Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2005, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ2005
Fréttir DV
Bergljót Davlðsdóttir
skrifarum dýrin
sln og annarra á
mánudögum IDV.
Kong fyrir orkuríka
unaa
KONG heitir þetta leikfang og vísast eiga
það einhverjir. En þeir sem ekki eiga svona
KONG ættu að fá sér það sem fyrst. Það er
hægt að panta á netinu en slóðin er:
http://www.kongcompany.com. Þeir sem
notað hafa þetta leikfang vita hvað það er
gott fyrir hundana. Það þreytir þá ótrúiega
mikið að fást við að ná úr því góðgætinu
sem sett er í það, en það má vera
hvað sem er. Einkum er það fínt
fyrir orkumikla og órólega hunda en þeir geta dundað lengi við
að ná út úr því namminu en þeir þegja að minnsta kosti á meðan
og eru ekki að gera neitt af sér. i Tokyo í Hafnarfirði er til eftir-
Ifking af KONG en það kostar þar 480 krónur og í Dýralandi í
Kringlunni fæst einnig eftirlfking sem kostar 680.
Hver munurinn er, ef hann er þá nokkur, er ekki
vitað.
Orðhe^pjjnr^|>áfagaukur kemur
Páfagaukur að nafni Paquita er kominn í frægra tölu í El Salvador eftir að
hafa aðstoðað lögregluna við að handtaka hóp þjófa. Einn af þjófunum stal
páfagauknum þegar hópurinn braust inn f hús í San Salvador. Þegar flótta-
bíllinn var stöðvaður af lögreglu vegna reglubundins eftirlits kallaði fuglinn
hástöfum: „Rán! Rán!“ Þótti þetta ögn grunsamlegt svo skottið var opnað og
viti menn, þar var ránsfengurinn. Heppilegt orðaval fuglisins orsakaðist af
því að eigandi hans hrópaði „rán“ þegar innbrotið átti sér stað. Fuglinn tók
upp á því að herma eftir og gerði góðverk í leiðinni.
Hundabúr - Hvo/pagríndur
Full búð af nýjum vörum.
30% afsláttur af öllu.
Tokyo gæludýravörur
Hjallahrauni 4 Op'ð: mán. til fös. 10-18
Hafnarfirði Lau. 10-16
S. 565-8444 Sun. 12-16
Æstur asni
gerður ótlægur
Asni nokkur sem kallast Aga
hefur tímabundið verið gerður
útlægur frá
hjörð sinni sem
staðsett er í
þjóðgarði í
Króatíu. Aga lét
ekki kvenkyns
meðlimi hjarð-
arinnar í friði
vegna kynferð-
islangana og var
í sífellu að
hoppa á þær.
Asnahjörðin
hefur hingað til verið mikið að-
dráttarafl fyrir ferðafólk og þeg-
ar kvartanir bárust þess efrtis að
Aga gerði ekkert annað en að
angra aðra asna tóku gæslu-
menn þjóðgarðsins málið í sínar
hendur. Aga var fluttur til eyði-
eyjunnar Dugi Otok og verður
hann þar þangað til hann róast
niður. Hann var nefnilega farinn
að hafa neikvæð áhrif á hjörðina
í heild því asnamir vom ekki
lengur vingjarnlegir við ferða-
fólk. Þeir vom of uppteknir af
því að fela sig fyrir Aga. Að sögn
gæslumanna virðist hjörðin vera
ánægð og afslöppuð eftir flutn-
ing ólátabelgsins.
mundir að koma sér á spjöld
sögunnar. Það vill nefnilega svo
til að það er gríðarleg eftirspurn
eftir málverkum apans, en hann
málar í frístundum sínum.
Verkin þykja afar vegleg og hafa
þau selst dýrum dómum. Til að
byrja með tók starfsfólk dýra-
garðsins vinsældir listaverk-
anna ekki alvarlega en það
breyttist þegar fólk tók upp á að
bjóða háar upphæðir fyrir mál-
verkin. Orðspor listhneigða
apans hefur meira að segja náð
út fyrir landsteina Ástralíu því
verk eftir hann vom seld á upp-
boði í London fyrir stuttu.
Sigríður Sólveigardóttir, eini ræktandi Chinese Crested-hunda á landinu, er með
Qóra hvolpa nú, þar af tvo loðna. Þeir eru fyrstu loðnu Crested-hvolparnir sem
fæðst hafa hér á landi. Sigríður hefur ekki ráðstafað þeim öllum, enda segist hún
vanda sig mjög við það og sé hrein martröð fyrir hvolpakaupendur.
—
„Eg féll
fyrst fyrir
tignarleika þessara hunda en
þegar ég kynntist þeim nánar
var ekki erfitt að falla fyrir
geðslagi og karakter þeirra,"
segir Sigríður Sólveigardóttir
sem rekur fyrirtæki Comfort
og er hundaeigendum vel
kunnug.
Sigríður er eini ræktandi Chinese
Crested-himda hér á landi og hefur
þegar fengið tvö got. Þessir hundar
em þeirra eiginleika að vera hár-
lausir, ef frá er talið fax og loðnir fæt-
ur. f fyrsta gotinu hennar fæddist þó
aðeins einn hvolpur, en fyrir tæpum
sex vikum bættist í hópinn svo um
munaði. Þá gaut Bleaze, ein tíka
hennar, fjómm hvolpum og þar af
Sigríður Sólveigardóttir ræktandí
með tfkina sína hana Bleaze og
hvolpana hennar Þeireru óvenjulegiren
glsesilegir þessir hundar, hárlausir á búkinn
og meö hár á höfði, rétt eins og viö.
tveir loðnir. Þeir er fyrstir sinnar teg-
undar á landinu. „Það var óskaplega
skemmtilegt að fá þessa fjóra hvolpa
sem allir þrífast mjög vel, en það
sem gerir þetta got enn ánægjulegra
er að fá þessa loðnu,“ segir hún
ánægð og glöð með öll litlu dýrin
sín.
Húð þeirra er mjúk og slétt
Sigríður segir að mikils misskiln-
ings gæti með þessa hunda, margir
haldi að það sé ógeðslegt að koma
við þá en auðvitað sé það ekki svo.
„Það er rétt eins og að koma við
venjulega húð, en hún er bæði mjúk
og slétt viðkomu. Fólk áttar sig á þvi
um leið og það kemur við þá,“ segir
hún og bætir við að það sé bónus að
þeir fara ekki úr hárum svo neinu
nemi eðli málsins samkvæmt.
Sigríður segir Chinese-hundana
mikla vini vina sinna, afar hús-
Tveir loðnir og tveir án hára Þessir loðnu
eru þeir fyrstu sinnar tegundar á landinu
Pósað fyrir Ijósmyndarann Er
hægt aö hugsa sér eitthvað æö-
isiegra en sex vikna hvolpa?
„Eg er martröð
hvolpakaupenda
enda spyr ég ótrúleg-
ustu spurninga. Mér
er hreint ekki sama
hvertþeir fara og vil
velja heimili fyrir þá
eins vel og ég get."
bóndaholla, trausta og trúa. „Þeir
eru einkar harðgerðir og þurfa ekki
föt til að vera í úti. Vissulega klæði ég
þá á veturna en ekki ef þeir fara rétt
út til að pissa. Á sumrin verður húð
þeirra dökk, rétt eins og okkar af sól-
inni en lýsist á veturna.
Nú þarf Sigríður að fara að huga
að heimilum fyrir hvolpana en það
er mikill vandi. „Ég er martröð
hvolpakaupenda enda spyr ég
ótrúlegustu spurninga. Mér er
hreint ekki sama hvert þeir fara og
vil velja heimili fyrir þá eins vel og
ég get,“ segir hún og bætir við að
það skipti mestu að hvolparnir fái
góð heimili.
Tignarlegar og glæsilegar
hreyfingar
„Crested-hundar eru varir um sig
og vaða ekki að ókunnugum. Það
þýðir ekki að ala þá upp með hörku
enda þarf ekki slfkt og þeir gelta til
að mynda sama og ekki neitt,“ segir
Sigríður ánægð með hópinn sinn, en
hún á þrjá fullorðna hunda auk
hvolpanna. í gær komu svo til
landsins tvær tíkur frá Frakklandi
sem munu eiga framtíðarheimili hjá
Sigríði f sveitinni á Kjalarnesi.
bergljot@dv.is
Mér þótti sorglegt, í fríi vestur á fjörð-
um, að lesa frétt á baksiðu m(ns eigin
blaðs í fyrri viku. Þar var rætt við
þekkta drykkjukonu, sem oft hefur
komist (kast við lögin, um týndan
hund hennar.Kona þessi hafði verið
við drykkju á bar með hundinn (búri
en tapað honum. (þynnkunni hafði
hún samband við DV sem birti frétt
um hvarf hundsins.
Mér finnst það sorglegra en nokkrum
tárum taki að vita til þess að drykkju-
fólk, sem ekki getur einu sinni borið
Skoðun Beggu
ábyrgð á sjálfu sér, skuli án allra vand-
kvæða komast yfir hund og vera síðan
með hann á þvælingi milli bara.Og ég
spyr: Hver hugsar um þennan blessaða
hund þegar eigandi hans gleymir sér á
drykkjutúrum hér og þar um landið?
Ég hef það fyrir satt, en sel það ekki
dýrara en ég keypti það,að þessi kona
hafi labbað sér upp að Dalsmynni og
valið sér hund, skrifað undir eitthvað
plagg og gengið út með lítinn hvolp.
Þar á bæ er nefnilega aðeins
horft á peninga eða skuldaviður-
kenningu og þeir sem þangað fara
til hvolpakaupa fara yfirleitt ekki út án
hvolps. Heimilisfólkið þar skiptir sér
ekki af né hugleiðir hvemig fólk það er
sem kaupir af þv( lifandi dýr.
Ég get ekki annað en harmað hversu
sorglega Ktið eftirlit er hér á landi með
fólki sem misbýður dýrunum sínum.
Hér á landi vantar allt eftirlit. í besta
falli eru dýr tekin af fólki, send að Leir-
um eða (Kattholt. Ef viðkomandi sækir
(að fá dýrið aftur, þá fær
hann það nær undantekn-
ingarlaust. Punktur og sama
sagan endurtekur sig, það er að
segja ef dýrið lifir áfram við þær að-
stæður sem þessar manneskjur bjóða
þv(. Það er kominn tími til að dýra-
verndarlög verði endurskoðuð og þau
endurbætt. Ég vil sjá virkt eftirlit, en
best af öllu væri að hér væri starfandi
dýralögga sem hægt væri að kalla til ef
grunur leikur á að dýr búi við slæman
aðbúnað og illa meðferð.