Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2002, Blaðsíða 35

Ægir - 01.10.2002, Blaðsíða 35
35 Ö RY G G I S M Á L til björgunarbáts og þá er mikið unnið við það að þurfa ekki að byrja á því að snúa við björgunar- báti sem blásið hefur upp á hvolfi” sagði Hjörtur. Tvennskonar reglur um björgunarbáta Tvennskonar reglur gilda fyrir björgunarbáta hér á landi. „Í far- þega- og flutningaskipum gilda alþjóðareglur (SOLAS), en hér á landi eru sérstakar reglur fyrir fiskiskipaflotann. Björgunarbátar í hérlendum fiskiskipum mega ekki fara yfir 180 kg að þyngd og þá erum við að tala um hámark 20 manna björgunarbát. Algeng- asta stærð björgunarbáta um borð í fiskiskipunum er 12 manna. Reglan er sú að um borð í fiski- skipum verða að vera björgunar- bátar sem hafa rými fyrir helm- ingi fleiri en eru um borð á hverj- um tíma,” segir Hjörtur. Icedan hefur umboð fyrir los- unarbúnað fyrir björgunarbáta og slöngubáta frá Thanner. Hægt er að fá slíkan búnað sem losar björgunarbátana með vatnsþrýst- ingi, en einnig er fáanlegur raf- stýrður losunarbúnaður. „Lífvörður“ Önnur nýjung hjá Icedan í björgunar- og öryggisvörum er svokölluð „Lífvörður”, sem er lít- ill sjálfvirkur neyðarsendir, 125 grömm að þyngd, sem sjómenn hafa um hálsinn. Eftir að hafa verið í sjónum í sautján sekúnd- ur byrjar sendirinn að senda út neyðarkall. Með „Lífverði” er síð- an hægt að fá svokallaðan „Áhafnarvörð” en hann nemur neyðarköll frá „Lífverði“ og hægt er að tengja hann hvort heldur er við neyðarflautu eða skipsvél og myndi hann þá drepa á vélinni eftir því hversu sterkt merkið er frá neyðarsendinum. Þessi bún- aður er breskur og hefur náð mikilli útbreiðslu í Bretlandi. „Til dæmis hafa sportsiglinga- menn keypt þennan búnað í ríku mæli,” sagði Hjörtur. Þessi bún- aður var kynntur á sjávarútvegs- sýningunni í byrjun september sl. og vakti mikla athygli. Á næstunni verður búnaðurinn kynntur vel fyrir hérlendum út- gerðum, en hann hentar jafnt fyrir smærri sem stærri báta. Björgunarfatnaður Icedan selur björgunarfatnað frá Mustang Survival, svokallaða Ice Commander „Heavy Duty” björgunarbúninga og Ocean Commander hefðbundna björg- unarbúninga. Þá selur fyrirtækið flotvinnubúninga og flotvinnu- úlpur. Frá breska fyrirtækinu I.C. Bridle & Co. selur Icedan ýmis- konar smávöru í björgunarbúnaði, m.a. björgunarvesti, bjarghringi, bjarghringjalínur og bjarg- hringjaljós. Frá Comet selur Iced- an neyðarflugelda, línubyssur og bjarghringjaljós. Einnig er Icedan með mikið úrval af sjúkravörum frá Alka. Hér á landi er Icedan sölu- og dreifingaraðili fyrir Markúsarnet- ið, sem hefur fyrir löngu sannað gildi sitt bæði hér á landi og er- lendis. Siglingamálastofnun gerir kröfu um að Markúsarnetið sé um borð í sem flestum fiskiskipum og að búnaðurinn sé í höfnum landsins. Einnig hefur Icedan á boðstólnum varahluti í Markúsar- netið. Skútahrauni 2 • 220 Hafnarfjörður • Sími: 555 6400 • Fax: 555 6401 Heimasíða: www.liquid-ice.is • Netfang: liquid-ice@liquid-ice.is Óskum útgerð og áhöfn til hamingju með endurbæturnar á skipinu Núpur BA-69 Um borð eru ísþykknivélar af gerðinni LIGS B-105

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.