Ægir - 01.10.2002, Side 12
Lovísa sagði í samtali við Ægi
að áhuginn fyrir að skoða áhrif
hvíldar á heilsu hjá sjómönnum
hafi blundað lengi í henni en það
hafi ekki verið fyrr en hún
hafi verið beðin að
koma að ráðgjöf
við hönnun
og þróun á
dýnu
sem
sérstaklega er ætluð sjómönnum
að hún lét verða af því að hrinda
þessu af stað. Í framhaldinu hafi
hún ákveðið að útvíkka verkefnið
og nú nái það almennt til heilsu
sjómanna, auk svefnvenja
Markmiðið með þessu verkefni
er að fyrirbyggja álagssjúkdóma
meðal sjómanna, vernda heilsu
þeirra, efla vellíðan og starfsanda.
Einnig miðar verkefnið að því að
auka þekkingu á áhættuþáttum í
vinnuumhverfinu og um leið að
auka ábyrgð og þekkingu hvers
og eins einstaklings á eigin líðan
og tengslum hans við umhverfi,
starf og beitingu líkamans í
vinnu. En höfuðmarkmiðið með
rannsókninni er að kanna hvort
og hvernig góð hvíld geti dregið
úr slysum, veikindadögum og
álagseinkennum á stoðkerfi lík-
amans og þar með bætt almenna
heilsu einstaklinga.
Legustaða á dýnu
sérstaklega skoðuð
„Rannsóknin hefur staðið í eitt ár
og er ekki fullkláruð. Ég á ekki
von á því að henni muni ljúka
fyrr en næsta vor. Ég hef sett mig
í samband við fjölda sjómanna
um allt land, fyrst og fremst hef-
ur rannsóknin beinst að sjómönn-
um á frystiskipum sem eru lengi í
hverjum túr. Ég heimsótti sjó-
mennina og þeir fylltu út sérstök
matseyðublöð, annars vegar varð-
andi svefnmynstur og svefngæði
og hins vegar varðandi andlega
og líkamlega áhættuþætti. Síðan
skoðaði ég legustöðu hvers ein-
staklings á dýnu til þess að geta
Á undanförnum misserum hefur Lovísa Ólafs-
dóttir, iðjuþjálfi, unnið að merkri athugun á
svefnvenjum og heilsu sjómanna. Lovísa er
starfsmaður fyrirtækisins Solarplexus ehf., -
heilbrigðis- og öryggisráðgjafar – í Reykjavík. Í
þetta verkefni réðst Lovísa vegna sérstaks
áhuga hennar á viðfangsefninu, en ekki er vit-
að til þess að slík athugun hafi áður verið gerð
á Íslandi eða annarsstaðar í Evrópu. Lovísa
kynnti fyrstu niðurstöður verkefnisins á ráð-
stefnu, sem efnt var til í öryggisviku sjómanna
í byrjun október og vöktu þær mikla athygli.
R A N N S Ó K N I R
Lovísa Ólafsdóttir, iðjuþjálfi hjá Solarplexus ehf.:
Rannsakar svefnvenjur
og heilsu sjómanna
Lovísa Ólafsdóttir segist vita af mönnum sem hafi orðið fyrir
það miklum svefntruflunum til sjós að þeir þurfi á þunglyndis-
og svefnlyfjum að halda til þess að geta ráðið við vinnu sína.