Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2005, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDACUR 19. JÚLl2005
Fréttir lOV
Ljótasti
maður í heimi
Króatíski lögfræð-
ingurinn Emil Kacic
segist vera ljótasti
maður í heimi.
Hann segist hafa
reynt allt til að
finna sér konu. „Ég
hef sett upp alls
kyns auglýs-
ingar, en ekki
ein einasta
kona sem
ég hef
kynnst hefur vilj-
að giftast mér. Skýringin á
því hlýtur að vera sú að ég
er ljótasti maður í heimi,"
segir Emil. Hann hefúr
beðið fimm þúsund kvenna
en ekkert gengur. Hann er
vellauðugur lögfræðingur
en það virðist lítið hjálpa.
„Ást fæst ekki keypt fyrir fé,
a.m.k. ekki þegar maður er
með andlit eins og ég.“
Fríverslun
við Suður-
Kóreu
Fríverslunarsamningur
EFTA-ríkjanna og Suður-
Kóreu verður til þess að
tollar á helstu útflutnings-
vörum íslendinga falla
niður. Samningaviðræður
hafa gengið hratt iyrir sig
en ákveðið var að ganga
til viðræðna fyrir um hálfu
ári. Viðskiptaskrifstofa
hyggur á frekari fríverslun
á þessu svæði og em
Taíland, Indónesía, Kína
og Japan þar á lista. Gert
er ráð fyrir að samningur-
inn verði undirritaður í
nóvember og taki þá gildi.
Ekkertfang-
elsi eftir kyn-
skiptiaðgerð
Sretko Ickov var á sínum
tíma handtekinn fyrir
þjófnað. Sretko var þá karl-
maður. Þegar hann mætti
fyrir rétti ári seinna var
hann búinn að fara í kyn-
skiptiaaðgerð og bar nafnið
Albena Mihajlova. Málið
var fellt niður gegn henni.
Dómarinn sagði að Alben
væri ekki manneskjan sem
væri ákærð fyrir glæpinn og
því væri ekki hægt að setja
hana f fangelsi. Albena seg-
ist alltaf hafa verið kona
föst í líkama karlmanns.
Hún segist vera ástfangin
og ætíi sér að gifta sig á
næstunni.
Kynsvall
algengt
utandyra
„Fólk stoppar
stundum úti í veg-
kanti, á áningar-
stöðum eða í engj-
um og stundar
kynsvall," segir Eric
Droogh, framkvæmdastjóri
í einum þjóðgarðanna í
Hollandi. Þar í landi er nú
mikið um kynlíf utandyra
og hafa lögregla og þjóð-
garðsverðir viðurkennt
varnarleysi sitt í þessum
málum. Síðasta tilfelli sem
tilkynnt var um var svæsið.
Stór hópur fólks safnaðist
saman við ströndina við
Busaloo og horfði á tíu pör
eðla sig.
Lögreglan á Englandi réðst inn í bókabúð í Leeds. Þrír liryöjuyerkamáiifia
eru táMh^hafa sótt bókabúðina. Lögreglan á Englandi tylgdisV meö eii;um ,
1 -■rítuun-ii.m," . .. - - - ~—I ■ «' ■ ii - t ”1’ Wt; e • -;.v- &jjt.
Talið er að þrír sjálfsmorðsárásarmannanna sem stóðu fyrir
hryðjuverkunum í London hafi stundað sömu bókabúðina í
Leeds á Englandi. Þar munu þeir hafa lært að hata vestræn gildi.
Ungir og óharðnaðir drengir gátu áður sótt búðina og fengið
boðskap Islam beint í æð, þar sem meðal annars var brýnt fyrir
þeim að'forðast fíkniefni og glæpi. Eftir 11. september breyttist
boðskapurinn hinsvegar og varð að hatursáróðri gegn Vestur-
löndum.
Armear Ali, mágur Tafazil, sagði í
viðtali við The Sun að í fyrstu hafi
Tafazil verið friðelskandi en það hafi
breyst eftir árásimar á Bandaríkin.
„Hann varð fjarlægur og róttækur.
Hann fór að leyfa íslömskum fyrirlesur-
um að halda ræður í bókabúðinni. Þeir
töluðu mikið um hvemig vestrið væri
að eyðileggja fslam. Fyrir unga stráka
sem em utanveltu í samfélaginu getur
þetta verið mjög kröftugur boðskapur,"
sagði Ali. Þetta er ekki venjuleg bóka-
búð. Auk námskeiða og fyrirlestra bjóð-
ast eigendumir til að hjálpa fólki að
ættíeiða böm.
MI5 fylgdist með Khan
Breska leyniþjónustan MI5
fýlgdist með Mohammad Sidique
Khan, einum af hryðjuverkamönn-
unum. Þeir vom að rannsaka hugs-
anlega hryðjuverkaárás á nætur-
klúbb í London. Þeir töldu Khan þó
ekki hættulegan.
Bandaríska alríkislögreglan,
FBI, mun einnig hafa fylgst með
Lindsay Germaine sem er grunaður
um aðild að sprengjuárásinni.
Alríkis-lögreglumenn týndu hon-
um.
Hittu allir Al-Qaeda meðlimi í
Pakistan
Sjálfsmorðsárásarmennirnir þrír
eiga það allir sameiginlegt að hafa
nýlega farið til Karachi í suðurhluta
Pakistan. Tcdið er að þeir hafi allir
hitt meinta meðlimi Al-Qaeda. Eng-
um ættingjum mannanna þriggja
óraði fyrir því að mennimir ættu
þetta til. Khan var kennari og stuðn-
ingsfulltrúi, Shehzad Tanweer þótti
góður námsmaður og efhilegur í
íþróttum en reyndar var Hasib
Hussain talinn vera utanveltu í sam-
félaginu.
Einn þriggja í trúarlegan
skóla
Tanweer gekk í trúarlegan skóla
á meðan hann var í Pakistan. Þar
hitti hann fyrir meðlimi hryðju-
verkasamtaka þar í landi. Enn er
verið að rannsaka hversu mikil áhrif
heimsókn mannanna til Pakistan
hafði. Þó er vitað með vissu að þeir
„Það síðasta sem við
viljum eru rótækar
hreyfingar hér í
Leeds."
vom í landinu. Hasib Hussain fór til
Pakistan fyrir um ári á vegum sádí-
arabískrar ferðaskrifstofu. Hinir
tveir komu til Pakistan í gegnum
Tyrkland.
Bannaðir í moskum
Fram hefur komið að þremenn-
ingarnir hafi verið í banni í þremur
moskum í Leeds. Razaq Raj, með-
limur í félagi múslima í Leeds, segir
moskur ekki vera fyrir öfgafulla
árásarmenn. „Það síðasta sem við
viljum em róttækar hreyfingar hér í
Leeds," sagði Raj. Allar þrjár mosk-
umar sem þeim var bannað að
heimsækja vom mjög nálægt heim-
ili Tanweer.
Nýjasta Harry Potter bókin hefur slegið öll sölumet.
Harry Potter vinsælli en kvikmyndir
Nýjasta Harry Pott-
er-bókin, The Half-
Blood Prince, er vin-
sælli en helstu bíó-
myndimar í dag. Talið
er að bókin hafi nú þeg-
ar halað inn um 100
milljónum Bandaríkja-
dala, sem er meira erí
tvær vinsælustu bíó-
myndimar þar vestan-
hafs til samans. Á fyrsta
sólarhringnum sem bók-
in var í búðum seldust
sex milljón og níu hund-
mð þúsund eintök í
Bandaríkjunum. Jafrí-
gUdir það rúmlega 250
þúsund eintökum á klukku-
stund. Gamla metið átti síðasta
Harry Potter-bókin. Útgáfufélagið
sem gefur bókina út jók framboðið á
bókum um tæpar þrjár
mUljónir. Þegar síðasta
bókin kom út lentu
menn í því að bókin
seldist víða upp. í Bret-
landi jókst salan um 13
prósent frá fýrri bók og
var metið því bætt.
Þrátt fýrir að bókin
hafi farið í búðir um
miðnætti á laugar-
daginn er nú þegar
hægt að kaupa þær
notaðar á E-bay. Selj-
endurnir hafa barist í
gegnum þessar 600 blað-
síður á örskotsstundu og
vilja koma bókunum í
verð.
Bókin hefur fengið frábæra dóma
hjá öllum helstu blöðum og tímarit-
um í Bandaríkjunum. Margir telja
Til sölu á E-Bay Nú
þegar erhægt að kaupa
notaðar bækur á E-bay.
bókina besta verk J.K. Rawlings, höf- „Hann herðist. Hann er nú tílbúinn
undar bókarinnar. Hún segir Harry tU þess að slást. Hann sækist eftir
Potter nú vera tUbúinn í slaginn. heftid," segir Rawlings.