Ægir - 01.10.2002, Qupperneq 13
13
R A N N S Ó K N I R
metið hvort þessi þáttur hefði
áhrif á svefnmynstur,” sagði
Lovísa.
Viðamikil rannsókn
„Fátt verður um svör þegar stórt
er spurt,” sagði Lovísa þegar hún
var spurð hvað hafi komið henni
mest á óvart í þeim niðurstöðum
rannsóknarinnar sem þegar liggja
fyrir. „Jú, mér kom það reyndar
nokkuð á óvart að menn veiti því
ekki meiri athygli en raun ber
vitni hversu mikilvægt það er að
hafa góða svefndýnu til þess að ná
góðum svefni. Staðreyndin er sú
að margir sjómenn á þeim skip-
um sem rannsókn mín náði til
eiga við alvarlegar svefntruflanir
að stríða og jafnframt er ljóst að
of margir sjómenn eiga við svo-
kallað streituþunglyndi að etja.
Fram að þessu hef ég ekki greint
neinn aldursmun í þeim efnum.
Raunar verð ég að viðurkenna að
það kom mér nokkuð á óvart
hversu hár meðalaldur skips-
áhafna er. Ég hafði fyrirfram búist
við að margir ungir menn væru á
þessum skipum, en dæmi er um
að meðalaldur á skipi sem rann-
sóknin náði til sé um fertugt,”
sagði Lovísa.
Offita algengt vandamál
Varðandi heilsu sjómanna leiddi
rannsóknin í ljós að offita er
nokkuð algengt vandamál meðal
sjómanna og þá virðist enginn
munur vera á þeim yngri og eldri.
„Offitustuðullinn er hærri en
gengur og gerist. Til samanburð-
ar er ég að vinna að sambærilegri
rannsókn meðal byggingar- og
málmiðnaðarmanna og hún leiðir
í ljós áberandi meiri offitu hjá
sjómönnum. Skýringin á þessu
gæti að mínu mati verið fyrst og
fremst mataræði til sjós, en
einnig hreyfingarleysi því fáir
stunda þar hreyfingu að einhverj-
um toga. Sjómennskan á þessu
skipum er skorpukennd vinna, en
síðan koma dauðir tímar á milli
þar sem menn láta í mörgum til-
fellum tímann líða með því að
horfa á sjónvarp og gera vel við
sig í mat og drykk. Almennt held
ég að ekki sé fylgst náið með
mataræði sjómanna úti á sjó og
það tel ég að sé eitthvað sem þurfi
að skoða.”
Svefntruflanir
Nánar um fyrstu niðurstöður
rannsóknar Lovísu. Hún segir að
sjómenn séu margir mjög meðvit-
aðir um að þeir verði fyrir mikl-
um svefntruflunum í vinnu sinni
úti á sjó. „Og það eru dæmi um
menn sem hafa orðið fyrir það
miklum svefntruflunum til sjós
að þeir þurfa á þunglyndis- og
svefnlyfjum að halda til þess að
geta ráðið við vinnu sína,” segir
Lovísa.
Eins og áður segir voru sjó-
mennirnir í rannsókninni skoðað-
ir með tilliti til legustöðu þeirra á
svefndýnu. Í öllum tilfellum kom
í ljós mikill snúningur á
hryggsúlu. Eftirgefanleikinn var
ekki nægilega mikill í kringum
axlir og álag á herðablaðasvæðið
var því mikið. Sömuleiðis var
álagið á mjóhrygginn mikið. Í
sjómennskunni er að mati Lovísu
töluverð hætta á að slæmar legu-
dýnur í rúmum kalli á álagsein-
kenni og sjúkdóma og því telur
hún mikilvægt að þetta atriði sé
skoðað sérstaklega.
Greinileg álagseinkenni
Eins og áður segir var eitt af aðal
markmiðunum með rannsókn
19%
35%
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
35%
40%
Ég hef orðið fyrir slysi síðastliðið ár Ég hef lent í atviki síðastliðið ár, þar
sem slys hefði getað orðið
Ég stunda líkamsrækt
61%
26%
8%
5%
Aldrei
1x í viku
2x í viku
3x í viku
>3x í viku
0%
Hér má sjá bráðabirgðaniðurstöður rannsóknarinnar þar sem spurt var um hvort menn
hafi orðið fyrir slysi til sjós.
Eins og kannski mátti búast við reyndist afgerandi meirihluti þátttakenda ekki
stunda líkamsrækt úti á sjó. Hafa ber í huga að aðstaða til líkamsræktar er mismun-
andi góð á skipunum, hún er mun betri á nýjustu skipum flotans.
„Staðreyndin er sú að margir sjómenn á þeim skipum sem rann-
sókn mín náði til eiga við alvarlegar svefntruflanir að stríða og
jafnframt er ljóst að of margir sjómenn eiga við svokallað streitu-
þunglyndi að etja,” segir Lovísa Ólafsdóttir, iðjuþjálfi hjá Solarp-
lexus ehf.
Slys og óhöpp
Ábyrgð á eigin heilsu