Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2005, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚU2005
Fréttir DV
Reisa
geymslu-
tanka í Eyjum
Bæjarráð Vestmanna-
eyja samþykkti á fundi sín-
um fyrsta júlí að auglýsa
nýtt deiliskipulag á at-
hafnasvæði Vinnslustöðv-
arinnar í Vestmannaeyjum.
Tillaga felst í meginatriðum
í að áformað er að rífa hús-
in að Strandavegi 78-80 og í
landfyllingu austan við nú-
verandi athafnasvæði og
byggingar Vinnslustöðvar-
innar. A landfyllingunni er í
staðinn áformað að reisa
hráefriis-, mjöl-, lýsis- og
olíutanka. Tiliagan verður
til sýnis til tólfta ágúst.
Skordýr í
Elliðaárdal
skoðuð
Orkuveita Reykjavík-
ur efnir til göngu- og
fræðsluferðar í Elliðaár-
dal í kvöld klukkan
hálfátta. Gangan verður
undir leiðsögn Guð-
mundar Halldórssonar
skordýrafræðings og
Odds Sigurðarsonar
jarðfræðings. Gengið
verður um dalinn og
hugað að smádýrum
sem þar búa. Þátttak-
endur eru hvattir til að
hafa með sér stækkunar-
gler. Gengið verður frá
Minjasafni Orkuveitu
Reykjavíkur. Að lokinni
göngu verður opnuð
ljósmyndasýning Odds á
skordýrum í Rafheimum.
Lægsta
tilboði tekið
fyrir rest
Deila um skólaakstur í
Borgarbyggð virðist vera á
enda runnin.
Skólaaksturinn
var boðinn út í
fyrra og
næstlægsta boði
tekið, sá samn-
ingur var kærður
á grundvelli þess
að taka ætti lægsta
boðinu. Nú hefur verið
samið um aksturinn við
Sæmund Sigmundsson
sem átti lægsta boðið. Þor-
valdur T. Jónsson, fulltrúi
B-lista í bæjarstjóm segir
að komast hefði mátt hjá
deilunni með því að semja
beint. Meirihlutinn taldi
Iagalega skyldu að bjóða út
aksturinn.
Rakel Gunnarsdóttir, nítján ára, lenti í átökum við starfsmenn tónleika Snoop
Dogg. Hún segir þá hafa beitt sig harðræði þegar henni var vísað burt frá tónleik-
unum. Starfsmenn tónleikanna segja stúlkuna hins vegar hafa slegið öryggisvörð.
„Þeir rifu í hárið á mér og létu öllum illum látum," segir Rakel
Gunnarsdóttir sem lenti í átökum við starfsmenn tónleika
Snoop Dagg á sunnudaginn. Rakel segist hafa glatað skóm í
átökunum og hún sé öll blá og marin. Tónleikahaldarar segja
stúlkuna hafa slegið öryggisvörð og því verið vísað út.
Rakel kveðst hafa verið fremst og
beðið eftir að stjarnan stigi á stokk.
Sökum hita og þrengsla hafi sér
reynst þungt um andadrátt. Hún
hafi þá beðið öryggisgæsluna um
vatn. Þeir hafi neitað sér um vatn. Þá
hafi hún reynt að komast nær en
dottið á einn af gæslumönnunum.
Rakel segir að í framhaldinu hafi sér
verið skellt í gólfið, hún rifin upp á
hárinu og buxnastrengnum og sér
fleygt út.
Sló gæslumann
„Við megum ekki sleppa neinum
ílátum í salinn, þannig að starfs-
menn geta aðeins gefið þeim að
drekka sem þeir ná til," segir Bjarni
Knútsson yfirmaður öryggismála á
tónleikum Snoop Dogg."Þessi um-
rædda stúlka bað um vatn en var
ekki nógu nálægt til að starfsmenn
okkar gætu komið vatni til hennar.
Stúlkan kom svo vaðandi yfir hóp-
inn og sló einn öryggisvörðinn."
Bjarni segir að verðimir hafi þá lyft
henni yfir hópinn, fylgt henni að dyr-
um og þakkað henni kvöldstundina.
Var skorinn fyrir
Stúlkan segist hafa hlotið þó
nokkra áverka við þessa flutninga.
Ekki ber þó öllum aðilum saman
um tilkomu þeirra. Öryggisverðirn-
ir segja stúlkuna hafa verið með
skurði á handleggjum og víðar þeg-
ar þeir þurftu að hafa afskipti af
henni. Enn fremur hafi hegðan
þessarar stúlku þótt slík að ekki
væri öruggt að hafa hana inni á tón-
leikunum.
Vel undirbúnir.
„Við vorum vel undirbúnir fyrir
erfiðleika fremst við sviðið," segir ís-
leifur Þórhallson aðstandandi tón-
leikana. „Við erum alltaf með þenn-
ann sama hóp sem sér um öryggis-
mál á öllum tónleikum sem við
stöndum að. Þeir eru mjög meðvit-
aðir um það ástand sem skapast
fremst við sviðið og kunna að sinna
því."
ísleifur segir að gæslan hafi verið
með mjög gott kerfi fyrir aðstæður
eins og stúlkan lýsir. „Við vorum að
feija vam stöðugt alla tónleikana og
ef svo vildi til að einhver væri kom-
inn í vandræði sökum þrengsla var
honum fylgt upp í svo kallaða VIP-
stúku, þar sem viðkomandi gat þá
notið tónleikana í súrefnisríkara
andrúmslofti."
Áverkar greinilegir Starfs-
menn tónleikana sögðu að stúlk-
an hefði verið með áverkana þeg-
ar þeir höfðu afskipti afhenni
Villi slær í
Svarthöfði ætlaði vart að trúa
eigin eyrum. Var að hlusta á útvarp-
ið á Iaugardaginn þar sem Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmssonar, oddviti sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, var að
fara yfir stöðu mála. Vilhjálmur
sjálfum sér líkur; stilltur og prúður
eins og engill á skýi. Enn svo gerðist
það óvænta. Villi fór að syngja.
Svarthöfði leit fyrst á útvarps-
tækið og kleip sig svo í handlegg-
inn. Var Villi fullur? Gat varla verið
miðað við það sem á undan var
gengið. En þarna var hann í útvarp-
inu og söng á útopnu: Vertu ekki
alltaf að horfa svona á mig, sem
Raggi Bjarna gerði frægt á sínum
gegn
-r'w Svarthöfði
tíma. Og svei mér þá; Villi gaf Ragga
lítið sem ekkert eftir.
í Villa er dynjandi rokk og ról og
Svarthöfði er viss um að ef þetta
númer hans verður sýnt í sjónvarpi
á enginn sjens í hann í prófkjöri
sjálfstæðismanna vegna borgar-
stjórnarkosninganna í Reykjavík.
Helst er það sjónvarpsstjarnan
Gísli Marteins sem sækir að Villa og
vill ræna hann forystuhlutverki
flokksins í Reykjavík. Vissulega hef-
ur Gísli Marteinn forskot á Villa eft-
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþaö mjög fínt og er að vinna að tónlistarmyndböndum," segir Leoncie lagahöfundur
og söngkona.„Ég er byrjuö að semja tónlist fyrir næstu plötu. Ég verð sjaldan stressuð þótt ég
hafi mikið að gera og efþað gerist bið ég til Guös og það virkar. Ég reyni að hugsa jákvætt og
hugsa um fjölskylduna. Ég fór meö manninum mfnum til London fyrir nokkru, það er skárra
að vera þaren ÍSandgerði. Idag ætla ég að elda fimm rétta máltlð fyrir manninn minn."
ir að honum var plantað í Ríkissjón-
varpið á besta tíma á laugardags-
kvöldum ár eftir ár til að undirbúa
hann fyrir þetta framboð. En söng-
ur Villa í útvarpinu slær öllu við
sem Gísli Marteinn hefur áorkað til
þessa. í söng
Villa var
tær og
sannur
tónn
sem er
sjaldgæf-
ur innan
raða sjálf-
stæðis-
manna þegar -■«>
grannt er skoðað.
f raun hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn
eignast nýja
stjörnu; framtíð-
arforingja sem er
til alls líklegur er
fram líða Æ.
stundir. Svarthöfði ætlar að taka
þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
og kjósa Villa. Hann syngur svo vel.
Svarthöfði