Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2005, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ2005
Sport DV
Mourinho
hrósar
Phillips
lose Monrinho, knattspymu-
stjóri Chelsea, er himhrlifandi yfir
að hafa fengið vængmanninn
unga, Shaun Wright-Pliillips, í
sínar raðir og segir hann einn
besta leikmarm Englands.
„Phillips er einn besti leikmaður
Englands í dag og hefur yfir öllimi
þeim hæfileikum að ráða sem nú-
tímaknattspyrnmnenn þurfa að
liíifa. Hann er fljótur, utsjónar-
samur og skapandi og á eftir að
reynast okkm mjög mikilvægur í
vetur. Við lentum í vandræðtmr
þegar Aijen Robben og Damien
Duft' meiddust í fyrra, en með til-
kornu Phillips er íjóst að viö höf-
um fjóra sterka kantmenn í hópn-
um og þ\i ættum \ið að vera
mjög vel settir á því sviði á næstu
leiktíð," sagði Mourinho.
Lyon setur
verðmiða á
Essien
Frönsku meistaramir í Lyon í
Frakklandi hafa sett verðmiða á
hmn óánægða miðjumann sinn,
Mickael Essien, og vilja fá
jafmnikið fyrir haim og Chelsea
ætlaði sér að bjóða í Steven Gerrr-
ard hjá Liverpool á sfnum tíma.
„Essien vill greinilega fara frá fé-
laginu, en við metum stöðuna
þannig að við eigum mun betri
möguleika á að vinna meistara-
deildina ef hann verður áfram hjá
okkur. Það er þó ekki gott að vera
með mann í hópnum sem vill
ekki leika með liðinu, en við árétt-
um að hann er ekki til sölu
nema fyrir rétt
verð og ef Chel- í
sea ætlar sér að fá 'SSLþjBl
verða þeir
bjóöa það sama og HHV 'm '
þeir vom tilbúinir
aö borga fyrir w
Gerrard, eða 32 * '
milljónir
punda." sagði
forseti Lyon.
Wenger fúll
út í Sevilla
Arsene Wenger, knattspymu-
stjóri Arsenal er æfúr út í forráða-
menn Seviila á Spáni, eftir að þeir
hótuðu að kæra Arsenal ti! Al-
þjóðaknattspyTnusambandsins
fyrir að eiga ólöglegar viðræður
\ið brasilíska framlierjann Julio
Baptista. Wenger hefur varið
gjörðir sínar og segist ekki með
óhreint mjöl f pokahominu. „Við
vorum búnir að ræða við Seviila,
en einhvern tíma verður inaður
auðvitað að ræða við ieikmann-
inn sjálfan," sagði Wenger. „Þegar
maður er að undirbúa tilboð f
leikmann verður maður auðvitað
aö ganga úr skugga run að hann
\ilji ganga til liðs við okkur, ann-
ars væri nú lítið vit í að eyða púðri
í aö tala við hann,“
sagði hann. 'I'alið er \
að Arsenal sé nú
konúð á
fremsta / '^wh .
hlunn 1 'í’* W
með aö flf j \
landaBaptista ,/ j >
og að veröið sé á . ' ” ^
svipuðu bili og L \
þeir fengu fyrir f I
Patrick Vieira á j_.
dögunmn, eða f
nálægt 14 j
milljónum
punda.
Landslið íslands í hestaíþróttum, sem fer á heimsmeistaramót íslenska hestsins 1
Svíþjóð um mánaðamótin, var kynnt í gær. Sigurður Sæmundsson, liðsstjóri lands-
liðsins, segir valið hafa verið erfitt, enda mikil gróska í hestaíþróttum hér á landi
sem og erlendis.
Landsllölö í hestaíþróttum
Þaö besta fra aaatiafi
Heimsmeistaramót íslenska
hestsins verður haldið í
Norrköping í Svíþjóð dagana
fyrsta til sjöunda ágúst, og er
búist við því að þúsundir fs-
lendinga muni leggja leið sína
til Svíþjóðar.
Sigurður Sæmundsson, liðsstjóri
íslenska landsliðsins, segir landsliðið
líklegt til afreka að þessu sinni því
margir frambærilegir knapar geta
blandað sér í baráttuna um heims-
meistaratitla. „Það hefur aldrei fyrr
verið meiri áhugi á hestaíþróttum á
íslandi. Það eru margir góðir knapar
sem hafa metnað til þess að standa
sig vel. Það var því erfitt verkefni að
velja í landsliðið, en ég er sannfærður
um að þetta lið á eftir að ná góðum
árangri. Ég telþetta vera eitt glæsileg-
asta landslið Islands sem farið hefur
á heimsmeistaramótið."
Þúsundir til Svíðþjóðar
Mikill fjöldi íslendinga fer á
heimsmeistaramót íslenska hestsins
og er talið líklegt að hátt í fimm þús-
und manns muni fara til Norrköping
í tengslum við mótið.
Sigurður Sæmundsson segir
heimsmeistaramótin vera skemmti-
legan viðburð. „Það er alveg yndisleg
stemming á þessum mótum. Þetta er
„Þarna fær fólk áhuga
á því að koma til ís-
lands tilþess að ferð-
ast um landið, og svo
auðvitað fær það
áhuga á íslenska hest-
inum. Þettaer ómet-
anleg kynning fyrir
land og þjóð."
eins konar útihátíð í bland við mikla
keppni. Áhugi á íslenska hestinum í
Svíþjóð hefur aukist mikið á síðustu
árum. Það er virkilega ánægjulegt
hvað áhuginn hefúr aukist víða í Evr-
ópu, en í fyrstu var þetta að mestu
bundið við Þýskaland. í allri Skandin-
avíu hefur eftirspurnin eftir íslenska
hestinum aukist mikið á síðustu
árum, og er heimsmeistaramót ís-
lenska hestsins stærsti markaðurinn
fyrir þá sem vilja kaupa sér íslenskan
hest.“
Sigurbjöm Bárðarson segir mikla
og góða landkynningu fara ffain á
heimsmeistaramótinu. „Þetta er
helsta mark-
ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ
Knapar sem tryggðu sér keppnisrétt
samkvæmt lykli
Hinrik Bragason á Sæla frá Skálakoti
Sigurður Sigurðarson á Silfurtoppi frá Lækjarmóti
Sigurbjörn Bárðarson á Sörla frá Dalbæ II
Styrmir Árnason á Hlyn frá Kjarnholtum I
Bergþór Eggertsson á Lótus frá Aldenghoor
Rúna Einarsdóttir Zingsheim á Nona frá Mosfelli
Vignir Jónasson á Hrannari frá Svaða-Kol-Kir
Ungmenni .
Sylvía Sigurbjörnsdóttir á Vin frá Minni-Vollum
Valdimar Bergstað á Feykivindi frá Svignaskarði
Sigurður Straumfjörð Pálsson á Prins frá Syðra-
Skörðugili
Munu verja heimsmeistaratitil
Jóhann Skúlason á Hvin frá Holtsmúla
Berglind Ragnarsdóttir á Krapa frá Akureyri
Sigurður V. Matthíasson á Reyni frá Hólshúsum
Kynbótahross valin í landsliðið
Marel frá Feti. Einkunn: 8,39. Fimm vetra stóð-
hestur. Knapi: Daníel Jónsson
Von frá Efri-Rauðalæk. Einkunn: 8,18. Fimm
vetra hryssa. Knapi: Baldvin Ari Guðlaugsson
Snorri frá Sauðanesi. Einkunn: 8,29 Sex vetra
stóðhestur. Knapi: Baldvin Ari Guðlaugsson
Mafstjarna frá Útnyrðingsstöðum. Einkunn:
8,45. Sex vetra hryssa. Knapl: Þórður Þorgeirs-
son
Númi frá Þóroddsstöðum. Einkunn: 8,66.5jo
vetra stóðhestur. Knapl: Daníel Jónsson
Hekla frá Oddgeirshólum. Einkunn: 8,40. Sjö
vetra hryssa. Knapi: Sigurður V. Matthfasson
aðsátak fyrir íslenska
hestinn sem fram fer
hverju sinni. Þama fær
fólk áhuga á því að koma
til íslands til þess að
ferðast um landið, og
svo auðvitað fær það
áhuga á íslenska hestin-
um. Þetta er ómetanleg
kynning fyrir land og þjóð,
og alla þá fjölmörgu aðila
sem starfa í ferðamennsk-
unni hér á fslandi."
Viðskipti fyrir tugi
milljóna
Utrás íslenska hests-
ins til Evrópu, og Banda-
ríkjanna líka, er töluvert
stór atvinnugrein hér á
landi. Á heimsmeistara-
mótinu eru mgir hesta
seldir fýrir tugi milljóna
króna, en verðið getur
farið allt upp í tíu millj-
ónir króna fyrir hvert
hross. „Það eru margir
sem fara á mótið með
hross sín og selja þau
þar á góðu verði. Eftir-
iw‘,le9Ur hÓpur Lan*lið íslands var
að ^ppam^ZdháZóZVhhrhJd1 um
S£3SBS*»ÍÍSSK
DV-mynd Stefán
spumin er mikil og svo er
þetta mikilvægasta markaðsátak sem
við fömm í hverju sinni. fslenski
hesturinn er auðveldari og þægilegri í
umgengni heldur en margar aðrar
skepnur og það heillar útlendinga al-
veg eins og okkur íslendinga," segir
Sigurður.
Ætla sér að ná góðum árangri
Landsliðsfólkið ætlar sér að ná
góðum árangri á mótinu í Svíþjóð, og
segir Sigurður Sæmundsson allar for-
sendur vera fýrir hendi til þess að
markmið keppenda náist á mótinu.
„Allir liðsmenn landsliðsins að þessu
sinni em reynslumiklir knapar sem
hafa unnið mörg mót í gegnum tíð-
ina. Ég bind vonir við að knapamir
toppi árangur sinn hingað til í Sví-
þjóð, og er alveg viss um að þeir hafi
getu til þess."
magnush@dvJs
Franski ökuþórinn Sébastien Loeb skráöi nafn sitt á spjöld sögunnar
Sigraði í sjöttu keppninni í röð
Sébastien Loeb, sem ekur á
Citroen, hefur borið höfuð og herð-
ar yfir aðra rallökumenn á þessu ári
og sigurinn í Argentínukappakstr-
inum á sunnudaginn var sá sjöundi
á keppnistímabilinu. Þótt tímabil-
inu sé ekki lokið varð sá franski
fyrsti maðurinn til að vinna sjö
keppnir á einu og sama tímabilinu
og skráði sig þar með rækilega á
spjöld sögunnar um helgina. Loeb
kom í mark tæplega hálfri mínútu á
undan næsta manni, Finnanum
Marcus Grönholm á Peugeot, þótt
hann hefði ekið varlega á sfðustu
sérleiðunum og tekið litlar áhættur
til að tapa ekki forskoti sínu. Þriðji
varð Norðmaðurinn Petter Solberg,
sem ekur á Subaru.
„Ég get ekki verið annað en
ánægður með árangurinn. Tvö met,
sex sigrar í röð og sjö í heildina í ár
er vonum framar hjá mér. Ég er líka
mjög ánægður með að hafa náð að
klára þessa keppni, því aðstæður
hér í Argentínu voru oft erfiðar.
Þessi sigur var tvímælalaust sá erf-
iðasti á tímabilinu, því við þurftum
að glíma við snjó og hálku," sagði
Loeb, sem lenti ekki aðeins í snjó og
hálku, heldur líka í árekstri við naut
sem villtist inn á brautina á einni
sérleiðinni. Bíll hans skemmdist
nokkuð og aflífa þurfti nautið, en
það kom ekki í veg fyrir að sá
franski sigraði enn eina ferðina.
„Þótt ég hefði þokkalega forystu
gat ég aldrei slakað neitt á og þurfti
að halda fullri einbeitingu, því þeg-
ar aðstæður eru eins og í þessari
keppni má ekkert út af bregða hjá
manni," sagði Loeb, sem hefur 27
stiga forystu á Petter Solberg þegar
sjö keppnir eru eftir á tímabilinu og
því virðist fátt geta komið í veg fyrir
sigur hans í ár. baldur@dvJs