Ægir - 01.10.2002, Blaðsíða 36
36
Ö RY G G I S M Á L
Fyrirtækið „Viking björgunar-
búnaður“, sem er dótturfyrirtæki
alþjóðlega fyrirtækisins „Viking
Life Saving Equipment“, hóf
rekstur í júní sl. og annast það
m.a. sölu á vörum frá Viking.
Einnig sér fyrirtækið um lög-
bundna skoðun á björgunarbátum
í húsakynnum sínum við Hval-
eyrarbraut í Hafnarfirði.
Viking björgunarbátarnir hafa
lengi haft sterka stöðu á markaði
hér á landi og á henni byggir
stofnsetning þessa dótturfélags
Vikings. „Við festum kaup á
Gúmmíbátaþjónustunni í
Reykjavík, sem var stærsta fyrir-
tæki sinnar tegundar á landinu,
og nýverið festum við síðan kaup
á Gúmmíbátaþjónustunni í
Keflavík,” segir Einar Haralds-
son, framkvæmdastjóri Viking
björgunarbúnaðar.
Fullkomin skoðunarstöð
„Markmiðið með þessum kaupum
er að styrkja stöðu fyrirtækisins
og jafnframt að bæta skoðunar-
þjónustu á björgunarbátum.
Hérna erum við með mjög full-
komna skoðunarstöð fyrir björg-
unarbáta, þá fullkomnustu hér á
landi og þótt víða væri leitað,”
segir Einar. Hann segir að með
því að færa sölu á öryggis- og
björgunarvörum og skoðunarstöð
fyrir björgunarbáta á einn stað sé
mögulegt að þjónusta viðskipta-
vinina betur en áður. „Viking er
með mjög breiða vörulínu, en hér
á landi seljum við þær vörur frá
fyrirtækinu sem henta okkar
markaði,” segir Einar og rifjar
upp að Viking eigi sér meira en
fjögurra áratuga sögu og nú sé
fyrirtækið einn stærsti framleið-
andi björgunarbáta í heiminum.
„Þótt markaðurinn hér á Íslandi
sé ekki stór, þá hefur Viking sýnt
honum mikinn áhuga og stofn-
setning dótturfyrirtækis hér stað-
festir þann vilja Viking að þjóna
viðskiptavinum sínum á Íslandi
vel,” sagði Einar, en hjá Viking
björgunarbúnaði starfa átta
manns. „Við önnumst skoðun á
fleiri tegundum báta en björgun-
arbátum, t.d. opnum bátum.
Einnig skoðum við vesti vegna
farþegaflugs og björgunargalla
sem tengjast ýmiskonar sport-
mennsku, t.d. „River rafting”.
Lögum samkvæmt þarf að skoða
alla björgunarbáta á hverju ári, en
þeir eru á þriðja þúsund talsins,”
segir Einar. „Einnig önnumst við
skoðun á skotgálgum fyrir björg-
unarbáta,” bætir hann við.
Alhliða björgunar- og
öryggisbúnaður
Eins og áður segir selur Viking
björgunarbúnaður ýmislegt annað
en björgunarbáta. „Við erum
reyndar að selja vörur frá mun
fleiri aðilum en Viking. Auk
björgunarbátanna seljum við
björgunargalla, flotvinnubún-
inga, neyðarblys, björgunarnet,
slökkvitæki og margt fleira á
sviði björgunar- og öryggisbúnað-
ar,” segir Einar Haraldsson.
„Viking björgunarbúnaður“í Hafnarfirði:
Alhliða skoðunar- og þjónustustöð
Einar Haraldsson, framkvæmdastjóri Viking björgunarbúnaðar. Myndir: Sverrir Jónsson.
Viking Life Save Equipment er eitt stærsta fyrirtæki í heiminum í framleiðslu og sölu björgunarbáta. Viking
björgunarbúnaður er dótturfyrirtæki Viking í Danmörku og er 100% í eigu þess.
Viking björgunarbúnaður hefur
undir einu þaki sölu á björgunar-
og öryggisvörum og
skoðunarstöð fyrir björgunarbáta.