Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2005, Side 17
DV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 19.JÚLÍ2005 77
LANDSBANKADEILDIN
51 mark í
efstu deild
Grétar Hjartarson hefur skorað
51 mark í 90 leikjum sínum í
úrvalsdeild karla en hann lék
sinn fyrsta leik í efstu deild 1998.
Tímabil Grétars í efstu deild:
1998 Grindavík 9 leikir/5 mörk
1999 Grindavfk 17/10
2001 Grindavík 18/9
2002 Grindavík 18/13
2004 Grindavík 18/11
2005 KR10/3
* Var 2000 f atvinnumennsku í
Noregl (Lilleström) og var meldd-
ur sumarið 2003.
Skipting markanna:
Á heimavelli: 24
Á útivelli: 27
1 fyrri hálfleik: 24
1 seinni hálfleik: 27
1 fyrri umferð: 16
f seinni umferð: 35
Fyrsta mark f leik: 17
Sigurmörle 4
Þrennur: 3
Aðferðir:
Vinstri fótar skot: 2
Flægri fótar skot: 38
Skallamörk: 8
Mörk úr vítum: 3
Staðsetning:
Úr markteig: 7
Utan teigs: 13
Úr vítateig: 38
Mörk gegn einstökum liðum
Fram 9
(A 8
Keflavík 7
(BV 6
Þróttur 3
Þór Akureyri 3
Víkingur 3
Breiðablik 3
Fylkir 2
KA 2
KR 2
Leiftur 1
Valur 1
FH 1
Mörk á einstökum leikvöllum:
Grindavfkurvöllur (nýi) 17
Laugardalsvöllur 8
Keflavíkurvöllur 6
Grindavíkurvöllur (gamli) 6
Akureyrarvöllur 4
Akranesvöllur 3
KR-völlur 3
Kópavogsvöllur 2
Fylkisvöllur 1
Ólafsfjarðarvöllur 1
Grétar Hjartarson skoraði tvö
fyrstu mörkin sín í efstu deild
með vinstri fæti (sumarið 1998)
en hefur siðan ekki skorað mark
með vinstri fætinum. Frá þeim
tima hefur Grétar bætt við 49
mörkum, 41 með hægri (3 úr víti)
og 8 með skalla.
Grétar hefur skorað 11 af síðustu
27 mörkum sínum í efstu deild
með skotum fyrir utan vitateig.
Grétar skoraði 7 marka sinna
sumarið 2002 (af 13) fyrir utan
vítateig.
Grétar hefur skorað 8 mörk i 7
deildarleikjum sínum á Laugar-
dalsvellinum og hefur skorað í
öllum leikjunum nema einum. Sá
eini sem hefur haldið hreinu
gegn Grétari í Laugardalnum er
Fjalar Þorgeirsson sem varði
mark Fram gegn honum 9. júnl
2001. Grétar á eftir að fara einu
sinni til viðbótar á Laugardals-
völlinn I sumar til að mæta
einmitt Fjalari Þorgeirssyni og fé-
lögum hans I Þrótti.
Grétar skoraði aðeins 1 mark á
fyrstu 800 mínútum sínum f KR-
búningnum en skoraði sfðan tvö
mörk á 45 mínútum gegn Fram.
Markaskorarinn Grétar Ólafur Hjartarson tvöfaldaði í fyrrakvöld markaskorun
sumarsins í deildinni, en hann skoraði tvívegis fyrir KR gegn Fram. í hinum níu
leikjum sumarsins hafði hann skorað einungis eitt mark og voru því margir KR-
ingar sem fögnuðu því að markamaskínan Grétar væri loksins komin í gang.
Hefðum unnið
hvaða lið sem er
,Það standa allir heilshugar
á bak við Magga, enda er
hann toppþjálfari."
KR-ingar unnu sinn langstærsta sigur í sumar er þeir hreinlega
kjöldrógu lið Fram sem virtist algerlega heillum horfið. Grétar
Hjartarson skoraði tvö mörk í leiknum og var þungu fargi af
honum létt fyrir vikið.
laust við falldrauginn. „Við erum
ennþá í fallbaráttu og við verðum að
líta á hvern leik sem úrslitaleik," seg-
ir Grétar. Um eigin frammistöðu í
sumar segir hann að mörkin tvö í
gær hafi verið mikill léttir fyrir hann.
„Það er ekki ásættanlegt að skora
bara eitt mark í deildinni í níu leikj-
um - ég er til dæmis búinn að skora
þrjú mörk í bikarnum. En svona er
þetta bara, maður verður þess í stað
að reyna að vinna fyrir iiðið og reyna
að gleyma því að maður hefur ekki
verið að skora mörg mörk. Það tókst
í gær og nýtti ég bæði færin sem ég
fékk. Það var vissulega léttir eins og
það er alltaf. Maður fær á sig
ákveðna pressu ef maður skorar ekki
í nokkrum leikjum í röð.“
Grétar skoraði í leiknum á
sunnudag sitt 50. mark í efstu deild
og segir hann það vera ánægjulegan
áfanga. „Ég tel mig vera búinn að
sanna að ég geti vel spilað í þessari
deild og ég breytist ekki í lélegan
leikmann á nokkrum vikum. Ég vissi
afltaf að þetta væri að koma hjá mér.
Það er fínt að vera kominn með 50
mörk og ef ég verð hér á landi út fer-
ilinn þá set ég hiklaust stefnuna á
100 mörk.“
eirikurst@dv.is
*-,,j . *'!
Yfirburðir KR gegn Fram voru
miklir enda þeir síðamefndu mjög
slakir. Þegar Fram missti svo Dan-
ann Bo Henriksen út af með rautt
spjald datt allur botn úr leik liðsins
og KR-ingar gengu á lagið. Sigurvin
Ólafsson og Rógvi Jacobsen skoruðu
hin mörk KR í leiknum. „Það var frá-
bært að skora í gær og ennþá ljúfara
að vinna leikinn," sagði Grétar í
samtali við DV-sport í gær. „Þetta
var mjög mikilvægur sigur. Við spil-
uðum miklu betur og hleyptum
þeim ekkert inn í leikinn og þó svo
að Framarar hafi ekki verið upp á sitt
besta í gær hugsa ég að við hefðum
unnið hvaða lið sem er eins og við
spiluðum í gær.“
Allt undir gegn Val
Eftir tap KR fyrir Fylki á heima-
velli í síðustu umferð var ljóst að KR
hefði dottið í fallbaráttu deildarinn-
ar og leikurinn við Fram var því
botnslagur eins og þeir gerast hvað
bestir. „Við höfum verið að ræða
þetta innan liðsins undanfarnar vik-
ur og við teljum að í gær hafi nýtt
mót hafist og unnum við fyrsta leik-
inn. Þessi sigur færir liðinu aukið
sjálfstraust og við verðum að byggja
á þessum leik og halda svo ótrauðir
áfram. Nú er stefnan ein-
faldlega sett á sigur í næsta
leik sem er gegn Val í bik-
arnum. Við klárum hann og
þá tekur næsti leikur við.“
Grétar neitar því ekki að
ekkert lið nái að ógna FH og
Val í efstu sætum deildar-
innar og að eini sénsinn fyr-
ir hin lið deildarinnar, þar
með talið KR, á titli er í bik-
arkeppninni. „Það verður
afit lagt í leikinn gegn Val,"
sagði Grétar.
Maggi er toppþjálfari
Grétar segir að allt það
umtal sem hafi verið í
kringum liðið og ekki síst
þjálfara þess, Magnús
Gylfason, hafi verið erfitt í
upphafi móts. „En núna
erum við búnir að þjappa
okkur betur saman og ég
held að það hafi styrkt okk-
ur ef til lengri tíma er litið.
Það eru allir sem standa
heilshugar á bak við Magga
enda er hann toppþjálfari.
Stemmingin í liðinu er
mjög fi'n og við getum
núna leyft okkur að fagna
þessum sigri. En svo hefst
alvaran á ný.“
En þrátt fyrir sigurinn í
gær er lið KR síður en svo
rkGrétarspeuwii/iii—
rétar Ólafur Hjartarson leikur á Eggert
n og skorar fyrsta markið I leik Fram
mnudagskvöldið. DM-myndtrHan
i-d* \ i,, „V I-: