Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2005, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ2005
Fréttir DV
Vill að Baugur
birti ákæru
„Þetta er óþægi-
legt fyrir alla, Baugs-
menn, almenning og
fjölmiöla," segir Öss-
ur Skarphéðinsson á
heimasíðu sinni um
að enn hafa ekki ver-
ið birtar ákærur í
Baugsmálinu. Össur bendir
á að áður en málið er þing-
fest getur enginn birt þær
opinberlega nema Baugs-
menn. Meðan svo er ekki
gert verða umræður um þær
í getgátustíl sem er óþægi-
legt fyrir alla. Össuri finnst
þetta sérstaklega furðulegt í
ljósi þess að lögffæðingur
Baugs, Gestur Jónsson, lýsti
því opinberlega yfir fyrir um
tíu dögum að Baugur myndi
birta ákærumar.
Sameining í
Austur-Húna-
vatnssýslu
Þann áttunda október
næstkomandi verður kos-
ið um sameiningu Ása-
hrepps, Blönduóssbæjar,
Höfðahrepps og Skaga-
byggðar. Ef verður af sam-
einingu munu verða rúm-
lega sextán hundmð íbúar
í hinu nýja sveitarfélagi.
Rökstuðningur samein-
ingamefndar er að Aust-
ur-Húnavatnssýsla sé
heildstætt atvinnu- og
þjónustusvæði. Hrepps-
nefnd Skagabyggðar hefúr
lýst því yfir að ff amkomn-
ar tillögur sameiningar-
nefndar séu ekki í sam-
ræmi við sjónarmið
hreppsnefndar og leggur
til að sveitarfélagaskipan á
svæðinu fái að þróast án
íhlutunar utanaðkomandi
aðila.
Samstarfs-
öröugleikar
R-listans
Helgi Hjörvar,
borgarfulltrúi R-lista
„Sú hugmynd Össurar aö gefa
óflokksbundnu fólki tækifæri til
að bjóða sig fram fyrir Samfylk-
inguna og velja frambjóðendur
okkar er mjög góð, enda skiptir
Samfylkinguna mestu máli að
eiga samleið með almenningi í
borgarmálum. Efvið eftirlátum
litlum flokksklíkum öll völd í
Reykjavlkurlistanum þá deyr
hann bara úr hugmyndaleysi
og almennum leiðindum.“
Hann segir / Hún segir
„Ég hefenga sérstaka skoðun á
þeim, er bara fegin aö þurfa
ekki að basla I þessu. Og fegin
að vera í mlnum Sjálfstæðis-
flokki sem býður fram sem sllk-
ur. Það er vonandi, þeirra
vegna, að það fari aö koma I
Ijós hvernig þetta samstarf
verður."
Jórunn Frímannsdóttir,
varaborgarfulltrúi D-lista
Fólki á Flateyri fjölgaði fimmfalt í gærmorgun þegar bandaríska skemmtiferðaskip-
ið Prinsendam lagðist þar við festar. Níu hundruð ferðamenn streymdu í land
þeim 200 íbúum sem fyrir voru til undrunar. En það var líf og fjör.
Ferðamennirrnir streyma
í land Margtkom þeim und-
arlega fyrir sjónir á Flateyrí
eins og gefur að skilja.
Myndir: Páll Önundarson
„Ég var steinsofandi þegar hafnarvörðurinn hringdi í mig og
sagði mér að opna handverkstæðið strax. Bærinn væri orðinn
fullur af ferðamönnum,“ segir Þorbjörg Sigþórsdóttir sem rekur
handverkstæðið Purku á Flateyri.
Prinsendam á Flateyri Óvænt heimsókn sem hleypti lífi Ibæinn og Ibúana.
Þorbjörgu brá í brún þegar hafn-
arvörðurinn hringdi og ekki minna
þegar hún leit út um gluggann því
900 ferðamenn spókuðu sig á götum
Flateyrar og skoðuðu sig um. íbúar
staðarins eru 200 talsins.
Skemmtiferðaskipið Prinsendam
lagðist við festar við Flateyri
eldsnemma í gærmorgun og voru
farþegar fluttir í land. Aldrei fyrr
hafa íbúar á Flateyri séð jafn marga
ferðamenn í einni kippu. „Fjöldinn
var ótrúlegur," segir Þorbjörg, sem
var snögg að opna handverkstæðið
sitt og hella upp á könnuna.
Tvær lopapeysur
„Ferðamennirnir komu hingað
til að skoða en keyptu ekki mjög
mikið. Þetta var bersýnilega ríkt
fólks sem var ekki að eyða pening-
unum sínum í óþarfa en eitthvað
seldum við samt. Ég veit um tvær
seldar lopapeysur," segir Þorbjörg
sem alltaf er kölluð Tobba í Purku.
Þorbjörgu brá í brún
þegar hafnarvörðurinn
hringdi og ekki minna
þegar hún leit út um
gluggann því 900
ferðamenn á spókuðu
sig á götum Flateyrar
og skoðuðu sig um.
Tobba hefur búið á Flateyri frá árinu
1980. „Ég hitti manninn minn á
dansleik í Sjallanum á Akureyri og
hann var héðan. Þess vegna er ég
hér," segir Tobba.
Rúgbrauð og síld
Ferðamennimir af skemmti-
ferðaskipinu settust þó niður á kaffi-
stofunni í Purku, en þar er boðið
upp á rúgbrauð og sfld, silung og
kökur, kaffi og te: „Hrifnastir vom
ferðamennirnir þó af rabarbarapæ-
inu okkar sem löngu er orðið frægt
hér fýrir vestan," segir Tobba.
Allir íbúar á Flateyri þustu út á götu
til að skoða ferðamennina sem á móti
skoðuðu íbúana. Ástæða þess að þetta
risaskip kom til Flateyrar var að vont
verður gerði það að verkum að skipið
gat ekki farið til ísafjarðar eins og ráð
hafði verið fyrir gert. Auðvelt var hins
vegar að komast til Flateyrar.
Mjög gaman
Allar tiltækar rútur og langferða-
bifreiðar á Vestfjörðum vom sendar
af stað til að aka með ferðamennina
til ísafjarðar og Bolungarvíkur þar
sem fleiri handverkstæði vom heim-
sótt. Svo sigldi skipið aftur á haf út
klukkan 19 í gærkvöldi. Eftir stóðu
íbúarnir á Flateyri hálf dasaðir eftir
þessa óvæntu en skemmtilegu inn-
rás sem enginn sá fyrir.
„Þetta var mjög gaman," sagði
Tobba í Purku.
Fólk leitar til bráöaþjónustunnar vegna langs biðtíma hjá
heimilislæknum
Kvartað yfir löngum biðtíma
„Fólk kvartar yfir að hafa ekki
heimilisækni eða vilja ekki fara til
hans" segir Jón Baldursson, læknir á
bráða- og slysadeild Landspítalans í
Fossvogi. Jón segir sumt fólk kvarta
yfir því að þurfa að bíða lengi eftir að
komast að hjá heimilis-
lækni og leiti þess
vegna til bráða-
þjónustunnar.
„Fólk kem-
ur hingað með
bráðasjúk-
dóma vegna
þess að því
1IIII& fj
IIÍSI //»
Guðmundur Einars-
son, forstjóri heilsu-
gæslunnar „Kvörtun-
um hefur fækkað."
finnst biðin hjá heimilislæknum vera
of löng," segir Jón. Hann segir að sumt
fólk virðist ekki átta sig á hlutverki
heimilislækna eða hveiju þeir geti
sinnt. Aðrir vita ekki hver heimilis-
læknir þess er.
„Það em engar tölur til um það
hversu stórt hlutfall fólks sem kemur á
bráðamóttökuna kemur þangað
vegna þess að það hefur ekki heimilis-
lækni," segir Jón.
„Það em nokkrar heilsugæslu-
stöðvar sem ráða ekki við sín hverfi
vegna þess að þær em of lidar," segir
Guðmundur Einarsson, forstjóri
heilsugæslunnar. Þær stöðvar sem
þarf að stækka em stöðvamar í Ár-
bænum, Mjódd og Miðbæjarstöðin,"
segir Guðmundur. Þá er fyrirhugað að
opna stöð í Voga- og Heimahverfi á
næstunni að sögn Guðmundar.
Guðmundur segir að kvörtunum
um heilsugæsluna frá fólki hafi fækk-
að. „Þjónusta heilsugæslunnar hefur
lagast og viðhorfskannanir sem gerð-
ar hafa verið sýna að viðhorf til þjón-
ustunnar er gott," segir Guðmundur.
Guðmundur segir
að hugmyndin
um að flytja
rekstur heilsu-
gæslustöðva ffá
ríki til sveitarfé-
laga hafi verið
rædd, en vildi
ekki tjá sig
það
‘l Jón Baldursson, læknir á
ar' bráða- og slysadeild. „Fólk
kvartar yfir löngum biðtíma
hjá heimilislæknum."
Sveitarfélagið
Iarborg
Árborg ekki til
sölu
„Meg-
instefna
núverandi
meirihluta
er að selja
ekki land í
eigu sveit-
arfélags-
ins," segir
í bókun
bæjarráðs Árborgar vegna fyrir-
spurnar Þorsteins G. Þorsteins-
sonar bæjarfulltrúa um sölu á
landi við Stokkseyri. í bókuninni
segir jafnframt að sú stefna
grundvallist af því að tryggja
nægilegt svigrúm til uppbygging-
ar í sveitarfélaginu. Salan á landi
við Stokkseyri hafi verið dæmi
um sérstakar aðstæður. Þar hefði
verið talið heppilegt að selja
nokkra fermetra til þess að ein-
falda landamerki jarðarinnar og
lands í eigu sveitarfélagsins.