Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2005, Síða 33
Menning DV
ÞRIÐJUDAGUR 7 9. JÚLl2005 33
Straxogseiðanditónarhljómuðu alveg þessa atburðarrás þó svo að nokkurs konar nýmóðins Ólíver hlutverk Anniear á frumsýningunni
Sólin speglast á haffletinum. Esjan
brosir og ísbúðareigendur dilla
sér. eldri konur tæta sig ur kápum
sínum og bera á armi. Það er einn
af þessum fallegu sólríku sunnu-
dögum og því einhvern veginn svo
mikil tímaskekkja að setjast inn í
dimman sal hins gamla Austurbæj-
arbíós til þess að innibyrða hefð-
bundinn amerískan söngleik.
Thelma Lind VVaage er ein af stúlk-
unum sem syngur, leikur og dansar
hlutverk Anniear, í baksýn situr leik
stjórinn, Viðar Eggertsson.
Andagift ehf. sýnir i Austurbæ:
Annie - litli munadarleysinginn.
Höfundur: Thomas Meehan, Tónlist:
Charles Strouse, Leikstjóri: Vidar
Eggertsson. Búningar: Elin Edda
Árnadóttir. Leikmynd: Þorvaldur
Böðvar Jónsson. Tónlistarstjori:
Óskar Einarsson. Þýðandi: Gisli Run
arJónsson. Danshöfundur: Astrós
Gunnarsdóttir. Sóngstjóri: Sverrir
Guðjónsson. Leikendur: Bryndis
í bláum sal þar sem helmingur
áhorfenda var búinn að koma sér
fyrir á einhvers konar bíósnjóþotum
var sumardagurinn í henni Reykja-
vík víðs íjarri.
Á sviðinu birtist ævintýraleg
mynd með skuggum hárra húsa í
teiknimyndalegri New York-borg. í
kojugarmi liggja börn og eins á dýn-
um á gólfinu og það er greinilegt að
hér eru glaðir fátæklingar á ferð.
Þessir litlu einstaklingar eru fjail-
myndarlegar stúlkur sem hafa það
eitt fyrir stafni að þrífa og þrífa þetta
munaðarleysingjahæli sem rekið er
af drykkfeldri einstæðri konu.
Bæta ímynd með munaðar-
leysingja
Þeir sem kunna sinn Dickens
muna nú líklega eftir herra Bumble
sem fór að stíga í vænginn við og síð-
ar giftist norninni sem sá um mun-
aðarlausu börnin í þeirri sögu. Hér
er sama minninu sveiflað inn í at-
burðarásina, þeir sem koma til hæl-
isins eru hreinlega í hættu því stýran
er svo ágeng við þá. Henni verður þó
ekki kápan úr því klæðinu.
Ailt í einu birtist ritari ríkasta
manns ríkisins og vill fá lánaðan
munaðarleysingja yfir jólin til þess
að bæta ímynd forstjóra síns.
Krakkagreyin sem eru jú svo ánægð
og hamingjusöm að fara í leikhús og
horfa á skemmtilega leikara syngja
og dansa í flottum búningum, kaupa
hún sé fáránleg og gangi bara hrein-
lega ekki upp. Milijónamæringurinn
varð svo voðalega hrifinn af Annie
sem var auðvitað munaðarleysing-
inn sem valinn var til jóladvalar hjá
honum, að hann vildi ólmur ætt-
leiða hana.
Finna foreldra!
Þegar milljónamærmgurinn
Daniel Oliver bað Annie um að
verða dóttir sína, sagði hún að það
væri ekki hægt vegna þess að for-
eldrar hennar væru rétt ókomnir að
sækja hana. Daníel var ekki seinn á
sér að hafa samband við leyniþjón-
ustuna. Hann virtist hafa jafn góð
tök á og Nixon forðum alla vega að
láta her manns leita að þessu fólki
sem síðan kom í ljós að var dáið.
Frú Karítas á munaðarleysingja-
hælinu átti bróður sem var nýslopp-
inn úr fangelsi. Bróðirinn og kærasta
hans eru auðvitað skúrkarnir sem
þykjast vera foreldrar hennar og
reyna að ná Annie til sín eftir að hún
er komin til milljónamæringsins.
Það náttúrulega gengur ekki. Daníel
milli frelsar hin bömin af munaðar-
leysingjahælinu og allt er yndislegt.
Gömul og stöðluð saga
Sagan er gömul og stöðluð. Eins
og hún var sögð hér virðist hún hafa
verið fremur aðlöguð að því að geta
bútað atriðin hratt niður í söng- og
danseiningar, en frumtextinn er
Twist, nema hér er munaðarleysing-
inn bara stúlka. Einhverra hluta
vegna er þessi stúlka, það er Annie,
með sjálfstraust eins og forseti
Bandaríkjanna og útgeislun eins
Metropolitan-óperusöngkona þó
svo að hún sé bara lítill vesalingur á
munaðarleysingjahæli með mörg-
um öðmm stúlkum. Hún hefur það
þó framyfir hinar að í henni blaktir
alltaf von um að hitta fyrir sína
raunverulegu foreldra.
Að sætta sig ekki við...
Er það kjarninn í verkinu? Er það
þess vegna sem hún er öðm vísi en
hinar stúlkurnar á hælinu? Er það
vegna þess að hún hefur alltaf von,
en hinar em búnar að sætta sig við
örlög sin?
Kannski er óþarfi að vera að rýna
um of í innihaldið á léttmeti sem
þessu, en eitt er víst að það em
margir af þeim þakklátu og glöðu
áhorfendum sem sturta slíkum
spurningum yfir mömmu og pabba
að kvöldi dags eftir upplifun sem
þessa.
Þetta var upplifun
Það var gaman. Glettilega vel
leikið. Leikarar jafnt þeir ungu sem
reyndari vom jafnir, það var enginn
sem skar sig úr eins og gjarnan vill
verða þegar mikið er af bömum í
sýningum.
Sólveig Óskarsdóttir fór með
og hér er mikill boldangskvenmaður
á ferð með sterka útgeislun.
Búningar Elínar Eddu Árnadóttur
voru viðeigandi og smekklegir, Gógó
ritari, sem Bryndís Petra lék
áreynslulaust var einkar vel tilsniðin
í sínu búningagerfi.
Dansatriðin vom dillandi og sér-
staklega var skemmtilegt að fylgjast
með þjónustufólkinu í sínum dans-
söngva- og hlaupaatriðum heima
hjá hinum fullkomna milljónamær-
ingi sem hafði forseta Bandaríkj-
anna í vasanum.
Gísli Pétur flottur milli
Milljónamæringinn lék Gísli Pét-
ur Hinriksson með þægilegri nær-
vem og miklum styrk, einkum og sér
í lagi þegar hann sveiflaði þessari
stóm stelpu upp í fangið á sér bara
eins og hann væri með lítinn dún-
kodda.
Brynja Valdís Gísladóttir, sem fór
með hlutverk hinnar drykkfelldu
munaðarleysishælisstým var alveg
óborganleg og vonandi fá áhorfend-
ur tækifæri til þess að sjá hana í ein-
hverju burðarhiutverki von bráðar,
því það er ekki algengt að sjá unga
leikkonu sem er jafn víg á kroppinn
og sönginn og með húmor sem geis-
ist alveg fram í táneglur.
Strákur sem hundur
Það hefur tekist vel hjá leikstjór-
anum Viðari Eggertssyni að ná því
Petra Bragadóttir, Ingibjörg Stef-
ánsdóttir, Gísli Pétur Hinriksson
Bjarni Baldvinsson, Erlendur Eiriks-
son, Brynja Valdis Gisladóttir, Guð-
jón Þorsteinsson, Bjartmar Þórðar-
son og fleiri. Á frumsýningunni var
það Sólveig Óskarsdóttir sem fór
með hlutverk Annie en Lilja Björk
Jónsdóttir og Thelma Lind Waage
munu svo skiptast á að leika hana.
★ ★★★☆
Leiklist
besta úr leikumnum sem stóðu sig
allir mjög vel. Hnökrar á þessari sýn-
ingu em fyrst og fremst handritið
sem gengur einhvern veginn ekki
alveg upp. Það er stundum óskiljan-
legt hvemig framvindan á sér stað.
Kannski hefur verið nauðsynlegt að
skera mikið niður?
Þýðingin er frábær og orðatiltæki
skemmtileg. Öll ljótustu orðin hrjóta
af vömm frú Karítasar án þess að
vera neitt endilega svo ljót. Nei, það
er víst óhætt að mæla með þessari
sýningu fyrir litlar stelpur með
drauma um dansandi framtíð, og
strákar hafa líka skemmtan af eða
eins og einn sem ég spjallaði við,
sagði: „Hundurinn var langbestur
enda er það strákur sem leikur
hann.“
Elísabet Brekkan
Ötrás myndlistar styrkt
Kynningarmiðstöð (slenskrar myndlistar
eða CIA hefur úthlutað (fyrsta sinn styrkj-
um til verkefna.ferða og útgáfu. Kynningar-
miðstöðin hefur sett upp fagnefnd sem (
eiga sæti þau Dr.Christian Schoen for-
stöðumaður, Helgi Þorgils Friðjónsson
myndlistarmaður og Ólafur Kvaran for-
stöðumaður Listasafns (slands. Að auki
skipar svokallað fagráð tvo fulltrúa fyrir
hönd stjórnar sem hafa atkvæðarétt til
jafns við skipaða meðlimi, Ingólf Arnarson
myndlistarmann og Evu Heisler listfræðing.
Styrkirnir verða framvegis veittir tvisvar á
ári en aðalmarkmið CIA er að bæta alþjóð-
legt tengslanet og koma á samstarfi við
listamenn og stofnanir á erlendri grundu í
því skyni að auka hróður (slenskrar mynd-
listar.
(heild bárust 52 umsóknir og voru 9
styrkir eru veittir og eru allir að upphæð
200 þúsund krónur. KlinK og BanK fá styrk
vegna KlinK and BanK moves to Berlin, en
hópur listamanna mun á þeirra vegum
halda myndlistarsýningu og flytja uppá-
komur á Berliner Liste Airtfair í Berlín í
október. Myndhöggvarafélagið er styrkt
vegna Site Ations-verkefnis sem hefst (
haust og 8 (slenskir listamenn taka þátt (.
Það verður á Bretlandi, Lettlandi, Póllandi
og á Spáni. Það eru Margrét Blöndal og Ás-
mundur Ásmundsson sem sýna (Póllandi,
Erling Klingenberg og Olga Bergmann sem
sýna á (rlandi, Kristinn E. Hrafnsson sýnir í
Englandi og Valgerður Gunnlaugsdóttir í
Lettlandi. Hekla Dögg Jónsdóttir og Guð-
jón Ketilsson sýna svo á Spáni.Vorið 2006
eru erlendir þátttakendur Site Ations
væntanlegir með sýningar sínar hingað
til lands.
Steina Vasulka var styrkt vegna und-
irbúnings og gerðar verka sem sýnd
verða (October-gallery í London (
nóvember. Steina hefur verið búsett
í Bandaríkjunum frá árinu 1965 og
starfað við myndbandalistfrá
1970, en hún er einn frumkvöðla í
myndbandalist ásamt manni
s(num Woody Vasulka. Fyrir
sýninguna í October-gallery í
nóvember mun hún vinna
Steina Vasulka spilar á myndband Hún fær 200 þúsund krónur til aö undirbúa sýningu I
London en framlag þeirra Vasulka-hjóna til myndbandslistar frá slðari hluta sjöundaáratugsins,
þegar myndbandið var að verða til, er eitt afstóru leyndarmálunum I íslenskri myndlistarsögu.
framhald af verki sínum Fire sem
var framlag fslendinga til Fen-
eyja-tvíæringsins 1997, og Wa-
ter sem var nýlega frumsýnt (
Seoul (Kóreu.
Erla Haraldsdóttir var styrkt
vegna dvalar og sýningar í
Kiienstlerhaus Bethanien, í
Berlin en Eria starfarýmist f
Berlín eða Reykjavík. Erlu hef-
k ur boðist að dvelja (
Kunstlerhaus Bet-
hanien, þar sem
Ólöf Nordal Verður
með sýningu í haust og
hyggst taka saman hefti
með verkum slnum.
hún mun vinna að verkefn-
inu Here there and ev-
erywhere. Kíienstlerhaus Bet-
hanien er einstærsta og
virtasta alþjóðlega listamið-
stöð í Evrópu. Þar mun
Nína Magnúsdóttir,
stýran í KlinK og BanK
Framundan erþátttaka í
sýningu I Berlín.
Erla einnig halda sýningu.
Heimir Björgúlfsson er ungur
listamaður sem hefur undanfarin
ár starfað í Hollandi. Hann var
styrkturtil dvalar í alþjóðlegu
listamiðstöðinni Raid Project frá
júlf fram í september og halda
þar sýningu í tengslum við
dvölina.
Hildur Bjarnadóttir hefur
starfað mikið (Bandaríkjunum
frá því hún útskrifaðist frá ný-
listadeildinni (Pratt Institute (
New York. Hildur tekur þátt (
sýningu ÍWinnipeg í nóvember, heldur
einkasýningu (Boise Art Museum (Idahio (
nóvember og aðra einksýningu (Pulliam
Defenbaugh Gallery í Portland (janúar
2006.
Útgáfustyrk hlutu KlinK og BanK gallerí
vegna útgáfu á kynningarriti yfir sýningar
og starfsemi gallerísins sem litiö er á sem
lið i þv( að efla erlent samstarf og kynna
starfsemi gallerísins.
Ólöf Nordal fær styrk til útgáfu á kynn-
ingarriti um myndlist sína sem hún hyggst
ráðast (í tengslum við einkasýningu sem
framundan er í gallerfi 18 í september.
Cosmosis er samstarfsverkefni þeirra
Ómars Stefánssonar, Bjarna Þórarinssonar
og GuðmundarOdds Magnússonar.Guð-
mundur Oddur hefur gert myndblöndun á
verkum þeirra Ómars og Bjarna. Útgáfufýr-
irtæki (Frakklandi Ofr System hefur óskað
eftir því að fá bók með verkunum til út-
gáfu.CIAJS styrkir þann undirbúning.
CiA.IS úthlutar einnig svokölluðum
Skyndistyrkjum hverjum að hámarki kr
50000,- Þeir styrkir eru ætlaðir til verkefna
sem þurfa styttri undirbúningstima eða
koma upp með styttri fýrirvara.Hægt erað
sækja um þá hvenær sem er, eða þar til
sjóðurinn fyrir árið 2005 er tæmdur. Allar
upplýsingar má finna á www.cia.is