Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2005, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ2005
Menning DV
Þegar skuggarnir
skerpast
Ingibjörg M. Alfreðsdóttir
Útgefið afhöfundi 2005
Leiklist
Svikul og
eyðandiást
Þegar skuggamir skerpast er
fyrsta ljóðabók Ingibjargar M. Al-
freðsdóttur, en áður hafa birst eftir
hana ljóð í Tímariti Máls og menn-
ingar. Yrkisefrii Ingibjargar eru af
margvíslegum toga en þó eru fyrir-
ferðarmest þau ljóð sem endur-
spegla svikula eða eyðandi ást.
Stundum ávarpar Ijóðmælandi
þann svikula beint og í þeim ljóðum
ríkir ákveðin beiskja og reiði, allt að
því hatur eins og í glöggt má sjá á
broti úr ljóðinu Faröu vel: Árin sem
eru farin, / skilja mig eftir / með
gneistandi augu. / Formælingar.
/Farðu vel. í öðrum Ijóðum er nátt-
úran látin endurspegla tilfinningar
ljóðmælanda, gjaman í formi sker-
andi dagsbirtu sem afhjúpar ein-
semd og örvæntingu. Fjöllin em há-
vær og klettarnir órólegir, vægðar-
laus birtan blindar og ljóðmælanda
finnst sem hvergi sé griðastað að
finna: Óvarin og óviðbúin bíð ég
sumarins I jaðri /skuggans. Vonast
enn einu sinni eftir / kraftaverki,
verndarhendi. í ljóðinu Hælbítar,
sem er að mínu mati eitt besta ljóð
bókarinnar, er dregin upp mynd af
háskalegum mönnum sem þekkjast
á hljómiausri röddinni og hlátrinum
sem minnir á hýenur. Þeir bíða fær-
is líkt og blóðsugur og þegar þeir
hafa gómað bráð sína er of seint að
bíta frá sér, eins og segir í ljóðinu.
Þannig birtist víða hættan sem fylgt
getur ástinni, eða fyrirheiti um ást,
svo og vonbrigði yfir brosmum
draumum en þó ljóðmælandi hafi
brennt sig þorir hann enn að elska,
ákallar ást sína og biður hana um
að fara um sig höndum líkt og segir
í ljóðinu Vorblót.
Þó sársauki, söknuður og horfin
ást séu áberandi í ljóðum Ingibjarg-
ar er líka ort um gleðina og fegurð-
ina t.d. í skemmtilegu og kám ljóði
sem fjallar um sólþyrsta stráka, bera
að ofan, ijúkandi malbik og ang-
andi gras. En eins og fyrr segir em
særindi, svik og einsemd meginstef
bókarinnar og segja má að sársauk-
inn ríst hæst í ljóðinu Snerting.
1
Þegar s'ársaukinn lokastinni,
jámaöur í þögn,
verður snerting aö dauöaklípum.
Allt verður Bmbulkalt,
líkaminn víravirki.
Einungis orö eöa bergmál
geta losaö um stjarfann
ogmiskunnað.
Ingibjörg M. Alfreðsdóttir yrkir
af fæmi og tilfinningu og þó yrkis-
efni og myndmál sé á stöku stað ei-
lítið laust í reipunum era þau fleiri
ljóðin sem hreyfa við lesandanum
og gefa þannig fyrirheit um frekari
landvinninga höfundar á lendum
ljóðsins.
Sigríöur Albertsdóttir
Uppselt á tónleika Emilíönu í Nasa
- Aukatónleikar í Fríkirkjunni
Það styttist (vikulanga heimsókn Emilíönu
Torrini hingað upp. Fyrir helgi seldist upp i
á tónleika hennar (Nasa þann 21 .júlf. Það
hefur þv( verið ákveðið að halda aukatón-
leika f Frfkirkjunni f Reykjavík þriðjudaginn
26. júll kl. 20.30 þegar hún snýr suður eftir
fjórðungstónleika hennar fýrir vestan, aust-
an og norðan.
Miðasala hefst f verslun 12Tóna og á
midi.is f dag kl. lO.Takmarkað magn miða
er f boði á þessa einstöku tónleika (Frfkirkj-
unni. Sala gengur vel á tónleika hennar á
landsbyggðinni, en þeir verða (beinu fram-
haldi af spili hennar og söng (Nasa, þann
22. júlf kl. 21 f Bolungarvfk - Vfkurbæ, 23.
júli kl. 20 á Borgarfirði eystri - Bræðslan,24.
júlfkl. 20.30 á Akureyri - Ketilhúsið. Forsala
aðgöngumiða er f fullum gangi á midi.is, 12
Tónum og BT á Akureyri.
Á tónleikum sfnum hér á landi verður Emil-
íana með efni af sfðustu plötu sinni (bland
við eldra efni og nýtt. Hún hefur verið á far-
aldsfæti sfðustu vikur. Hún kom fram á
Montraux- og Glastonbury-hátfðunum og
fer héðan heim til Bretlands. Hún mun spila
f Haldern f Þýskalandi f ágúst og á hátíð í
Inverness (Skotlandi (sfðari hluta mánað-
arins.
Bandið hennar er sett saman af fslenskum
og enskum kröftum, á óbó spilar Ólafur
Björn Ólafsson sem var (Unun sællar minn-
ingar og hefur starfað með ólfkustu bönd-
um hér á landi en þeir Steven Finn og
Cameron Miller munda gftara og taka í
fleiri hljóðfæri eftir þvf sem þörf krefur og
kostur er á.
Á morgun er Þorláksmessa á sumri og af því tilefni er efnt til tónleika Voces Thule
í Skálholti þar sem fluttir verða þættir úr Tíðum heilags Þorláks.
Messa Þorláks aö sumri
Sónghópurinn Voces Thule | ;
ásamt nýjum félögum sem
flytja hluta Þorlákstíða á ffi®
morgun i Skálholti.
Það er Þorláksmessa á sumri á
morgun og Sumartónleikar í Skálholti
bjóða annað kvöld upp á tónleika í
Skálholtskirkju. Þá flytur sönghópur-
inn Voces Thule þátt úr Þorlákstlðum,
nánar tiltekið fyrri aftansöng eða
Vesper I.
Þorlákstíðir era sóttar í fomt hand-
rit um messutónlist og geyma gögn
um tíðasöng á tíma Þorláks helga.
Sönghópurinn Voces Thule hefur
unnið að því hörðum höndum og
fögrum röddum að koma þessu mikil-
væga verki íslenskrar tónlistarsögu á
þann réttmæta stall sem tíðxmum ber
og eru þeir félagar að kynda upp fyrir
útgáfu verksins I heild á þessu hausti
sem telja verður mikil tíðindi.
Tónleikamir era samvinnuverkefhi
Sumartónleika og Voces Thule, en
hópurinn hyggst koma ffarn nokkram
sinnum á þessu ári, m.a. í öllum dóm-
kirkjum landsins, og flytja hluta úr
Þorlákstíðum í tilefni af því að heildar-
hljóðritun hópsins á tíðasöng heilags
Þorláks verður gefin út á haustmánuð-
um. Lokatónleikamir í röðinni verða á
Þorláksmessu á vetri, 23. desember.
Voces Thule skipa Eggert Pálsson,
Einar lóhannesson, Eiríkur Hreinn
Helgason, Guðlaugur Viktorsson,
Sigurður Halldórsson og Sverrir
Guðjónsson. Einnig munu sr. Krist-
ján Valur Ingólfsson og sr. Jakob Rol-
land syngja með. Tónleikamir eru
um 45 mínútur að lengd en á eftir
verður gengið til Oddsstofu í Skál-
holtsbúðum þar sem óformleg
kvöldvaka tekur við fyrir þá sem
vilja. Þar mun Voces Thule flytja
nokkur kvæði úr Sturlungu.
Aðgangur er ókeypis eins og að
öllum öðrum tónleikum hátíðarinn-
ar. Þetta verður í fyrsta sinn sem
bryddað er upp á þeirri nýlundu að
haífa tónleika á Sumartónleikum í
Skálholtskirkju í miðri viku. Það
mun vonandi gefa fleirum kost á að
sækja hátíðina og er góður valkostur
fyrir þá sem annað hvort búa eða
dvelja í nágrenninu eða hentar ekki
að koma á tónleika um helgar.
Dagskrá Sumartónleika í Skál-
holtskirkju má kynna sér í heild sinni
á
www.sumartonleikar.is
Benóny Ægisson segir að við getum skoðað okkur í skoplegu ljósi. Getum við það?
Hvernig líkar þér landið?
Benóný Ægisson lætur ekki
deigan síga. Hann flutti fyrir hálf-
um mánuði einleiki á Gullkistunni
á Laugarvatni og leikverk hans
How Do You Like Iceland? verður
frumsýnt á morgun kl. 17 á efri
hæð Kaffi Sólons. Verkið er á
ensku og er einkum ætlað ferða-
mönnum. Leikarar eru tveir, þau
Kolbrún Anna Björnsdóttir og
Darren Foreman, sem jafhframt er
leikstjóri.
í verkinu fer áhorfandinn í
bráðfyndna en fræðandi skemmti-
ferð í gegnum íslandssöguna að
fornu og nýju. Tveir leikarar túlka
á tæpum klukkutíma fjölmargar
persónur allt frá landnámi til vorra
daga og endurspegla flest það sem
gerir þjóðina einstaka.
Áhorfandinn kynnist Ingólfi
Amarsyni og þrælum hans, hetj-
unni Þorgeiri Hávarsyni, ferða-
bókarhöfundinum Dithmari
lygapytti Blefken, en einnig er
fjallað um núlifandi fólk eins og
Björk, John Travolta, afkomendur
víkinga og fornkonunga, fslands-
vini og fjandvini landsins.
Verkinu er lýst sem einhvers
konar blöndu af hefðbundnu leik-
verki, uppistandi og kabarett.
Uppsetning er einföld, leiktjöld
eru engin og hægt að sýna það
nánast hvar sem er. „í ráði er að
sýna það í hefðbundnu leikhúsi,
sem hádegis- eða kvöldverðarleik-
hús á veitingastöðum, sem kaffi-
leikhús, skemmtiatriði á ráðstefn-
um, hótelum eða á söfnum, utan-
húss sem innan eða jafnvel um
borð í skemmtiferðaskipi," segir í
fréttatilkynningu aðstandenda.
How do you like Iceland? verð-
ur fyrst í stað sýnt á Kaffi Sólon á
mánudögum og miðvikudögum
kl. 17 en upplýsingar um sýningar
og uppfærsluna má finna á vefn-
um http://this.is/great/
Benni utan I Grjótinu Þorum við að
spauga með sjálfstmynd okkar nema I
bjórauglýsingum?