Ægir - 01.10.2002, Blaðsíða 37
37
Ö RY G G I S M Á L
Nortek ehf. veitir alhliða þjón-
ustu á sviði öryggismála. Fyrir-
tækið, sem var stofnað árið 1996,
er með starfsemi bæði á Akureyri
og í Reykjavík og hefur frá byrj-
un verið í forystu á sínu sviði og
annast ráðgjöf, hönnun, sölu,
uppsetningu og þjónustu á ör-
yggiskerfum. Um er að ræða að-
gangsstýrikerfi, brunaviðvörunar-
kerfi, myndavélakerfi, innbrota-
viðvörunarkerfi, neyðarljós og
neyðarljósakerfi og sjálfvirk
slökkvikerfi. Einnig býður Nor-
tek upp á snjallkortalausnir og
hleðslustöðvar.
„Við höfum að undanförnu ver-
ið að setja upp öryggiskerfi hjá
ýmsum fyrirtækjum og stofnun-
um, en sjávarútvegurinn er
ákveðinn markhópur hjá okkur
og við leggjum mikla áherslu á að
þjóna honum vel,” segir Björgvin
Tómasson, framkvæmdastjóri
Nortek og rafmagnstæknifræð-
ingur, í samtali við Ægi.
GSM-úthringibúnaður
Fyrir sjávarútveginn leggur Nor-
tek áherslu á sölu og þjónustu á
brunaviðvörunarkerfum í skip og
báta, einnig slökkvikerfi, mynda-
vélakerfi og svokallaðan GSM-út-
hringibúnað, norskt öryggiskerfi
sem hefur verið að ryðja sér til
rúms hér á landi. Þessi búnaður er
hugsaður sem ákveðinn öryggis-
ventill þegar skipin liggja í höfn,
ekki síst þegar vaktmenn skip-
anna eru að vakta fleiri en eitt
skip eða þurfa að bregða sér frá.
Kerfið er m.a. hægt að tengja við
t.d. brunaviðvörunarkerfið og
vélaviðvörunarkerfið um borð, ef
viðvaranir koma frá þessum kerf-
um lætur kerfið vita í gegnum
GSM-síma ef eitthvað óvænt ger-
ist um borð. Einnig er hægt að
tengja við kerfið boð frá
hreyfiskynjurum og hitaskynjur-
um.
Brunaviðvörunarkerfin
„Þegar kemur að brunaviðvörun-
arkerfunum í bátum og skipum
þarf að vanda valið á búnaði mjög
vel,” segir Björgvin. „Mjög marg-
ir sjómenn þekkja ónauðsynlegan
bjölluhljóm frá brunaviðvörunar-
kerfinu, þetta þarf ekki að vera
svona. Hægt er að fá brunaviðvör-
unarkerfi sem hafa þann mögu-
leika að hægt er að aðlaga þau
umhverfinu. Þetta gerir það að
verkum að bjöllur fara ekki í
gang nema að um eld eða bilun sé
að ræða. Okkar mat er að öll skip
sem eru með t.d. 20 reykskynjara
eða fleiri um borð ættu að vera
með svokölluð númerakerfi
(adressukerfi), þá er hver reyk-
skynjari með sitt eigið heimilis-
fang og númer. Í dag eru flest
skip og bátar með svokölluð rása-
kerfi, þessi kerfi eru mjög góð og
hafa staðið fyrir sínu en það er
ekki hægt að aðlaga þau umhverf-
inu um borð og þau gefa ekki
upp nákvæma staðsetningu á
brunaboði eða bilunarboði eins og
númeruðu kerfin gera. Eins og
áður sagði þarf að vanda valið og
gæta þess að brunaviðvörunar-
kerfin séu samþykkt af Siglinga-
stofnun og jafnvel hvort þau séu
með einhverjar erlendar viður-
kenningar (Marine samþykktir).”
Halónkerfin verði fjarlægð
fyrir lok næsta árs
Samkvæmt nýlega settri reglu-
gerð þarf að fjarlægja öll svoköll-
uð halón slökkvikerfi úr skipum
og bátum í síðasta lagi um ára-
mótin 2003-2004. Útgerðum er
þannig veitt eitt ár til þess að
skipta þessum kerfum út og taka
ný og umhverfisvænni kerfi um
borð. Ástæðan fyrir þessu er sú að
halón kerfin eru sögð hafa
ósóneyðandi áhrif og þau valdi
gróðurhúsaáhrifum. Björgvin hjá
Nortek segir hér um stórt mál að
ræða fyrir útgerðir og því sé rétt
að menn hugi að því fyrr en síðar
að panta ný kerfi þannig að minni
tíma en ella taki að skipta kerfun-
um út á næsta ári.
Tekur mið af reglum ESB
Í áðurnefndri reglugerð umhverf-
isráðuneytisins, sem tók gildi 25.
júlí sl., eru tekin upp ákvæði úr
reglugerð Evrópusambandsins
um ósóneyðandi efni. Þar kemur
fram að handslökkvitæki með
halón 1211 verða ekki leyfð eftir
1. janúar 2004 nema til bráða-
notkunar. Ekki verður leyfilegt að
fylla á halónkerfi um borð í skip-
um og bátum eftir 31. desember
nk., en heimilt að nota þau til
slökkvistarfa til ársloka 2003.
Fram kemur í reglugerðinni að
Siglingastofnun mun hafa eftirlit
með að ákvæðum hennar verði
fylgt um borð í fiskiskipum.
Björgvin Tómasson hjá Nortek
segir að í flestum allra nýjustu
fiskiskipunum séu svokölluð kol-
sýrukerfi (CO2 ) og mælir hann
með því að slík kerfi verði sett
um borð í þau skip þar sem þarf
að skipta út gömlum halónkerf-
um.
Nortek ehf. veitir alhliða þjónustu á sviði öryggismála:
Höfum lagt mikla áherslu
á sjávarútveginn
- segir Björgvin Tómasson, framkvæmdastjóri
Björgvin Tómasson,
framkvæmdastjóri
Nortek ehf.