Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2002, Blaðsíða 30

Ægir - 01.10.2002, Blaðsíða 30
30 F I S K M A R K A Ð I R „Við viljum fá ítar- legri lagaramma um starfsemi uppboðs- markaða, það sem til er eru lög frá 1989 um markaðina, sem rúm- ast á einu A4 blaði. Okkur þykir skrítið að ekki skuli vera til ákveðnari lagarammi um verslun og við- skipti með fisk, rétt eins og aðrar vörur,” segir Bjarni Áskelsson, starfsmaður Samtaka uppboðsmarkaða. Bjarni segist vænta úrbóta í þessum efnum. Þannig sé að störfum nefnd sem ætlað sé það hlutverk að endurskoða lög um uppboðsmarkaði og einnig sé að ljúka störfum átján manna nefnd sem hefur almennt verið að skoða stöðu fiskmarkaða, þ.m.t. starfskilyrði markaðanna. Margfalt verðmyndunarkerfi „Eins og staðan er í dag er langt frá því að fiskmarkaðarnir sitji við sama borð og aðrir í viðskiptum með fisk. Sjómenn og útvegs- menn semja um að það verð sem myndast á fiskmarkaði skuli not- að til uppgjörs. Önnur viðskipta- form eru margvísleg, t.d. bein viðskipti með eða án kvóta, verk- tökuviðskipti, gámaviðskipti og ýmis önnur viðskiptaform. Þess vegna er margfalt verðmyndunar- kerfi í gangi, okkar krafa til yfir- valda er einföld, við viljum að laga- og viðskiptaumhverfið geri sölu á fiskmarkaði aldrei síðri kost. Krafa fiskmarkaða hefur aldrei verið sú að skylda eigi út- gerðir til að selja afla á markaði, krafa okkar er að við einfaldlega sitjum við sama borð og aðrir,” segir Bjarni. Innan Samtaka uppboðsmark- aða eru sextán fyrirtæki, en þau eru starfandi á tæplega 30 stöðum á landinu. „Ég hygg að nálægt hundrað manns séu starfandi á sjálfum fiskmörkuðunum. Þar fyrir utan eru margir sem starfa við löndun, flutninga og margt fleira sem tengist fiskmörkuðun- um,” segir Bjarni. Minna magn en hærra meðalverð Bjarni segir að hér á landi sé það sama að gerast og víða erlendis, að magnið sem fer í gegnum fisk- markaði fari minnkandi. „Ég hef ekki séð allra nýjustu tölur, en ég hef trú á því að það sem af er þessu ári sé 12% samdráttur í magni og 7% samdráttur í verð- mætum af því sem fer í gegnum fiskmarkaði miðað við sama tíma í fyrra. Margar af útgerðum stóru línubátanna sem seldu afla sinn á mörkuðum eru hættar eða fyrir- tæki hafa sameinast og það hefur líka mikil áhrif að veiðar smábáta á ýsu og steinbít hafa verið settar í kvóta. Að því ógleymdu að hinn hefðbundni vertíðarfloti er nánast að hverfa. Hins vegar hefur verð fyrir fiskinn verið að hækka,” seg- ir Bjarni. Aðspurður um hvort von sé á frekari hækkun nefnir hann til samanburðar að verð á þorski á fiskmörkuðum í Dan- mörku sé töluvert mikið hærra en á mörkuðum hér heima og það sama megi reyndar segja um markaði í Bretlandi, það er þó háð stærðum og framboði. Varðandi nánustu framtíð segir Bjari merkja aukna spurn eftir kældum ferskum fiski inn á evr- ópska neytendamarkaðinn. „Ég tel því að við eigum góða mögu- leika. Með réttum vinnubrögðum og samstilltu átaki sjómanna, fiskmarkaða og fiskverkenda get- um við bæði aukið það magn sem fer um fiskmarkaðina og á sama tíma tryggt hæsta verð sem markaðurinn býður upp á á hverj- um tíma.” Gæðamálin tekin föstum tökum Eins og áður segir er Bjarni starfsmaður Samtaka uppboðs- markaða, en starfar ekki beint við fiskviðskiptin „á gólfinu” frá degi til dags. Hins vegar þekkir hann vel til þeirra mála því áður átti hann og rak Fiskmarkað Suður- lands í Þorlákshöfn, sem sl. vetur varð hluti af Fiskmarkaði Íslands. Meðal þess sem Samtök upp- boðsmarkaða láta til sín taka eru gæðamálin og fyrir dyrum stend- ur námskeið í samvinnu við Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins þar sem gæðamálin verða tekin fyrir. „Síðan förum við vonandi af stað áður en langt um líður með nýtt uppboðskerfi á internetinu. Það er því ýmislegt í gangi hjá okkur,” sagði Bjarni Áskelsson. Köllum eftir endurskoðun laga um uppboðsmarkaði - segir Bjarni Áskelsson hjá Samtökum uppboðsmarkaða Bjarni Áskelsson, starfsmaður Samtaka uppboðsmarkaða.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.