Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2002, Blaðsíða 5

Ægir - 01.10.2002, Blaðsíða 5
Að duga eða drepast „Neyðin kennir naktri konu að spinna. Það hefur verið hert svo mikið að okkur að það var annað hvort að duga eða drepast. Við fundum að eignirnar okkar hrundu niður í verði og lifibrauðið var tekið undan plássunum með lögum frá Alþingi. Og þetta var gert þrátt fyrir að við eigum stjórnarskrárvarin atvinnuréttindi til fiskveiða langt aftur í aldir,“ segir Guðmundur Halldórsson, formaður Eldingar - félags smábátaeigenda á norðanverðum Vestfjörðum, í Ægisviðtalinu Færeyjar vænlegur markaður fyrir hraðfiskibáta Seigla ehf. í Reykjavík hefur smíðað og selt hraðfiskifbátinn Elinu C VN-88 til Christian Christiansen í Kollafirði í Færeyjum. Þetta er fyrsti hraðfiskibáturinn sem Seigla selur til Færeyja og er það mat stjórnenda Seiglu að um frekari viðskipti við Færeyinga verði að ræða. Heilsa sjómanna undir smásjánni Lovísa Ólafsdóttir hjá fyrirtækinu Solarplexus ehf. vinnur nú að athyglisverðri rannsókn á svefnvenjum og heilsu sjómanna - fyrst og fremst á sjómanna á frystitogurum. Nú liggja fyr- ir fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar og eru þær allrar athygli verðar. Rannsókn Lovísu mun þó ekki endanlega ljúka fyrr en í vor. Guðmundur Tulinius í Þýskalandi „Með nútíma samskiptatækni er heimurinn orðinn svo lítill að það er alveg sama hvar maður er staðsettur. Ég er alltaf annað slagið að vinna að verkefnum sem tengjast Íslandi,“ sagði Guðmundur Tulinius, skipa- verkfræðingur í Þýskalandi, í samtali við Ægi. Guðmundur kemur að ýmsum ráðgjafarverkefnum á þessu sviði, m.a. kom hann að sandblæstri og málun á Barða NK í Póllandi á dögunum. Guðmundur hefur komið við sögu í hérlendum skipaiðnaði, um tíma var hann yfirverkfræðingur hjá Slippstöðinni á Akureyri og framkvæmdastjóri þess fyrirtækis um tíma. Þá var um skeið framkvæmdastjóri MHF í Þýskalandi, sem Útgerðarfélag Akureyring átti stóran hlut í um tíma. Þorskurinn stendur fyrir sínu „Uppsjávarfiskurinn hefur staðið upp úr í veiðum og vinnslu, en á hinn bóginn finnst mér mjög athyglisvert að ennþá vegur þorskurinn gríðarlega þungt. Á síðasta ári vóg þorskurinn rúmlega 42% af heildarútflutningi sjávarafurða. Þetta er mjög athyglisvert að mínu mati þegar hafður er í huga sá mikli niðurskurður sem hefur orðið í aflaheimildum þorsks,“ segir Arnar Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka fiskvinnslustöðva, í viðtali við Ægi. Leggja til fjárhagslegan aðskilnað vinnslu og útgerðar „Meginmálið er í mínum huga að með fjárhagslegum aðskilnaði vinnslu og útgerðar verði mun eðlilegra starfsumhverfi í sjávarútveginum. Og ég bendi á í því sambandi að þessi hátt- ur hefur verið tekinn upp í t.d. Færeyjum og Danmörku,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson, alþingismaður, en hann hefur ásamt þremur þingmönnum stjórnarandstöðunnar lagt fram frumvarp á Alþingi um fjárhagslegan aðskilnað í rekstri útgerðar og fiskvinnslu. Í B L A Ð I N U Útgefandi: Athygli ehf. ISSN 0001-9038 Ritstjórn: Athygli ehf. Hafnarstræti 82, Akureyri Sími 461-5151 Bréfasími 461-5159 Ritstjóri: Jóhann Ólafur Halldórsson (ábm.) Auglýsingar: Athygli ehf. Suðurlandsbraut 14, Reykjavík, Sími 515-5200, Bréfasími 515-5201 Auglýsingastjóri: Inga Ágústsdóttir Sími 515-5206 GSM 898-8022 Hönnun & umbrot: Athygli ehf. Suðurlandsbraut 14, Reykjavík, Sími 515-5200, Bréfasími 515-5201 Prentun: Gutenberg ehf. Áskrift: Ársáskrift Ægis árið 2002 kostar 6600 kr. Áskriftarsímar 515-5200 & 515-5207 Forsíðumyndina tók Hreinn Magnússon - Eitt stopp af Guðmundi Halldórssyni, formanni Eldingar - fél- ags smábátaeigenda á norðanverðum Vestfjörðum. ÆGIR kemur út 11 sinnum á ári. Eftirprentun og ívitnun er heimil, sé heimildar getið. 24 11 12 15 17 32

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.