Ægir - 01.10.2002, Blaðsíða 15
15
F R É T T I R
„Með nútíma samskiptatækni
er heimurinn orðinn svo lítill að
það er alveg sama hvar maður er
staðsettur. Ég er alltaf annað slag-
ið að vinna að verkefnum sem
tengjast Íslandi,” sagði Guð-
mundur í samtali við Ægi. „Ég
byrjaði á þessu ráðgjafarsviði árið
1983, en fimm ár féllu úr þegar
ég tók að mér framkvæmdastjórn
hjá Mecklemburger Hochsee-
fischerei. Þar hætti ég störfum
fyrir tveimur árum þegar rekstur-
inn var sameinaður rekstri hol-
lensks fyrirtækis.”
Árin í Slippstöðinni
Á árunum 1976-1980 var Guð-
mundur Tulinius yfirverkfræð-
ingur í Slippstöðinni á Akureyri.
Þetta voru velmegtarár í skipa-
smíðum á Íslandi og þá voru m.a.
hönnuð og smíðuð ný skip í
Slippstöðinni, t.d. Sigurbjörg ÓF,
nótaskipið Hilmir og Kolbeinsey.
Guðmundur var síðar aftur kall-
aður til starfa hjá Slippstöðinni.
„Í ágúst 1993 sótti Slippstöðin
um greiðslustöðvun og ég var
fenginn sem ráðgjafi að stöðinni
til þess að reyna að koma hjólun-
um aftur af stað. Í upphafi var
þetta hugsað sem tveggja til
þriggja mánaða vinna, en svo fór
að það urðu nær tvö ár. Þaðan fór
ég síðan til Mecklemburger
Hochseefischerei.”
Ýmiskonar ráðgjafarstörf og
þjónusta – Evrópusambandið
Eins og áður segir annast Guð-
mundur ýmiskonar ráðgjöf varð-
andi skipasmíðar og viðhald
skipa. Ásamt eiginkonu sinni
rekur hann líka lítið þjónustufyr-
irtæki, G. TULINIUS & CO.
GMBH, sem annast útvegun á
varahlutum og efni fyrir bæði út-
gerð og iðnað og vinnur sem
tengiliður við skipasmíða- og við-
gerðarstöðvar í Evrópu. „Persónu-
leg, hraðvirk og trygg þjónusta
getur oft verið dýrmætur kostur
þegar mikið liggur á, eins og oft
er ef eitthvað kemur upp á,” segir
Guðmundur. Einnig segist hann
veita ráðgjöf varðandi alþjóðlegar
fiskveiðar og útgerð, enda hafi
hann öðlast töluverða reynslu á
því sviði þegar hann starfaði hjá
MHF – ekki síst því sem snýr að
Evrópusambandinu. Guðmundur
segist fagna því að umræðan um
Evrópusambandið sé orðin opnari
á Íslandi „Almenn fræðsla um
sambandið er grundvöllurinn fyr-
ir málefnalegri umræðu, síðan
geta menn haft mismunandi
skoðanir á kostum þess og göll-
um. Ég tel hins vegar líka mjög
mikilvægt að menn geri sér grein
fyrir því að Evrópusambandið er
stjórnmálalega mikið meira en
spurning um viðskiptalega kosti
og galla eða hvort við í peningum
talið „græðum“ eða töpum á að-
ild. Ég hef fullan skilning á því
að málið sé sérstaklega viðkvæmt
vegna sameiginlegu fiskveiði-
stefnu sambandsins (CFP -
Common Fisheries Policy), en
með aðild tel ég að Ísland gæti
þar haft sterk jákvæð áhrif, auk
þess sem verulegir möguleikar
mundu opnast fyrir íslensk út-
gerðarfyrirtæki,” sagði Guð-
mundur að lokum.
Guðmundur Tulinius, skipaverkfræðingur:
Hefur meira og minna
starfað í Þýskalandi í um 20 ár
Guðmundur Tulinius, skipaverkfræðingur, hef-
ur verið starfandi í Þýskalandi meira og minna
í tuttugu ár, þar sem hann annast fyrst og
fremst ráðgjöf og eftirlit með verkefnum í
skipasmíðastöðvum. Nýverið hafði hann til
dæmis með höndum eftirlit með sandblæstri
og málningu á Barða NK, en það verk var unn-
ið í skipasmíðastöð í Póllandi. Barði kom til
Neskaupstaðar 10. október sl.
Guðmundur Tulinius, skipaverkfræðingur í Þýskalandi.