Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2002, Blaðsíða 18

Ægir - 01.10.2002, Blaðsíða 18
18 að. Árleg framleiðsla verksmiðj- anna hefur sveiflast frá 228 þús- und tonnum árið 1992 upp í 388 þúsund tonn árið 1996 og endaði í 342 þúsund tonnum af mjöli og lýsi á síðasta ári. Sömu sögu er að segja um skilaverð á mjöli og lýsi, en þar komst fob-meðalverð um- reiknað í íslenskar krónur í há- mark árið 1998, dalaði síðan en komst á flug á ný árið 2001.” Skuldir sjávarútvegsins um 205 milljarðar króna Arnar sagði að samkvæmt tölum Seðlabankans væru heildarskuldir sjávarútvegsins nú um stundir sem næst 205 milljörðum króna. „Af 205 milljarða heildarskuld- um er áætlað að liðlega 134 milljarðar eða rúmlega 65% hafi verið í erlendum gjaldmiðlum, en rúmlega 70 milljarðar eða tæp- lega 35% í íslenskum krónum. Heildarskuldir í sjávarútvegi hafa hækkað um 63% frá ársbyrjun 1998, en á sama tíma hefur út- flutningsverðmæti sjávarafurða hækkað um rúmlega 30%. Mikl- ar fjárfestingar í öllum greinum sjávarútvegs, ásamt fjárfestingum erlendis og gengisbreytingum skýra að mestu aukningu heildar- skulda á undanförnum árum. Á sama hátt á betri afkoma og gengishækkun krónunnar sinn þátt í lækkun heildarskulda á þessu ári,” sagði Arnar. Útflutningsverðmæti áætlað 128 milljarðar króna Útflutningsverðmæti sjávarafurða var á síðasta ári 122 milljarðar króna. Afurðir landfrystingar voru tæplega 39 milljarðar og sjófrystingar liðlega 22 milljarð- ar, útflutningsverðmæti saltfisks voru rúmir 26 milljarðar, flug- fiskur tæplega 6 milljarðar, gám- ar og siglingar 9 milljarðar, mjöl og lýsi 17 milljarðar og annað, mest lagmeti og hertir þorsk- hausar rúmlega 3 milljarðar króna. Arnar Sigurmundsson seg- ir að útlit sé fyrir að útflutnings- verðmæti sjávarafurða hækki nokkuð á þessu ári, en á fyrstu átta mánuðum ársins var verð- mæti þeirra um 87 milljarðar króna. „Þetta er nokkur aukning frá fyrra ári, sem skýrist ekki síst af sjómannaverkfallinu í fyrra.” Útflutningur fyrstu átta mánuði þessa árs skiptist þannig að land- frystar afurðir eru 28 milljarðar, sjófrystar 16 milljarðar, saltfiskur rúmlega 15 milljarðar, flugfiskur tæplega 4 milljarðar, gámafiskur og siglingar tæplega 6 milljarðar, mjöl og lýsi rúmlega 16 milljarð- ar og annað rúmlega 2 milljarðar Nú er áætlað að útflutningsverð- mæti sjávarafurða verði 128 mill- jarðar á árinu 2002.” Námsefni á ensku og pólsku Arnar segir menntunarmál fisk- vinnslunnar mikilvæg. Hann seg- ir að unnið hafi verið að stofnun Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins ehf. að frumkvæði Alþýðusam- bands Íslands og Samtaka at- vinnulífsins, en miðstöðinni er ætlað að vera samstarfsvettvangur ASÍ og SA um framkvæmd full- orðins- og starfsmenntunar á ís- lenskum vinnumarkaði. „Á þessu ári er áætlað að 150- 200 starfsmenn ljúki grunnnám- skeiðum fyrir fiskvinnslufólk. Bóklegt námsefni hefur nýlega verið endurnýjað að miklu leyti og þýtt á ensku og pólsku. Slíkt var orðið aðkallandi þar sem út- lendir starfsmenn eru um þriðj- ungur af þeim sem lokið hafa grunnnámskeiðum á síðustu 2-3 árum. Ein af ástæðum þess að mun færri sækja námskeiðin á síðustu árum eru minni breyting- „Á þessu ári er áætlað að 150-200 starfsmenn ljúki grunnnámskeiðum fyrir fiskvinnslufólk. Bóklegt námsefni hefur nýlega verið endurnýjað að miklu leyti og þýtt á ensku og pólsku. Slíkt var orðið aðkallandi þar sem útlendir starfsmenn eru um þriðjungur af þeim sem lokið hafa grunn- námskeiðum á síðustu 2-3 árum,” segir Arnar Sigurmundsson. „Í rækjunni telja menn að ekki sé neitt sérstaklega bjart framundan, en það má heldur ekki vera lakara en það er í dag,” segir Arnar. Hér er verið að landa sjófrystri rækju úr Rauðanúpi, rækjufrystiskipi ÚA.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.