Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2005, Blaðsíða 39
DV SíBast en ekkí síst
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ2005 39
Síðast en ekki síst
Vonbrigði Ég vakna
ringlaður og illa sof-
inn og sakna Islands.
Ég, sem íslendingur, er vanur
einföldum smekk þegar kemur að
rúmfönrm. Gamla góða íslenska
sængin, sængurverið, lakið og
koddaverið eru jafnsjálfsagður part-
ur af íslenskri tilveru minni og dán-
arfregnir og jarðarfarir.
En tilvera mín ranghverfist þegar
ég fer til annara landa og gisti á þar-
lendum hótelum. Þar er sængin
jafnan víðsfjarri. í hennar stað er
manni boðið upp á Iak og yfir því
annað lak og yfir því ullarteppi. Yfir
ullarteppinu er svo rúmteppi. Kodd-
amir em Ifka einkennilegir, óvenju
langir með koddaveri sem er opið í
báða enda.
Lakið og teppið em svo fest niður
með rúmgaflinum og ef maður vill
ekki sofa í spennitreyju þarf maður
að berjast um á hæl og hnakka við
að losa þau. Þetta gerir það að verk-
um að þau sundrast hvert frá öðm
og nóttin fer í að finna út hvað hæfir
hverju. Stundum endar maður bara
með lakið yfir sér, þá getur manni
orðið of kalt. Eða maður hefur bara
ullarteppið yfir sér og þá verður
manni of heitt, auk þess sem ullar-
teppi eiga það til að stinga.
Um morguninn vaknar maður
ringlaður og illa sofinn og saknar ís-
lands, þar sem lífið er einfalt. Á ís-
landi er yfirleitt svo kalt að maður
þarf sæng. Ef manni verður of heitt
opnar maður gluggann. Áfram ís-
land.
Sigurjón Kjartansson á í
mestu vandræðum með að
sætta sig við rúmföt á erlend-
um hótelum. Hann kýs gömlu
góðu íslensku sængina. Hann
mótmælir harðlega.
Fyrstu viö-
brögð Vei um■
búiö rúm á er-
lendu hóteli.
Sigurjón
Kjartansson
skrifar IDV mánudaga,
þriöjudaga,
miðvikudaga og
fimmtudaga.
Ennþá allt (lagi Ég
horfi með tilhlökkun
til næturinnar I þessu
vel umbúna rúmi.
Rúmföt á erlendum hótelum
ji
mm i
mm filisg
CS/
á *
Veðrið fer batnandi.
Búast má við björtu og
þurru veðri víðast hvar í
dag. Hiti verður kannski
ekki hár. Rétt skríður yfir
tíu stig. Á morgun og á
fimmtudag er búist við
björtu og góðu
veðri þótt þoku
getur orðið vart
með ströndum.
Það hlýnar fram
eftirviku.
&
ev
&
J
Ý
12
36
28
19
29
'■rgun\
fmmmi
í?*^3
c3 /»-,
Jakob Bjarnar Grétarsson
• Flokkarnir eru nú
að púsla saman
mannskap fyrir
borgarstjórarkosn-
ingamar í vor. Hugs-
anlegir til að sækjast
eftir efsta sæti Sjálf-
stæðisflokksins fyrir
utan Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson em
þeir Gísli Marteinn Baldursson og
Guðlaugur Þór Þórðarson. Fleiri
kostir em þó f stöðunni. Júlíus Vífill
Ingvarsson hefur verið nefndur og
þá ekki síður Hanna Bima Krist-
jánsdóttir. Mikið viðtal var við
pg : ■ HönnuBirnuí
m Mogganum nýlega
og töldu menn til-
í efnið að hún ætlaði
A ~W sér að lýsa yfir því að
I hún vildi leiða list-
ann. Svo virðist sem
hún hafi á síðustu
stundu guggnað á yfirlýsingum þar
um...
# Annars hefur Vil-
hjálmur Þ. aldrei
verið fnskari en
einmitt um þessar
mundir og vandséð
hvernig nokkur á
möguleika í hann
sem stendur. Vilhjálmur mætti í
viðtal í laugardagsmorgunþætti Tal-
stöðvarinnar, gerði sér lítið fyrir og
söng Vert’ekki að horfa svona alltaf
á mig - tók jafnvel sjálfum Ragga
Bjama fram svo góður var söngur-
inn. Var hann af umsjónarmönnun-
um Eirfld Jónssyni og Reyni
Traustasyni hvattur til að taka lagið
í sjónvarpi. Láti hann verða af því sé
ekki einu sinni til umræðu hvort
einhver annar en
Vilhjálmur muni
leiða Sjálfstæðis-
menn til kosninga í
vor...
# DV sagði frá því
fyrir nokkru að þeir
hjá Tme North, sem annast um-
sýslu fyrir Clint Eastwood hér á
landi í tengslum við kvikmyndina
Feðranna fána, hefðu hringt á veit-
ingastaðinn Mekong í örvæntingar-
fullri leit að aukaleikurum af asísku
bergi brotna. Þar fannst einn Tæ-
lendingur - kokkurinn Jack. Hann
tók að sér að finna 20 karlmenn
asíska í útliti en sjálfur hafði hann
engan áhuga á að leggja fyrir sig
kvikmyndaleik. Lét sér reyndar fátt
um finnast, enda aldrei heyrt talað
um mann að nafni Clint
Eastwood...
• Ummæli Össurar
Skarphéðinssonar
um að óháðir og þá
Dagur B. Eggertsson
eigi leið að lista R-
listans hafa valdið
miklum usla þar innabúðar. Og í
Fréttablaðinu í gær var össur nán-
ast skotinn á flugi með fyrirsögn-
inni: Yfirlýsingin sögð heimskuleg.
Er þar einkum vitnað í orð Áma
Þórs Sigurðssonar en einnig Alfreð
Þorsteinsson og Stefán Jón Hafstein
- allt borgarfulltrúar sem eiga
nokkra hagsmuni að verja. En Öss-
uri og mönnum honum tengdir
finnst kúnstugt að
hinn ágæti blaða-
maður OddurÁst-
ráðsson skulu um
fjalla því móðir hans
er Svandís Svavars-
dóttir, dóttir Svavars
Gestssonar en hún
er einn riddara R-listans í viðræðu-
nefndinni...