Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2005, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ2005
Fjölskyldan DV
Fólínsýra góð fyrírfóstrið
Eina vítamínið sem mælt
er með að ailar bamshafandi
konur taki er fólínsýra. Æski-
legt er að taka 400
míkrógrömm eða 0,4 mg á
dag í 4 vikur fyrir með-
göngu og á meðgöngunni
sjáifri að minnsta kosti
fyrstu 12 vikumar.
Margar fæðutegundir inni-
halda fólínsým. Sérstaklega
grænmeti, ávejctir, baunir og
vítamínbætt morgunkom.
Fólínsýra er ekki skaðleg en
þó er ekki ástæða til að taka
meira en 400 míkrógrömm
á dag, nema læknir eða ljós-
móöir ráðleggi annað.
Sesar tekinn meö keisaraskuröl Þaö
þykir ekki llklegt.
Sesartekinn með
keisaraskurði
Samkvæmt gömlum sögnum er
hugtakið keisaraskurður eða ces-
arean eins og sagt er á ensku,
komið til af því að rómverski
keisarinn Júlíus Sesar var tekinn
með slikum skurði þegar hann
fæddist.
Vísbendingar eru þó um að móð-
ir hans hafi verið á lífi þegar
hann var fullorðinn. Þar sem nær
útilokað er talið að kona hefði
getað lifað keisaraskurð af á
þeim tímum er ósennilegt að
sagan um fæðingu Sesars stand-
ist. Líklegra er talið að nafn að-
gerðarinnar sé sprottið af því að
hún hafi fyrst verið framkvæmd
á dögum Júlíusar Sesars.
Elsta dæmið sem fundist hefur
um að kona hafi lifað keisara-
skurð af er frá Þýskalandi frá
árinu 1500. Þá á Jacob Nufer,
svínageldingamaður, að hafa
framkvæmt aðgerðina á konu
sinni eftir að fæðing barns þeirra
hafði dregist á langinn.
önnur heimild segir hins vegar
að fyrsta skrásetta heimildin um
keisaraskurð á lifandi konu sé frá
árinu 1610. Sú kona lést 25 dög-
um eftir uppskurðinn.
Mexikóskt
lasagna
Það er ekkert grín að elda ofan f
fjölskylduna, sérstaklega ef hún er
stór. Þessi fljódega uppskrift er fyrir
áttamanns.
Hráefni
500 gr fítulítiö nautahakk
Hálfur bolli saxaö sellerí
Hálfur bolli saxaður laukur
2 marðir hvitlauksgeirar
1/4 bolli saxaður jalapenjó-pipar
1 dós saxaðir niöursoðnir tómatar
1 dós afenchilada-sósu
20 sneiöar afosti
Util dós afkotasælu
1 hrærð eggjahvíta
6 meðalstórar tortiHur, skornar I þrennt
Saltog pipar
Aðferð:
Hakk, laukur, sellerí, hvítlaukur og
jalapenjó er steikt saman á pönnu.
Tómötum bætt við og 2/3 af
enchilada-sósunni. Kryddað meö pip-
ar og salti. Látiö malla í 10 mfnútur. A
meðan er 4 ostsneiðum, kotasælu og
eggjahvítunni blandað saman í hrær-
ara. Afgangurinn af enchilada-sós-
unni er hitaður á pönnu og tortilla-
bitarnir eru steiktir upp úr henni. Einn
þriðji af kjötsósunni er settur f eldfast
mót, helmingur af ostasósunni ofan á
og svo tortillur. Endurtekið þannig að
efsta lagið sé með kjötsósu og af-
gangur af ostsneiðum settur ofan á.
Bakað við 180"C í 25 mínútur.
Komdusæl
Valgerður!
Ég á í bölv-
uðu basli með
15 ára dóttur
mína sem er
frekar þroskuð eftir aldri. Nú
vill hún fara ein á útihátíð
um verslunarmanna-
helgina með vinum
sínum á sama
reki. Mér skilst
að þeir megi fara
en mér og pabba
hennar finnst hún
alltof ung. Það
er nánast
stríðsástand á
heimilinu.
Komdu sæl!
Vérslunarmannahelginni fylgir
oft mikil eftirvænting meðal ung-
linga og er hápunktur sumarsins í
huga margra. Það er hinsvegar ekki
að ástæðulausu sem margir foreldr-
ar kvíða verslunarmannahelginni.
Reglulega berast fréttir af nauðgun-
um, ofbeldi, drykkju og eiturlyfja-
neyslu á mótssvæðum um allt land.
Full ástæða er til að fara varlega.
Bannað innan sextán
Aðgangur að útihátíðum miðast
við árið sem unglingurinn verður
16 ára. Hafi dóttir þín orðið 15 ára í
ár kemur auðvitað ekki til greina
að hleypa henni einni á mót.
Fulltrúar Stígamóta benda á að á
útihátíðum eru unglingarnir að
heiman yfir nótt og þurfa því
ekki að mæta forráðamönnum
sínum í því ástandi sem þeir kunna
að vera að skemmtun lokinni. Við
þær aðstæður er hætta á að þeir
sleppi fram af sér beislinu og lendi í
vanda sem hvorki þeir né skipu-
leggjendur útihátíða ráða við.
Eg skil vel að þið viljið hafa hem-
il á dóttur ykkar. Löggjafinn ætlast
líka til að þið berið ábyrgð á henni
að minnsta kosti til 18 ára aldurs.
Eftir það ræður hún sér sjálf.
í sjálfu sér getið þið einfaldlega
bannað henni að fara, en það lagar
varla stríðsástandið á heimilinu.
Þess vegna þarf helst að flnna ein-
hverja lausn um þessa mestu ferða-
helgi ársins sem allir geta sætt sig
við. Ég held að það sé rétt að þú og
maðurinn þinn ræðið hvað þið
eruð tilbúin til að gera til að koma á
móts við dóttur ykkar.
Það mega allir fara!
Hvað er hæft í því að jafnaldrar
hennar og vinir hafi fengið leyfi til
að fara? A hverjum skilst þér það?
Dóttur þinni? Getur verið að ein-
beittur vilji hennar til að fara í úti-
legu valdi því að hún færi dálítið í
stílinn? Kannið þið það sjálf hjá for-
eldrum vina hennar. Ef til vill er
sama stríðsástandið á fleiri heimil-
um og foreldrarnir geta þá sameig-
inlega tekist á við vandamálið.
Kannski springur bólan um leið og
upp kemst að enginn eða fáir af
vinunum mega raunverulega fara.
Það myndi heldur betur létta á
þrýstingnum, ekki bara inni á
heimilinu, heldur hugsanlega í
vinahópnum líka.
Þið eruð að gera hárrétt með því
að spyrna við fótum. Nú þarf að
leiða dóttur ykkar og vinum hennar
fyrir sjónir að afstaða ykkar er skyn-
samleg og lögum samkvæm.
Forráðamenn taki saman
höndum
Ég þekki dæmi þess að foreldrar
hafi gripið til þess ráðs að skipu-
leggja utanlandsferðir með ung-
lingana sína á þessum tíma árs. Það
hentar auðvitað ekki öllum - og
ætti heldur ekki að vera þörf á því.
Þó gæti verið sniðugt að finna upp á
einhverju til að koma til móts við
dóttur ykkar og vini hennar með
Keisaraskurður eðlileg aðferð
Keisaraskurður er jafn eðlilegur
og venjuleg fæðing, þegar lífi og
heilbrigði bams og móður er hætta
búin. Til hans er aldrei gripið nema
ástæða sé til. Það er alger misskiln-
ingur að hafi keisaraskurði einu
sixmi verið beitt, verði að beita
honum framvegis.
Við keisaraskurð er annaðhvort
skorið langsum frá lífbeininu að
nafla eða þvert yfir kviðinn rétt fyr-
ir ofan lífbeinið, sá skuröur er
stundum kallaður bikiní-skurður.
Legið er skorið upp fljótt og örugg-
lega og það líða ekki nema nokkrar
mínútur frá deyfingu þar til bamið
er komið í heiminn.
Núorðið er oftast notuð mænu-
rótardeyfing við keisaraskurð.
Kosturinn við mænudeyfinguna er
sá aö móðirin er vakandi þegar
bamið fæðist og faðirinn eða ann-
ar aðstandandi getur verið við-
staddur meðan á aðgerðinni
stendur. Slíkt hefur mikið tilfinn-
ingagildi fyrir marga.
Það er líka kostur að
mænudeyfingin hefur lítil sem
engin áhrif á bamið. Svæfing er
notuð ef ekki vinnst tími til að
mænudeyfa og talið er að líf bams
eða móður sé í hættu.
Við svæfingu fer deyfilyfið að
hafa áhrif á bamið eftir smátíma.
Þess vegna verður að vinna hratt
og ömgglega til að ná baminu sem
fyrst.
Áhættan fyrir bam og móður er
lítil við keisaraskurð en hafa verð-
ur hugfast að þetta er skurðaðgerð.
Algengustu fylgikvillar eftir
keisaraskurði em sýking í
einhverjum hætti. Emð þið eða
hinir forráðamennirnir tilbúin til
að fara með þeim í útilegu eða á
mót og vera þeim til halds og
trausts allan tímann? Ákveða „úti-
vistartíma“ á svæðinu, hvenær eigi
að láta vita af sér, hvar megi tjalda
o.s.frv.? Þar með yrði þeim veitt
ákveðið frjálsræði og sýnt traust, en
innan ákveðins ramma. Eða er
hægt að skipuleggja með þeim
samkvæmi heima fyrir og grilla
handa öllum og leyfa þeim að ráða
uppskriftinni o.s.frv.
Útilegur með börnum sínum og
unglingum geta verið ánægjulegt
og kærkomið tækifæri til að kynn-
ast þeim og vinum þeirra undir
öðrum kringumstæðum en venju-
lega. Það þarf ekki að taka fram hve
miklu skemmtilegra það er en að
þurfa að takast á við afleiðingar of-
beldis eða vímuefnanotkunar sem
kunna að setja mark sitt á fólk fyrir
lífstíð.
Verið dóttur ykkar innan handar
en búið ykkur undir svefnlausar
nætur.
Mig grunar að hún og vinir
hennar hafi betra úthald en þið.
Góöa helgi!
Valgeröur Halldórsdóttir
félagsráögjaE
skurðsárinu,
blöðrubólga og móðurlífssýking.
Alvarlegir fylgikvillar eru sjaldgæfir
hér á landi.
i