Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2005, Blaðsíða 15
DV Fréttir
LAUGARDACUR 28. MAÍ2005 75
Hamraborg í
Kópavogi
Hér bjuggu Sæunn
Magnús ásamt
börnum s'ínum.
Sigurgeir. Hann hafi því fengið
vin sinn til að sitja yflr börnunum
á meðan hann athugaði hvort
Sæunn væri í raun og veru hjá
vinkonunni.
Um leið og vinur hans kom til
að passa stökk hann út og keyrði
beinustu leið að heimili vinkonu
Sæunnar. Þar var bíll Sæunnar
ekki. Magnús ákvað þá að keyra
upp í Vesturberg þar sem hann
vissi að Sigurgeir ætti heima. Þar
sá hann bíl Sæunnar og afbrýði-
semin tók völdin. Hann stormaði
inn í blokkina og barði fast á
hurðina hjá Sigurgeiri. Hann
kom til dyra á nærfötunum og
sagði Magnúsi að Sæunn vildi
ekki tala við hann. Gerði honum
síðan ljóst að hann væri ekki vel-
kominn.
Þegar samband Sigurgeirs og
Sæunnar var ekki lengur aðeins
leyndarmál þeirra tveggja bland-
aði faðir Sæunnar, Páll, sér í mál-
ið. Hann ræddi við Sigurgeir og
bað hann um að veita dóttur
sinni tilfinningalegt svigrúm til
að klára fyrirhugaðan skilnað við
Magnús. Á þetta féllst Sigurgeir
og lofaði að halda sig fjarri hjón-
unum á meðan skilnaðurinn
gengi yflr. Sigurgeir stóð að
mestu við þetta loforð en var þó í
sambandi við Sæunni í síma.
Fann læknanema á einka-
mál.is
Sigurgeir segir í samtali við
DV að það hafl þó alltaf verið ætl-
un hans og Sæunnar að halda
sambandinu áfram eftir að skiln-
aður hennar yrði frágenginn.
Sæunn var hins vegar á sama
tíma byrjuð að þróa samband við
annan mann, ungan læknanema
sem hún hafði unnið með tveim-
ur árum áður. Læknaneminn
sagði DV að samband þeirra
hefði hafist efir að hann sá aug-
lýsingu Sæunnar á Einkamal.is.
„Þetta byrjaði bara sem saklaust
MSN-spjall,“ segir hann.
Sæunn og læknaneminn hitt-
ust aðeins einu sinni. Sama kvöld
og hún lét lífið. Sæunn hafði um
daginn eytt tíma með Magnúsi og
börnunum. Eftir að hafa farið í
bíltúr með fjölskyldunni var farið
heim í Hamraborgina. Sæunn fór
inn með börnin en Magnús fór að
dytta að bflnum. Fyrir dómnum
sagðist hann hafa fundið fyrir
bjartsýni á að þetta væri vísir að
bættu sambandi þeirra tveggja.
Að kannski næðist að bjarga
hjónabandinu eftir allt saman.
Læknanemi í heimsókn
nóttina örlagaríku
Þegar Magnús hafði lokið við
að gera við bflinn og Sæunn hafði
sett börnin í rúmið sagði hún við
Magnús að henni liði ekki sem
best. Hún vildi fá að vera ein.
Magnús féllst á það og fór í
göngutúr. Hann segir að þennan
tíma hafi hann notað til að hugsa
sinn gang, íhuga stöðu sam-
bandsins og velta fyrir sér hvað
tæki við.
Á sama tíma á heimili hjón-
anna í Hamraborg var Sæunn að
undirbúa heimsókn frá lækna-
nemanum en hún hafði skömmu
áður boðið í heimsókn. Þau
höfðu í nokkra daga velt fyrir sér
að hittast en aldrei hafði orðið
neitt úr því fyrr en þetta kvöld.
Læknaneminn var á vakt á spítal-
anum til níu og kom til Sæunnar
-3)
__________________
stuttu seinna.
Lýsingar læknanemans fyrir
héraðsdómi í gær á sálarástandi
Sæunnar - sem hann hitti í fyrsta
skipti þetta kvöld - voru allt aðrar
en þær lýsingar sem Magnús gaf
fyrir dómi. Læknaneminn sagði
Sæunni hafa verið líflega, hlýlega
og brosmilda. Hann sagði þau
einnig hafa átt margt sameigin-
legt. Bæði áttu þau börn og bæði
höfðu þau átt í erfiðum sam-
böndum sem þau hefðu lokið.
Læknaneminn segir þau hafa get-
að talað um margt og það hefðu
þau einmitt gert þetta fyrsta og
eina kvöld þeirra saman.
Magnús fylgdist með
Sæunni
Fjölskylda Sæunnar var saman
komin í dómsalnum í gær. Frá-
sögn Magnúsar fyrir dómi hafði
mikil áhrif á þau en sjálfur virtist
hann rólegur. Eftir stutt hlé hélt
hann áfram og lýsti því hvernig
hann hefði velt fyrir sér hvort
hann ætti að sofa heima hjá for-
eldrum sínum eða athuga hvort
Sæunn væri búin að jafna sig.
Magnús ákvað að hringja í Sæ-
unni og athugaði hvernig henni
liði. Alls hringdi hann þrisvar í
Sæunni þetta kvöld. í fyrstu tvö
skiptin sagði Sæunn að hún vildi
vera ein. í þriðja skiptið brást
þolinmæði hennar og hún féllst á
að leyfa Magnúsi að koma.
„Hún sagði við Magnús að
hann gæti sofið inni í herbergi
stelpunnar," sagði læknaneminn
í samtali í samtali við DV en háhn
var við hlið Sæunnar í öll skiptin
sem Magnús hringdi.
Magnús hélt þá aftur í átt til
íbúðar þeirra í Hamraborginni.
Þegar þangað var komið segist
hann hafa séð að ljós voru kveikt
í íbúðinni. Magnús hélt því fram
fyrir dómi í gær að þetta hefði
verið óvanalegt því Sæunn var
vön að fara snemma í rúmið.
Hann hringdi í Sæunni og spurði
hvort hann mætti örugglega
koma inn. Hún bað Magnús þá
að koma ekki alveg strax og hann
beið því fyrir utan heimili sitt og
Sæunnar og fylgdist með glugg-
um íbúðarinnar.
menn.
Réttarhöldunum í Hamraborgarmálinu lauk í gær. Magnus Einarsson, banamaöur Sæunnar
Pálsdóttur, bar vitni og gefur vitnisburður hans skýra mynd af hugarástandi morðingja. Síð
ustu dagar Sæunnar, sem Magnús kyrkti með blárri þvottasnúru, hafa verið mönnum ráð-
gáta frá því hún var myrt. Enginn skildi hvernig stóð á því ungur og efnilegur verkfræðing
ur gat orðið henni að bana. Auk Magnúsar báru tveir ástmenn Sæunnar vitni í héraðsdómi
í gær. Þeirra vitnisburður hefur aldrei áður komið fram.
I Magnús Einarsson Var
I yfirvegaður og nákvæmur
| þegar hann rifjaði upp siðustu |
I stundirSæunnar.
Magnús byrjaði að
elta Sæunni og sitja
um hana þegar
hann grunaði hana
um að hitta aðra