Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2005, Qupperneq 26
I
26 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ2005
Sviðsljós 0V
Sammi í Jagúar Reyndi að
lokka til sín dansmeyjarnar
„Ég sé að ég verð að koma sex sinnum á ári til íslands," sagði Snoop
Dogg við áheyrendur í vel pakkaðri Egilshöll á sunnudagskvöldið.
Stemningin á tónleikunum var í einu orði sagt mögnuð. Nánast hver
einasti hinna 7.000 tónleikagesta sem voru mættir tii að hlusta á Snoop
veifaði höndum, klappaði og söng með og rapparinn stjórnaði mann-
skapnum af mikilli færni og sá til þess að stemningin fór stigvaxandi í
þann einn og hálfan tíma sem hann var á sviðinu.
Um upphitun sáu Forgotten Lores, sem ég missti því miður af,
Hjálmar og Hæsta hendin. Hjálmar tók upphitunarhlutverkið alvarlega
og var eiginlega stórsveitin Hjálmar þetta kvöld. Hún var skipuð 9
manns, þar á meðal voru þrír blásarar. Þeir byrjuðu á dúndurútgáfu af
Bréfinu og héldu góðu reggígrúvi út sitt sett. Hæsta hendin mætti líka
með ýmsa gesti á sviðið, þar á meðal voru að mér sýndist Sesar A, Bent
og Dóri DNA. Þeir tóku hittara eins og Kanamellu, Westur og Botninn
upp og stóðu sig ágætíega þó að það hafi heyrst illa í Erpi framan af.
Snoop byrjaði sína dagskrá með því að sýna áhorfendum mynd-
bandið Corleones Revenge á skjám sem komið hafði verið fýrir sitt
hvoru megin við sviðið. Þetta er lítil glæpasaga sem byijar á því að
Snoop er kominn upp í rúm með tveimur berbrjósta yngismeyjum og
endar með skotbardaga. Áhorfendur glottu sumir út í annað þegar
myndin rúllaði af stað: „Feministarnir ættu að sjá þetta!“ Áhorfendur í
Egilshöllinni voru annars margir í yngri kantinum og unglingsstelpur
sérstaklega áberandi. Heilu hjarðirnar af þeim og virtust skemmta sér
konunglega. Þegar myndinni lauk mættí Snoop sjálfur á sviðið ásamt
hljómsveitinni sinni Snoopedelics og byrjaði á gamla eðalstykkinu
Murder Was The Case. Svo kom P.I.M.P., lagið sem hann gerði með 50
Cent og þá Gin & Juice. Snoop náði strax upp góðri stemningu í saln-
um og hún átti eftir að stigmagnast eftir þvi sem það leið á tónleikana.
Dagskráin hjá Snoop var að stærstum hluta byggð upp á smellum
frá fyrri hluta ferilsins; lögum eins og Snoops Upside Your Head, The
Shiznit, Lodi Dodi, Serial Killa og lagið sem gerði hann að stjörnu: Who
Am I (Whats My Name).
Á milli laga kom stundum DJ Eaaasy Dick frá Wballs FM 187,4 á
skjáinn umvafinn gellum. Hann gerði sitt til að magna upp stemning-
una og lét áhorfendur kalla nafn Snoop Dogg í sífellu. Það var reyndar
þema út tónleikana. Snoop virðist fá mikið út úr því að heyra mann-
fjöldann hrópa nafnið hans og hann er sérstaklega fær í því að finna
nýjar leiðir tU þess að láta það eftir sér. Snoop tók líka 2 Of Amerikas
Most Wanted og tileinkaði það 2Pac við mikinn fögnuð áheyrenda og
svo tók hann auðvitað smellina tvo af nýju plötunni, Signs og Drop It
Like It’s Hot.
Undir lokin var þetta mest orðið hópsöngur. Snoop lét áhorfendur
hrópa og syngja nafnið hans, en líka „Iceland Is The Best", „Love" og
„Peace" og þeir hlýddu honum allir sem einn með bros á vör. Mögnuð
múgæsing.
A heildina litið voru þetta fi'nir tónleikar. Stemningin var ótrúleg og
áhorfendur voru greinilega að skemmta sér. Það eina sem pirraði mig
var hljómburðurinn, en hann var á köflum hræðilegur. Snoop var
þarna mættur með fullskipaða hljómsveit sem sýndi oft fín tilþrif (til
dæmis í Drop It Like It’s Hot), en
I það heföi bara verið svo miklu
I skemmtilegra að heyra gítarriffin
I og malið í syntunum almennilega.
I llápunktar; Gin & Juice, Snoops
s W.W W Upside Your I.ike It’s
I Ilot og Who Am I (Whats My
1 Name).
Trausti Júlíusson
væri ógeðsdrykkur eða ekki. Erpur sagðist frekar
drekka hland en amerískan bjór. Unnar Freyr í Hæstu
Hendinni hafði bara áhyggjur af einu og það var
hvort skórnir hans væru nógu hvítir.
Spennufall
Eftir spilamennskuna tíndust hljómsveitirnar inn
og mátti mæla spennufallið með reglustiku. Hjálmar
slógu í gegn og sögðu meðlimir hljómsveitarinnar
„The Snoopadelics" að eftir að hafa hlustað á þá hafi
þeim liðið eins og eftir messu. „Þetta var guðdóm-
legt," sögðu þeir. Meðlimir Hæstu Handarinnar og
fylgdarliðsins sem samanstóð af Rottweilerhundum
og fleirum voru ósáttir, því lítið sem ekkert heyrðist í
sumum hljóðnemum og svo var tími þeirra á sviðinu
styttur um tíu mínútur, þeim að óvörum. Allt í einu
varð allt vitíaust. Snoop Dogg sjálfur gekk niður gang-
inn í fylgd lífvarðasveitar og flissuðu rappararnir eins
og smástelpur þegar þeir sáu hann.
halldorh@dv.is
Spenningurinn var eins og í barnaafmæli. Það var
langþráður draumur hjá Forgotten Lores og Hæstu
Hendinni að geta spilað á sama sviði og Snoop Dogg.
Forgotten Lores og Hæsta Hendin deildu saman bún-
ingsklefa í Egilshöll. f búningskJefunum var ekkert,
bara tveir ísskápar troðfullir af bjór. Þetta var B-svæð-
ið sem upphitunarböndin voru á, A-svæðið var her-
tekið fyrir Snoop Dogg sjálfan. Það glytti í risavaxna
lífverði og gamla bissneskalla í fylgdarliði Snoops
Dogg en á milli mátti sjá gullfallegar dansmeyjar.
Ekkert sást til Snoops Dogg.
Hvítir strigaskór og Budweiser
Sammi í Jagúar, kynþokkafyllsti maður íslands,
spilaði með Hjálmum þetta kvöldið. Fyndið þótti að
sjá þegar hann stóð í dyragættinni á búningsherbergi
Hjálma og reyndi að lokka dansmeyjarnir inn tíl
þeirra. Gísli Galdur var öllu vanur og sallarólegur
baksviðs enda hefur hann spilað á stærri og merkari
tónleikum í tónleikaferð Quarashi í gegnum Banda-
ríkin. Erpur Eyvindarson gerði að gamni sínu og
mátti heyra hávær rifrildi um hvort að Budweiser
F L Class B sýnir
merki Forgotten
Lores.
Nóg af bjór Isskáparnir
voru troðfullir af veigum.
XXX Rottweiler Bent og
Erpur tóku þvl rólega.
Forgotten Lores Spenntir
með Robba Chronic áður
en þeir stigu á svið.
Gfsli Galdur Þetta var
ekkert nýtt fyrir honum.
Það voru fjölmargir sem brun-
uðu beint á skemmtistaðinn Rex
eftir Snoop Dogg-tónleikana en
þar var haldið eftirpartí. Barinn
stóð öllum opinn og ekkert þurfti
að borga fyrir drykkina. Kampavín
var á borðum og smáveitingar og
var margt um manninn. Meðal
gesta voru Björgúlfur Thor, Beta
Rokk, Gael Garcia Bemal, Erpur
Eyvindarsson og félagar í jÆ
Rottweiler og Hæstu Hend- Æt
inni, Nína Björk Gunnars- JR
dóttir, Robbi Chronic, Dj isl
_____________________I
Þorsteinn Lár skólar
Deluxe frænda sinn I
málunum.
Stemmning í sturtunni
UnnarFreyr þrífurskóinn
fimlega.
Beta Rokk var
mættáRex.
Baksviðs á Snoop Dogg
Rappararmr
Snoop Dogg
Egilshöll 17.júli2005
★★★★☆
Tónleikar
V-Jf 7aa. v>\ í % t ng ■
fin * 1
V