Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2005, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 7 9. JÚLf2005
F/éttlr xrr
Hrafn Gunnlaugsson þurfti aö leita til Guðmundar Þ. minkabana Björnssonar
til að vinna á minkum sem voru orðnir nágrannar hans á Laugarnesinu.
Fuglalíf er 1 rúst úti á nesinu en fimm minkar voru drepnir og greni unnið.
Víkingaminkar gera
Hrafni lífið leitt
Fjarðarál
byggir
íþróttahús
Undirritaðir hafa verið
samningar milli Fjarða-
byggðar og Sveinbjörns
Sigurðssonar ehf. um bygg-
ingu íjölnota íþróttahúss á
Reyðarfirði. í húsinu verður
knattspyrnuvöllur með
gervigrasi og hundrað
metra hlaupabraut ásamt
stökkgryfju og áhorfenda-
svæði. Byggingarkostnaður
er áætlaður um fjögur
hundruð milljónir króna og
er það Alcoa/Fjarðarál sem
styrkir verkið um rúmar
áttatíu og fimm milljónir
króna. Gert er ráð fyrir að
húsið verði afhent í maí á
næsta ári.
Landsíminn
„Þaö er allt gott að frétta héö
an úr Hveragerði,"segir Kríst-
inn Grétar Harðarson tækni-
maðurog umsjónarmaður
blómstrandi daga.„Undirbún-
ingur fyrir blómstrandi daqa
erkom-
inná
fullt og mikil eftirvænting í
loftinu. Þaö veröurþétt dag-
skrá ogmunu meðal annars
Jón Ólafsson og Hildur Vala
troða upp. Jafnframt á björg-
unarsveitin á svæðinu þrjátlu
ára afmæli og veröur líka dag-
skrá i kringum það.Annars er
alltafverið að byggja á fullu
hérna og mannlifið blómstrar
sem aldrei fyrr.
Vændiskonur
á Barnalandi
Bamalandmæðrum er
ekkert heilagt. Á spjailsvæð-
inu er nú í gangi
könnun þar sem
einfaldiega er
spurt: „Ertu
vændiskona?"
sem vekur athgli
er að 22 hafa svar-
að spumingunni játandi, og
ekki nóg með það heldur
segjast 26 tii viðbótar að þær
séu það ekki en væm til í það.
Til að toppa þetta segja svo
sextán í viðbót að þær hafi
verið það en séu það ekki
lengur. Yfirgnæfandi meiri-
hluti hefúr þó svarað spum-
ingunni neitandi, eða 526
mæður. Tekið skal ffam að
könnunin er með óformieg-
asta hætti og ber að taka með
fyrirvara.
Þyrlueftirlit
á hálendinu
Lögreglan á Fivolsvelli
var í gær með þyrlueftirlit
á hálendinu. TVeir lög-
regluþjónar fóm á þyrlu
Landhelgisgæslunnar, TF
SIF, til eftirlits við Skafta-
fellssýslu, Ámessýslu og
víðar, mest við fjölfama
ferðamannastaði og leiðir.
Að sögn lögreglu er helst
haft auga með því hvort að
menn séu að aka undir
áhrifum áfengis eða utan
vega. Áætlað er að lögregl-
an fari í fleiri slíkar ferðir
um hálendið í sumar.
„Ég sá eitthvert kvikindi sem hvorki var köttur né rotta,“ seg-
ir Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður.
Dýrið sem Hrafn sá reyndist
minkur og á tiltölulega skömmum
tíma var allt orðið krökkt í námunda
við hús hans á Laugamesinu. Hrafn
sá þrjá minka fljótlega eftir þetta og
leitaði þá til Guðmundar minkabana
Bjömssonar. Meindýraeyðirinn hef-
ur nú unnið minkagreni rétt við
heimili Hrafns og drepið fimm kvik-
indi.
Fuglalífið í molum á nesinu
„Þetta er einhverjir vikingamink-
ar," segir Hrafii sem er helst á því að
þeir hafi verið að sækja í DVD-diska
með meistaraverkinu Hraihinn flýg-
ur. Þrátt fyrir meintan góðan smekk
þessara minka vom þeir famir að
gera Hrafni lífið leitt og þá ekki síður
öðmm íbúum á Laugamesinu.
„Þrjú andapör eiga
þar hreiður en allir
ungar eru horfnir og
öndin stygg. Enginn
hrossagaukur fyllir
loftið þyt og stelkur-
inn er horfinn af
staurunum."
Engin miskunn Minkarnirfimm sem
Guömundur drap virðast hafa veriö hinir
öflugustu.
Hrafn segir allan fuglasöng horfinn
úr nesinu. Þrjú andapör eiga þar
hreiður en allir ungar em horfnir og
öndin stygg. Enginn hrossagaukur
fyllir loftið þyt og stelkurinn horfinn
af staurunum.
Hrafri telur það nokkrum tíðind-
um sæta að minkurinn sé farinn að
búa sér ból svo nærri byggð.
Minkurinn gaut nánast inni í
stofu
Guðmundur minkabani segir alls
ekki einstakt að minkur sé drepinn
svo nálægt byggð en grenið var í um
Hrafn og Guðmundur minkabani Minkur hafði gert sér greni tuttugu metra frá
húsi Hrafns Gunnlaugssonar. Fimm minkar voru drepnir en þeir hafa gert óskunda I
fuglalifi á nesinu.
20 metra fjarlægð frá húsi Hrafns.
„En það er náttúrlega einstakt að
þeir gjóti nánast inni í stofu." Þó
nokkuð er um að hann sé kallaður út
vegna minka víðsvegar um höfuð-
borgarsvæðið. „Kvikindin halda sig
þó einkum við laxveiðiámar, Kjalar-
nesi og við Elliðaámar."
í nógu er að snúast hjá Guð-
mundi og ekki laust við að honum
þyki nóg um þegar talið beinist að
ýmsum gæludýram sem fólk er farið
að halda - svo sem rottur.
Innflytjendum sýnt of mikið
umburðarlyndi
Hrafn hefur lýst sig eindreginn
stuðningsmann þess að innflytjend-
ur fái að koma óhindrað til íslands.
Þetta hefur ekkert breytt skoðun
hans á því þótt minkurinn teljist til
innflytjenda og megi heita skaðræð-
isskepna eins og þetta dæmi sýnir
svo ekki verður um villst. „Mér þykir
vænt um minkinn," segir Hrafii. Að
hans mati er einkum tvennt sem er
vandinn við innflytjendur og sá
vandi býr í viðhorfi þeirra sem fyrir
em. Annars vegar er skortur á um-
burðarlyndi og ekki síður hin vitleys-
an sem er endalaust umburðarlyndi.
Hrafn segir innflytjendur í góðu lagi
svo fremi að þeir læri að semja sig að
umhverfinu. Það gátu þessir minkar
ekki gert og fengu að gjalda fyrir
með lífi sínu. jakob@dv.is
Skæður minkur Fuglalifið hefur
látið á sjá eftir að minkurinn tók
sér bólfestu á Laugarnesinu.
DV-myndir Valli