Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.2002, Side 22

Ægir - 01.10.2002, Side 22
22 F J Ö L S K Y L D U L Í F S J Ó M A N N A svo skrítið, því nú hafa þær aftur fengið ástvininn heim, oft eftir langar fjarverur, og geta deilt áhyggjum og daglegu amstri með honum. En við sjómannskonur megum ekki gleyma því að þótt einmanaleiki og kvíði sæki að okkur, þá getum við verið viss um að eins og Jesús er um borð í bátnum hjá mönnunum okkar, þá vill hann líka vera um borð í okk- ar bátum, á heimilum okkar, og leiða okkur í gegnum öll stórviðri sem kunna að ganga yfir. Þetta leiðir okkur að þriðja atriðinu sem mig langar til að við skoð- um. Eitthvað meira en kaldaskítur? 3. Jesús segir við lærisveinana: Hví eruð þér hræddir, þér trúlitl- ir? Þegar ég var á sjónum minnist ég þess aðeins einu sinni að hafa orðið eitthvað smeyk að ráði. Það var í janúar 1995 að ég var háseti um borð í Sléttbaki EA-304 og vorum við á leið inn til Patreks- fjarðar í var. Það var töluverður sjór og mér var ekkert farið að lít- ast á blikuna enda hafði ég byrjað á sjónum sumarið áður og hafði ekki lent í svona slæmu veðri úti á sjó. „Þetta hlýtur að vera eitt- hvað meira en kaldaskítur, er það ekki?” spurði ég Gunnar Jó- hannsson, sem þá var skipstjóri. Gunnar brosti við spurningunni og svaraði því til að þegar vind- stigin væru orðin 12 og ölduhæð- in 12-14 metrar, eins og hann sagðist halda að væri, kallaðist það fárviðri. Þegar ég stóð við brúargluggann og himinhá aldan kom æðandi eins og kolsvartur ógvekjandi veggur á móti skip- inu, fann ég að við mennirnir erum ósköp litlir og megum okk- ur lítils þegar veðurofsinn er í ham. En þegar ég leit á Gunnar, skipstjóra, fann ég að þar var traustur maður með mikla reynslu og vissi að hann myndi skila mér og allri áhöfn sinni heilli til hafnar. Að bíða milli vonar og ótta Rétt fyrir klukkan 8 einn morgun í apríl sl. var ég nýkomin á fætur og eins og alla venjulega morgna, byrjaði ég þennan morgun á því að fara fram í eldhús og kveikja á útvarpinu, til þess að heyra 8- fréttirnar og hella upp á kaffi. Allt í einu heyri ég að þulurinn nefnir nafn skipsins sem maður- inn minn var þá skipstjóri á. Seg- ir hann frá því að eldur hafi kom- ið upp um borð og að þyrlan hafi verið sett í viðbragðsstöðu, en skipverjar hafi ráðið niðurlögum eldsins. Skipið hafði verið statt um 80 sjómílur frá landi og þónokkur spölur í næsta skip. Að byrja nýjan dag á því að fá svona fréttir er ekki mjög gott. Sem er nú kannski full vægt í ár- ina tekið því maginn á mér fór í hnút og hjartað byrjaði að hamast í brjósti mér. Ég æddi um allt hús, en veit ekki af hverju. Ég hugsaði með mér: „Af hverju var ekki hringt í mig og ég látin vita, ætli sé ekki alveg örugglega allt í lagi hjá þeim?” Þulurinn sagði að áhöfnin hefði slökkt eldinn sjálf, en einhvern veginn gat ég ekki verið fullviss. Ég hef þrisvar sinnum farið á námskeið hjá Slysavarnaskóla sjó- manna þannig að ég veit það full- vel að eldur um borð í skipi er eitt af því alvarlegasta sem hent getur sjófarendur. Kannski þess vegna var ég ekki alveg sannfærð, þó að þulurinn hafi sagt að það væri allt í lagi. Kannski hefði ein- hver átt að hringja í sjómanns- konurnar og láta þær vita, strax og eldurinn var slökktur, að allir væru heilir á húfi. Um 11 leytið hringdi svo maðurinn minn og þá fyrst leið mér betur – en ég þurfti að heyra rödd hans til þess að sannfærast um að allt væri nú ör- ugglega í lagi. Trúin hjálpar Ég sem sit heima og gæti bús og barna meðan maðurinn minn dregur björg í bú, er svo heppin að trúa því og treysta að Jesús Kristur sé sá albesti skipstjóri sem við höfum. Ég hef valið að vera í áhöfn hans því ég veit að hann elskar alla áhöfn sína og gerir aldrei mannamun. Hann þekkir okkur betur en við sjálf, sér beint í hjarta okkar og á þar bústað. Við getum treyst því að Guð er hjá okkur. Það er okkar að taka á móti honum og hleypa honum inn í hjörtu okkar, trúa orði hans og standa stöðug í því að trúin veitir okkur styrk – huggar í sorg og í vanmætti. Alveg eins og hún huggaði mig, þetta tiltekna kvöld þegar Svanborg SH fórst við Snæ- fellsnesið. Þá þarf Jesús ekki að segja: „Hví eruð þér hræddir, þér trúlitlir?” Maðurinn minn er ekki eini skipstjórinn um borð, hann er svo heppinn að hafa annan sér til aðstoðar sem leiðir hann og verndar í hverju sem á dynur, - allt til endiloka skipsferðarinnar. Á sumrin þegar ég sé pabbana bjástra við að grilla mat og krakk- arnir að stússast í kringum þá, meðan mömmurnar elda sós- urnar og búa til salat – þá finn ég fyrir ein- manaleika af því að það er enginn pabbi heima hjá okkur til þess að grilla og hafa félagsskap af. Þórunn Halldórsdóttir með fjölskyldu sinni í Hamragerði 14 á Akureyri. Eiginmaður hennar er Páll Steingríms- son, fyrsti stýrimaður og afleysingaskipstjóri á Víði EA. Dætur þeirra eru Aðalbjörg, fimm ára, og Sólbjört, eins árs. Á myndinni er líka vinkona Aðalbjargar, Eydís Rut Yngvadóttir, fimm ára.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.