Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2002, Blaðsíða 34

Ægir - 01.10.2002, Blaðsíða 34
34 Ö RY G G I S M Á L Hjörtur Cýrusson hjá Icedan ehf. segir að sem betur fer sé bróður- partur sjómanna vel meðvitaður um gildi öryggismála úti á sjó. Hins vegar segir hann að stöðugt þurfi að minna menn á þessa hluti og í raun sé það eilífðar- verkefni að fræða sjófarendur og minna þá á nauðsyn þess að hafa skip og báta útbúna með traustan öryggis- og björgunarbúnað. Icedan er eitt af stærstu fyrir- tækjum á landinu í sölu og þjón- ustu á björgunarbúnaði. Þekktasta vörumerkið sem fyrir- tækið hefur á sínum snærum er trúlega DSB – sem stendur fyrir Deutsche Schlauchboot GmbH, en það fyrirtæki framleiðir björg- unarbáta og svokallaða „Man over board” báta og aðrar áþekkar vör- ur. Icedan selur allar tegundir af björgunarbátum frá DSB sem hafa verið samþykktir af Siglinga- stofnun fyrir íslenskar aðstæður sem og SOLAS björgunarbáta í öllum stærðum, þ.e. frá 4 manna bátum upp í 100 manna báta. Þá selur Icedan slöngubáta með bæði álbotnum og hefðbundnum gúmmíbotnum, sem eru fram- leiddir úr náttúrulegu gúmmíi. Slöngubátarnir fást í mörgum stærðum, frá 2,30 metrum (2-3 manna) og upp í 5,30 metra (8- 12 manna). „Það allra nýjasta í björgunar- bátum hjá okkur eru 4ra manna sjálfréttandi bátar frá DSB, sem munu koma á markaðinn á næst- unni, að fenginni viðurkenningu hjá Siglingastofnun,” sagði Hjörtur. Sjálfréttandi björgunar- bátar komu fyrst á markað í kjöl- far Estonia ferjuslyssins en þar fórst mikill fjöldi manna vegna þess að margir björgunarbátar blésu upp á röngum kili og fólk hafði hvorki kunnáttu né krafta til að snúa þeim á réttan kjöl. Í dag er skylda að hafa slíka sjálfréttandi björgunarbáta um borð í ferjum en ennþá eru aðeins stærri björgunarbátar, 25 manna og stærri, með viðurkenningar frá Alþjóðasiglingamálastofnunni. „En DSB er að nýta þessa sömu tækni til að framleiða 4ra manna sjálfréttandi björgunarbáta, sem í hlutarins eðli eru í mörgum til- fellum notaðir af einyrkjum og þar af leiðandi mikið öryggisatrið fyrir þá. Enda illmögulegt að segja til um ástand skipbrots- manns sem og að setja sig í þá að- stöðu þegar menn þurfa að grípa Icedan ehf. er með breiða vörulínu í björgunar- og öryggisvörum: Ný gerð 4ra manna björgunarbáta frá DSB og „Lífvörður“ Hjörtur Cýrusson. Á sjávarútvegssýningunni í Smáranum kynnti Icedan m.a. ýmsan björgunar- og öryggisbúnað.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.