Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2005, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 28. MAÍ2005
Fréttir DV
Embættismenn
til sendi-
herratignar
Utanríkisráðherra skip-
aði í gær tvo nýja sendi-
herra. Þetta eru þeir Helgi
Gíslason prótokollstjóri og
Sveinn Á. Björnsson sendi-
fulltrúi. Þeir eiga báðir ítar-
legan feril að baki í
stjómkerfinu. Helgi hóf
störf í utanríkisþjónust-
unni árið 1970 óg
hefur starfað víða um
heim, meðal annars í
fastanéfnd Sameinuðu
þjóðanna. Sveinn byrjaði í
viðskiptaráðuneytinu árið
1970 en fluttist yfir til utan-
ríkisráðuneytis síðar og
þjónaði í fastanefnd Evr-
ópuráðsins.
Brotist inn í
Hafið bláa
Lögreglan á Selfossi
leitaði í gærmorgun
tveggja manna sem brut-
Ust inn í Hafið bláa, veit-
inga- og útsýnisstað við
Eyrarbakkaveg, um
sjöleytið í gærmorgun og
stálu meðal annars
áfengi. Mennirnir náðust
báðir á myndband
ásamt ökutækinu sem
þeir voru á. Annar tví-
menninganna var hand-
tekinn laust eftir hádegi
og færður í varðhald og
yfirheyrður. Um sjöleyt-
ið hafði hinn maðurinn
ekki enn fundist, en lög-
reglan veit hver hann er
og leitar hans.
íslensk-indverska söngkonan Leoncie var kölluð „indverska viðrinið“ í pistli ræðu-
manns íslands, Björns Braga Arnarsonar. Hann sagði sig hrylla við henni. í kjöl-
farið hafa umboðsmaður Alþingis og ríkissaksóknari skipst á bréfum um hvort lita
beri á ummælin sem ærumeiðandi kynþáttahatur.
Söngkona kölluö
indverskt viörini
„Mér líður mjög illa yfir þessu,“ segir indversk-íslenska söng-
konan Leoncie Martin, sem var kölluð „indverskt viðrini", „húrr-
andi geðsjúkur kynskiptingur" og indverskur húnmann
(shemale) á opinberri vefsíðu. Verst þykir henni að ríkissaksókn-
ari ætli ekki gera neitt í málinu.
Samkvæmt 233. grein almennra
hegningarlaga má beita sektum eða
fangelsi allt að tveimur árum gegn
þeim sem ræðst opinberlega með rógi
og smánun gegn manni eða hópi
manna vegna þjóðemis
þeirra, Iitarháttar,
trúarbragða eða kyn-
þáttar.
Þetta telur
Leoncie að
Bjöm Bragi
Amarson,
rúmlega tví-
tugur ræðu-
maður ís-
lands, hafi
gert á vefsíðu
sinni í fyrra.
Hvernig hefur þú það?
' „Ég hefþaö nú bara öldungis
gott," segir Jakob Tómas Bull-
erjahn, fráfarandi forseti
Nemendafélags Menntaskól-
ans viö Hamrahlíð.„Ég er ný-
búinn ______________■
aöeiga
tvítugs-
afmæli. Nú er kominn tími til aö
bretta upp ermarnar og fara að
vinna í sumar. Ég er um þaö bil
aö fara að sækja um inngöngu
í háskóla í Þýskalandi. Efallt
gengur aö óskum þá verö ég
þar I eölisfræöinámi næsta vet-
ur. Þetta nám gæti oröiö mér
góöur undirbúningur fyrir
. frekaraframhaidsnám."
Leoncie Kölluð
indverskt viðrini,
geðsjúkur kyn-
skiptingurog
karlmaðuraf
ungum hvltum
pilti á uppleið
sem sagðisig
hrylla við henni.
Leoncie er karlmaður
Bjöm Bragi Bjömsson var kjörinn
ræðumaður íslands í apríl í síðasta ári
þegar hann keppú fyrir hönd Verzlun-
arskóla íslands í ræðukeppni ffam-
haldsskólanna. Rúmum mánuði síðar
skrifaði hann á vefsíðu sína blog.-
central.is/bjombragi/ niðrandi lýs-
ingu á Leoncie undir yfirskriftinni
„Leoncie er karlmaður":
„Það er nokkuð ljóst að indverska
viðrinið Leoncie er karlmaður. Það
nægir að skoða myndir af henni, nú
eða bara að sjá hana, til þess að sann-
færast. Ekki nóg með að líkaminn sé í
kolröngum hlutföllum heldur er það
einfaldlega bara andlitið sem er svo
karlmannlegt og shemale-legt að
mann hryllir við því,“ skrifaði ræðu-
meistarinn Bjöm Bragi, sem bætti við
að söngkonan úr Sandgerði væri húrr-'
andi geðsjúkur kynskiptingur.
Grein Björns Braga fór víða, enda
var vísað til hennar á Bat-
man.is, einni vinsælustu vef-
síðu landsins.
Umboðsmaður í málið
Leoncie kærði ummælin til lög-
reglu í maí í fyrra. 6. september lét
Bogi Nilsson rflássaksóloiari málið
falla niður, en því lauk þó ekki þar.
Umboðsmaður Alþingis veitti söng-
konunni liðsinni sitt og bað saksókn-
ara um ffekari röksmðning. Saksókn-
ari endurlífgaði málið í byrjun mars
síðastliðins, aðeins til þess að fella það
niður á ný 12. maí. Niðurstaða hans
var sú að ummæli Bjöms Braga um
Leoncie brym ekld í bága við hegning-
arlögin. „Ekki verður talið að unnt sé
að sýna fram á að ummælin beinist
gegn kæranda vegna þjóðemis henn-
„Ekki nóg með að líkam-
inn sé í kolröngum hlut-
föllum héldur er Þ*í>
einfaldlega bara andlit-
ið sem ersvo karlmann-
legt og shemale-legt að
mann hryllir við því"
Björn Bragi Arnarson Ræðu-
maður íslands / Morffs og kepp-
andi IGettu betur niðurlægði
Leoncie á vefsiðu sinni.
I }V
X* ’ f
í §
1
ar,“ skrifar Bogi Nilsson í rökstuðningi
sínum.
Ummælin „indverska viðrinið“
vom því ekki talin beinast að þjóðerni
Leoncie.
Vill hitta indverska forset-
ann
Söngkonan segist hafa haft
samband við indversk yfir-
völd og -sendiráð Indlands í
Osló vegna málsins. Þá hefur
hún beðið um fund með ind-
verska forsetanum,
Abdul Kalam, sem
kemur í opinbera
heimsókn til
lands á síðdeg-
is morgun.
Leoncie
hefur sent
rfldssak-
sóknara
harðort
bréf, þar
sem hún
spyr hvort kalla megi móður hans,
systur eða hann sjálfan íslenskt'viðr-
ini. Þar spyr hún hvers vegna hún hafi
ekki verið kölluð íslenskt viðrini, fyrst
ummælin hafi ekki beinst að þjóðemi
hennar.
Söngkonan hyggst kvarta til
umboðsmanns á ný og hótaði
> saksóknara skriflega að fara
fyrir alþjóðadómstóla og
■ senda hann „í steininn grát-
andi“.
Ekki náðist í Björn Braga
vegna málsins, en hann
mun hafa litið á niðr-
andi ummæli sín
semgrín.
jontrausti@dv.is
Bogi Nilsson Rlkis-
saksóknari telur að
oröinjndverskt viðr-
ini" beinist ekki að
þjóðerni.
Aðferð sem virkar
Reynslusaga Ásmundar
Stefánssonar af kolvetna-
skertu mataræði. Hvernig
hann léttist úr 120 kílóum
í 80.
Hvað er „vont" og
rÞað er ennþá tímf\ „gott" kólesteról?
til að grennast . Hvað má borða?
fyrir sumarið! ^ . Naeringatöflur
1 • Sykurstuðull
\ • Uppskriftir
Skuggafólkið stígur fram
Undarlegir atburðir urðu að
morgni fimmtudagsins síðasta.
Skyndilega skaut upp kollinum ólík-
legasta fólk haldið sjaldgæfri gleði og
sjálfsöryggi. Fólk þetta kom út úr
ýmsum skúmaskotum lflct og pöddur
eftir maíhret. í fyrstu vissi Svarthöfði
ekki hvaðan á sig stóö veðrið og
þekkti fæst fólkið. Smám saman átt-
aði Svarthöfði sig á því að þetta glað-
lynda og fagnandi fólk hafði verið til
staðar áður. Þá fölt á hörund, beygt
og læddist meðfram veggjum. Niður-
brotið út af fótboltaliði á Englandi. í
fyrsta skiptið í mörg ár hafði runnið
upp dagur hjá því fólki sem heldur
með enska knattspymuliðinu Liver-
pool. Sjálfur gladdist Svarthöfði óg-
urlega þegar Liverpool vann upp
þriggja marka forystu ítalska stórliðs-
ins AC Milan á nokkrum mínútum.
Hann hefur alltaf verið hlynntur litia
manninum. En korteri eftir leikinn
var það búið mál. Eins og eftir góða
bíómynd, þar sem heiminum er
bjargað. Eldd leikur Svarthöfði sér
með geislasverð eftir að hafa horft á
Stjömustríð. En fótboltaáhugamenn,
þeir láta ekki staðar numið við leiks-
lok. Að vera áhugamaður er ekki það
sama og áhugamað-
ur. Því klæddu margir
sig í Liverpool-bún-
inga á fimmtudaginn
og hoppuðu af gleði
eins og fyrirmyndim-
ar. Eins og bömin
sem fá Spiderman-
búninga og kliffa í
öllu veggföstu. Eða
fullorðnir sem klæða
sig í Star Trek-bún-
inga og eiga sér þá
einu ósk að láta
geisla sig upp í Enterprise. Svarthöfði
samgleðst Liverpool-mönnum inni-
lega, og sérstaklega fyrirliðanum
Steven Gerrard sem svaf hjá Evrópu-
bikarnum. Og íbúar Liverpool-borg-
ar em sælir, því hróður borgarinnar
hefur aukist. En Breiðhyltingar og
Kópavogsbúar: tíu ára þunglyndi og
röð vonbrigða var ekki þess virði.
Svarthöfði