Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2005, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2005, Síða 54
54 LAUGARDAGUR 28. MAÍ2005 Menning DV Yfirgefin heimili Yfirgefin hús hafa alltafhaft fjörgandi áhrifá ímyndunarafliö. Börn sækja inn í rústir sem vekja meö þeim spennu um ónumdar slóðir, fuiiorönir fara hikandi í rústina eins og þeir óttist aö trufla lifsem er liðið. Tveir Ijós- myndarar hafa á undanförnum árum tekið Ijósmyndir meö skipu- lögöum hætti afíslenskum eyöi- býlum sem eru fjölmörg um sveit- ir landsins: minnisvarðar um horfiö mannlíf. Nú hefur Mál og menning gefið út Ijósmynda- og Ijóðabók, Is- lensk eyöibýli meö myndum Nökkva Elias- sonar og Ijóðum Aðalsteins Ás- bergs Sigurös- sonar. Bókin kem ureinnigútá ensku und- ir heit- inu Abando ned Farms. Eyðibýli hafa verið viöfangs- efni Nökkva Elías- sonar i hartnær tvo áratugi. Hann hefur leitað fanga um allt land og fest á filmu eyöibýli, sem mörg eru nú horfin ofan í svörö- inn. Þessar óvenjulegu og sér- stæöu myndir hafa veriö sýndar víða um heim og hvarvetna hlotiö verðskuldaða athygli. Aðalsteinn Ásberg Sigurösson er löngu kunnur fyrir ritstörf sín. Hann hefur gefiö út Ijóð, Ijóða- þýöingar og barnabækur. Að auki hefur hann samiö fjölda söng- Ijóða sem komið hafa ú t á hljóm- plötum og tónlist fyrir börn og fullorðna. Hér yrkir hann Ijóð sem kallast á viö myndir Nökkva. Bókin er rúmar 120 siöur og hefur aö geyma fjölda svart-hvítra mynda sem teknar eru vlðs vegar um landiö. Hún skjalfestir sóun sem er óskiljanleg þegar litið er til sumarbústaöaauglýsinganna og vekur spurningar um hvað er rangt i hugsun okkar varðandi eldri hús á landsbyggöinni. Leiöbeinandi verö á báöum út- gáfum er 2.990 kr. Aðalsteinn Yrkirum hrunin hús og sködduð. Ritfregn Hannes Lárusson hefur skoðað sýningar helgaðar Dieter Roth sem nú standa uppi á þremur söfnum i Reykjavík. Hann rekur stöðu Roths í íslensku listasamfélagi en segir annað myndlistarefni á Listahátíð hafa mátt bíða. Dieter dugar Ef einhver getur gert tilkall til þess að vera útnefndur alfaðir íslenskrar samtímamyndlistar þá er það Dieter Roth. Hann var kannski aldrei neinn sérstakur brautryðjandi, heldur ötull þátttakandi í því sem ffamsæknir listamenn voru að gera á hverjum tíma, allt ffá formfræði flmmtá ára- tugarins, poppskotnu nýraunsæi sjötta áratugarins, að líffænum og tímatengdum ferlum á þeim áttunda. Hringekja listanna Á sama tíma og Dieter hafði oftast öruggt sæti á hringekju hins evr- ópska listheims voru íslendingar löngum h'tið með á nótunum. Nær- vera Dieters hérlendis varð smám saman svo sterk, meðal þeirra til- tölulega fáu sem vildu verða fram- sæknir lista- menn eins og hann, að fljót- lega stofnuðu þeir hreyfinguna Sýn- ishorn úr magni eða SÚM um list- rænt fordæmi hans. Dieter Roth varð með tímanum svo magnaður í íslensku samhengi að til eru málsmetandi listamenn sem hafa daglega yfir af honum goð- sögur og hafa gert allar götur síðan þeir litu hann fyrst augum í árdaga. Hafi fáir hlustað á þesssar endalausu sögur um árabili en nú er sem menn séu allir ein eyru. Um þessar mundir fer fram á þremur stöðum í Reykjavík fyrir til- stilli Listahátíðar 2005 eins konar opið útboð á nægtabrunni Dieter- Myndlist arfsins þar sem ekki er útséð um hverjir muni fá mest í sinn hlut: in- telligensían, djétsettið, lærisveinarn- ir úr SÚM og lærisveinar þeirra eða almenningur, börnin og listasmiðj- urnar. Vera eins og Dieter Magn kallar á magn. Þeir sem vildu verða eins og Dieter reyndu Uka að gera mikið eins og hann, en hann var óumdeilanlegur meistari magnsins, þannig að hann gerði alltaf miklu meira en þeir. Hann lagði til atíögu við víddina, leitaði að verðmætum á yfirborðinu en sóttist ekki eftir dýpt, fann gullið á götum úti eða safnaði dósum og öðrum varningi í skúmaskotum, gróf ekki holur. Hann var jarðbundni tuddinn sem melti ógrynni af listrænni hvers- dagsfæðu og þurfti alltaf meira, meðan listamenninirnir í Sýnishom úr magni vom eins og litíar mýs sem söfnuðu hver sínum litía forða. f uppsöfnuðu ævistarfi hans má segja að hann komi svo víða við að hann verði eins konar perónugervingur heillar kynslóðar í listsköpun og framlag hans fari langt með að duga sem spegilmynd tíðarandans. Kraftur magnsins Það er eitthvað guðdómlegt í magninu, yfirþyrmandi og uppruna- legt. Þegar öllu er hrært saman, val og smekkur settur á jaðarinn, einu hömlurnar em eigin orka og fram- kvæmdageta og máttur tU að sam- Dieter Roth: „Hoffnungsgebilde", 1983. Dieter Roth: „Drei Springer", 1970. færa aðra tíl að taka þátt, er eins og ein- hvers konar fium- sköpun sé leist úr læð- ingi. Magnið er freist- andi og smitandi og sogar menn að sér með upphafinni lym- sku, virðist gefa hlut- deUd, en í tilfeUi Dieters var það aUtaf á hans eig- in forsendum. Og ef það er skítugt, hrátt og ómótað er sem það sé sjálf- krafa nær náttúrunni og nálgist að vera svo mikið á Ufi að dótið geti af sjálfsdáðum skriðið út úr vöggustofu safnanna. Harðstjórn hugarflugsins Flestir listamenn búa við harð- stjórn eigin hugmyndaflugs. Reyna að fanga lausbeislaðar hugmyndir og hugdettur á óljósu flögri, næra þær, hlúa að þeim og unga þeim út á tU- þrifamikinn hátt. Ef hugmyndarflug- ið dofnar, dofnar jafnframt yfir lista- manninum og hann festíst smám saman í volæðislegu þráhyggju- hnoði. Dieter Roth var hins vegar einn þessara fáu sem ekki laut harð- stjórn eigin hugmyndaflugs. Sköpxm hans var opin fyrir utanaðkomandi gegnumflæði og orku og ekki beygð undir dynti fagurfræðUegrar ákvarð- anatöku og svipuhögg hugmynda- flugsins, heldur einungis affnörkuð af tUfallandi aðstæðum, geðþótta, gleðivímu og likamlegri heUsu. Dieter Roth var ekki þræU eigin verka og sá sem ekki er þræll eigin verka er nokkurn veginn frjáls. Og af því að hann var sjálfur opin og frjáls tókst honum flestum betur að virkja jámanninn í öUum hinum, þess vegna var Dieter Roth í rauninni margir menn að Ustrænu og efnis- legu umfangi bæði h'fs og Uðinn. Loksins Það hefur legið í loftinu í mörg ár að haldnar yrðu stórar sýninga á ís- Portret eftir Richard Hamilton frá 1998. Saman unnu þeir Dieter Hvíta albúm Bítlanna Dieter í gjörningi Nærvera Dieters hér- lendis varð smám saman svo sterk, meðal þeirra tiltölulega fáu sem vildu verða fram- sæknir listamenn eins og hann. landi með verkum Dieters Roth og nú er það loksins búið og gert. Sýn- ingarnar sem standa út sumarið í Listasafni íslands, GaUerí 100°, Listasafni Reykjavíkur eru aUar afar faglegar í aUri framsetningu og hef- ur sjaldan verið betur gert á um- ræddum stöðum. Vonandi notfæra sér sem flestir upplagt tækifæri tU íhugunar um víddir mannlegs sköp- unarstarfs, af nógu er að taka af ið- andi verkum: málverk, grafík, bæk- ur, myndbandsverk, skúlptúrar, innsetningar, hljóð og lykt. Það er deginum ljósara að Dieter hefði dugað sem eina myndlistarffamlag- ið á þessari svo köUuðu Listahátíð myndlistarinnar 2005. Hinar sýningarnar og verkin hefðu mátt Uggja áfram í hug- myndapækli og peningana sem þessu auka bröltí fylgdu hefði mátt láta ávaxtast í sjóði enn um sinn og draga fram þegar meira lá við. Hannes Láwsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.