Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2005, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2005, Side 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST2005 Sport DV Miklar vonir eru bundnar við Joe Cole í herbúðum Chelsea og enska landsliðsins þessa dagana, en þó er ekki langt síðan hann var talinn brothættur og óagaður leikmaður. „í desember síðast- liðnum var Joe Cole að hugsa um að yfirgefa Chelsea, nú er hann að hugsa um fasta sætið sitt í enska landsliðinu," sagði Jose Mo- urinho stoltur í nýlegu viðtali við breska fjölmiðla. „Hámarkinu var náð þegar Cole kom i inná á móti Liverpool og skoraði sigur- markið, en eftir leikinn gagnrýndi Jose Mourinho hann fyrir að hafa slakað á i varnarleiknum." landsliði Englands og gerir sér mikl- ar vonir um að gera góða hluti á HM í Þýskalandi næsta sumar. „Sven-Göran hefur hrósað okkur hjá Chelsea fyrir að gera góða hluti fyrir enska lands- jt&mm liðið með uppbyggingu jfjim sterkra enskra leik- manna hér hjá félag- r/M inu. Iiann segir / okkur stuðla að því / j/ ■ ■ að gera enska i. . landsliðið betra / '’Mt - og ég held að /j ' . -S;:' enginn ltafi /•'.•;■ ■ 'i/.SmMBy neytt hann Æ tii að Æf þessa *rjí ,v: leikkerfi ég nota, það má alltaf finna stað fyrir Cole. Hann getur spilað á miðri miðjunni, á vængjunum, eða þess vegna í framlínunni. Sama hvort við spilum 4-4-2 eða 4-3-3, hann leysir allar þessar stöður með sóma. Eg er meira að segja viss um að ef hann fengi rétta hvatningu, hefði hann sjálfstraust til að leika í markinu hjá okkur," sagði knatt- spyrnustjórinn. Gagnrýndur eftir sigurmark Fyrirliði Chelsea og félagi Coles, John Terry, hefur ekki farið varhluta af þroska hans og framförum. „Ég var alltaf hrifinn af brellun- um hans og mér duldust aldrei hæfi- leikar hans, en ég var ekki viss hvort hann næði einhvern tímann að sanna sig fyrir alvöru. Ég man eftir honum þegar hann var hjá West Ham. Þar lagði hann sig allan fram, en liðið féll samt í fyrstu deildina. Þegar hann kom svo til okkar átti hann erfitt uppdráttar í búningsher- berginu því Jose var alltaf að skamma hann fyrir að spila ekki nógu góðan vamarleik. Það náði há- marki þegar Cole kom inn á á móti Liverpool og skoraði sigurmarkið, en eftir leikinn gagnrýndi Jose hann fyrir að hafa slakað á í varn- arleiknum. Þá tók steininn úr og hann vildi fara frá Chelsea, en úr varð að hann skoðaði sjálfan sig og ákvað að berjast áfram. Við þurfum ekki annað , en að líta á hann í ^dag til að sjá að það hefur skilað sér fyrir hann, enda er hann orðinn fasta- maður í landsliðinu," sagði Terry. „Það hefur verið sérstaklega ánægjulegt að eiga þátt í þroska hans sem knattspyrnumanns, þó hann eigi auðvitað stærstan þáttinn í því sjálfur. Mér finnst gaman að fylgjast með þroska leikmanna og Joe hefur á skömmum tíma farið frá því að vera bara efnilegur, upp í að vera framúrskarandi leikmaður, frá því að vera viðkvæmur í það að vera sterkur, frá því að vera einhæfur og óagaður í það að vera sterkur alhliða leikmaður sem leikur kerfisbundinn fótbolta," sagði Mourinho, sem seg- ist ekki geta metið leikmenn eins og Cole til fjár vegna fjölhæfni hans á vellinum. Gæti staðið í markinu „Þegar ég tók við Chelsea sá eng- inn fyrir að Joe Cole myndi blómstra, en nú er skyndilega kom- in upp sú staða að enginn getur haldið aftur af þroska hans og hve hann hefur batnað sem leikmaður. Mér finnst það segja meira en mörg orð að við tókum varla eftir því þeg- ar Arjen Robben meiddist á síðustu leiktíð, því Cole ÆKKMéL lék svo vel í fjar- JK veru hans. Hann \ er ótrúlega flöl- í >4x hæfur og það er \ sama hvaða . 99 hluti. Hann sagði þetta vegna þess að hann veit það og finnur,“ sagði Jose Mourinho. Terry er einnig sannfærður um að ekkert nema góðir hlutir bíði Joes Cole þegar fram í sækir. „Margir leilönenn hefðu einfald- lega gefist upp ef þeir hefðu lent í því mótlæti sem hann lenti í á síð- asta vetri, en hann neitaði að gef- ast upp og einsetti sér að sýna að hann væri góður leikmaður. Það tókst honum svo sannarlega og ég held að í dag geti Joe Cole orð- ið eins góður knattspyrnumaður og hann kærir sig um,“ sagði fyr- irliðinn. batdur@dv.is Fastamaður í landsliðinu Framtíð Joes Cole virðist björt um þessar mundir og ljóst að hann hefur traust félaga sinna í liðinu, sem og þjálfara síns. Þeir eru þó ekki einu aðdáendur hans, því Sven-Gör- an Eriksson, landsliðsþjálfari Eng- lendinga, hefur einnig hrifist af hon- um. Cole er nú orðinn fastamaður í joe Cole Sýndi ótrúlegar framfarir með Chelsea á slðustu leiktíð og er svo sannarlega inni i framtíðaráætlunum Joses Mourmho. John Terry Er mjög ánægður með hugarfarið hjá Cole og segirþað smita út frá sér. fiTiWL /77/71 fjilPTiTi PTiWrPuiPwi TTPW fu PTTJTiiTl lljrMIJ 'ljlrw idlMLlB WJlMLiiMl ímmPlm Jose Mourinho kennir sjálfum sér um ófarir Chelsea gegn Wigan Þetta var of slæmt til að vera satt Jose Mourinho, stjóri Chelsea, viðurkenndi í gær að hann hefði ekki undirbúið lið sitt nægilega vel fyrir leikinn gegn Wigan á sunnudag, þar sem aðeins ótrúlegt einstaklings- framtak Hernans Crespo afstýrði hrapallegri byrjun meistaranna í tit- ilvörninni í ensku úrvalsdeildinni. „Lið Wigan kom vel undirbúið inn í leildnn og við vorum á sama hátt viðbúnir þeim. Það var ekkert í þeirra leik sem kom mér á óvart, en ég verð að viðurkenna að ég undir- bjó mína menn ekld nógu vel. Það er auðvelt að rífa upp stemminguna í liði Chelsea fyrir stórlefid og í slíkum tilfellum sjá leikmennirnir að mestu um það sjálfir. í tilfelli Wigan var það þó mitt að rífa liðið upp og ég gerði það ekki nógu vel. Með fullri virð- ingu fyrir Wigan, þá er það lið sem við eigum að valta yfir, en þeir sýndu svo sannarlega að þeir geta látið að sér kveða í þessari deild," sagði Portúgalinn og bætti við að hans menn yrðu að leika miklu betur ef þeir ætl- uðu sér sigur í næsta leik, sem er einmitt á móti Arsenal. „Wigan lék mjög vel og við vorum kannski eilítið heppnir að ná að vinna. Við verðum hinsvegar að leika miklu betur ef ekki á illa að fara fyrir okkur. Ef einhver hefði horft á þennan leik til að reyna að skoða hvernig kerfi við spiluðum, hefði það ekki tekist, því við spiluðum mjög óskipulega í leiknum. Þetta var of slæmt til að vera satt," sagði Mourinho. baldur@dv.is vfíTr.ö't' J°?,e /ourinho átti ekki orð yfir það hve illa hans menn léku á moti Wigan á sunnudag. „Efeinhver hefði horft á þennan leik til að reyna að skoða hvernig kerfi við spil- uðum, hefði það ekki tekist, því við spiluð- um mjög óskipulega í leiknum." I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.