Jólagjöfin - 24.12.1917, Qupperneq 50

Jólagjöfin - 24.12.1917, Qupperneq 50
48 JÓLAGJÖI’IK „Konan mín getur sagt yður frá svaraði Kruse. Gerner leit til húsfreyju, og það lá við að honum brygði við, er hann sá eldinn i stóru, skæru augunum hennar. Hún tók til máls: „Eg get verið stuttorð. Þér hafið eflaust getið yður til, að stúlkan var eg. Eg er dóttir umsjónarmannsins. Foreldr- ar minir voru trúuð og eg hafði líka falið frelsara mínurn hjarta mitt. Þegar maður er svo að segja alinn upp með- al fanga, verður manni ósjálfrátt á að líta á fangelsið og fangana öðrum augum en almenningur. ‘Við sjáum þjáningnr þeirra og blygðun, við horfum á baráttu þeirra, við finnum að fang- elsisvistin er þeim ekki þungbærust, heldur að hegningin byrj- ar oft þá fyrst, er þeir losna úr fangelsinu. Þessvegna kenn- um við í brjósti um þá og okkur þykir vænt um þá, og vilj- um reyna að hjálpa þeim til þess að komast á réttan kjöl. Faðir minn sagði okkur mömmu einu sinni frá ungum fanga, sem nýkominn var í fangelsið. Hann sagði okkur alla sögu hans og við kendum öll innilega i brjósti um þenna unga, ógæfusama mann, sem fallið hafði fyrir hinni miklu freistingu fyrir varmensku bróður síns. Og meðaumkvunin er góður ráðunautur. Þér vitið sjálfur, af sögu mannsins míns hvernig fór. Og til þess að segja það í fám orðum : meðaumkvun er stundum upphaf ástar. Það reyndist svo í þetta sinn. Þegar maðurinn var látinn laus kyntust við nánar. Það skiftir ekki máli hvernig það skeði. En guð gaf mér hann, sem blessaða gjöf, og betri og göfugri mann gæti eg ekki kosið mér. Hverjar afleiðingar þessi einkennilegi atburður, sem hér hefir orðið í kvöld, kann að hafa, veit eg ekki — en------ Hér fengu tilfinningarnar yfirhöndina í hjarta konunnar. Hún varpaði sér um háls manni sínum og hvíslaði með grát- staf í kverkunum: „Axel, vinur minn — það er aðfangadagskvöld — og til okkar er einnig kallað — friður á jörð!“ Svo gat hún ekki sagt meira.

x

Jólagjöfin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólagjöfin
https://timarit.is/publication/872

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.