Ægir - 01.10.2002, Blaðsíða 14
14
R A N N S Ó K N I R
Lovísu að nálgast eins og kostur
væri hvort samband væri á milli
svefnleysis og streituálags og
slysa um borð og almenns heilsu-
brests. „Nú þegar leiðir rann-
sóknin í ljós að menn fá almennt
meiri svefn á fyrri vaktinni en
þeirri seinni. Út frá þessari niður-
stöðu er fróðlegt að skoða hvenær
á sólarhringnum algengast er að
slys verði um borð í skipunum og
jafnframt hvort einhver munur er
á tíðni slysa eftir árstíðum.”
Lovísa segir að þeir sjómenn
sem tóku þátt í rannsókn hennar
kvarti almennt um þreytu og álag
á bak. „Það eru greinileg
álagseinkenni hjá mönnum, en
enginn leitar sér samt meðferðar,”
sagði Lovísa og bætir við að slá-
andi sé hversu hátt hlutfall sjó-
manna reyki.
Jákvæðar undirtektir
sjómanna
„Ég miða við að þessari rannsókn
ljúki í vor og þegar upp verði
staðið nái hún til átta til tíu tog-
ara. Rannsóknin tekur til sjó-
manna sem eru þrjár vikur eða
lengur úti á sjó í einu. Lykilatriði
til þess að fá marktækar niður-
stöður er að forsendur þátttak-
enda séu þær sömu varðandi lík-
amlegt álag og sálfélagslega þætti
o.fl.. Ég mun eftir áramótin fara
út á sjó um borð í þessi skip og
gera m.a. svefnmælingar á vett-
vangi, en einnig tel ég það nauð-
synlegan þátt til að geta betur
gert mér grein fyrir því sem fer
fram um borð og hvað það er sem
gefur starfinu gildi,” segir Lovísa.
Hún segir að sjómenn hafi al-
mennt tekið því mjög vel að taka
þátt í þessari rannsókn „og reynd-
ar var það nú svo að mér var tjáð,
áður en ég fór af stað, að ég væri
mjög bjartsýn að fara út í þetta
vegna þess hversu mörg atriði í
rannsókninni væru persónuleg.
Ég er mjög þakklát fyrir hve vel
menn tóku í að taka þátt í þessu
því þeir lögðu sig alla fram við að
ljá mér sem mestar upplýsingar
og þess vegna er ég nú þegar
komin með góðar og marktækar
niðurstöður sem hægt er að
byggja áfram á.”
Verkefnið nýtt á
jákvæðan hátt
Lovísa Ólafsdóttir, sem er að ætt
og uppruna frá Akranesi, segist
vissulega eiga rætur í sjómanna-
stétt. Þó svo hennar allra nánustu
séu ekki sjómenn þá er sérstak-
lega í föðurætt mikið af stýri-
mönnum og skipstjórum.
„Langafi minn var lengi vel til
sjós, ég hygg að hann hafi verið
með lengstan starfsaldur hjá Har-
aldi Böðvarssyni hf., og ungur
frændi minn er með skipstjóra-
réttindi og hefur starfað sem
stýrimaður. Sjómennskan er og
hefur því verið töluvert í kring-
um mig og hún hefur m.a. fyllt
mig stolti, enda er sjómennskan
og sjávarútvegurinn undirstaða
íslensks atvinnulífs.”
Lovísa segir að samgönguráðu-
neytið hafi gefið út að verkefni
hennar verði stutt til loka og því
sé von til þess að niðurstöður þess
verði nýttar til þess að gera úr-
bætur á þeim sviðum þar sem
þeirra sé þörf. „Ég vonast til þess
að verkefnið verði á síðari stigum
víkkað út sem Evrópuverkefni og
þannig verði horft til þess sem
við Íslendingar gerum varðandi
heilsu og öryggi sjómanna,” segir
Lovísa Ólafsdóttir.
22%
43%
49%
22%
27%
62%
46%
14%
8%
46%
16%
19%
19%
11%
27%
35%
24%
35%
0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70%
Verkjum frá augum
Verkjum frá höfði
Verkjum frá hálsi eða öxlum
Verkjum frá olnboga
Verkjum frá úlnlið um eða höndum
Verkjum frá baki
Verkjum frá fótum
Verkjum frá brjósti/hjarta
Verið óvenju andstuttur
Þreytutilfinningu
Magaverk
Þembu í maga
Svima
Lystaleysi
Þreytu eftir það sem á að
teljast nægur svefn
Svefnleysi
Kvíðaköst
Áhyggjur, dapurleiki
Hér voru þátttakendur spurðir um ýmis álagseinkenni. Eins og sjá má finna margir til
verkja út frá baki og þriðji hver þátttakandi telur sig finna fyrir áhyggjum og dapur-
leika.
• Frekar hátt hlutfall þeirra sem reykja
• Niðurstöður úr skrifstofuumhverfi sýna minna hlutfall
56%
44%
Já
Nei
Ég reyki
Drjúgur helmingur þátttakenda í rannsókn Lovísu reykir. Þetta er töluvert hærra hlut-
fall en ekki ósvipuð rannsókn hjá skrifstofufólki leiðir í ljós.
Ábyrgð á eigin heilsu
Álagseinkenni