnám dráttlist. Skilaði blýantsmynd af Reykjadal suður
frá skólanuin, svartkritarmynd af grágæs, vatnslitarmynd af
garðkönnu og eirkatli og inálverki með oliulitum af Reykja-
dal norður frá skólanum. Myndirnar báru vitni um mikla
alúð og mikla framför.