Ægir - 01.10.2002, Síða 40
S K I PA S T Ó L L I N N
una,” segir Freysteinn Bjarnason,
útgerðarstjóri hjá Síldarvinnsl-
unni í Neskaupstað. Hann segir
að með því að taka þetta skip
heim frá Skotlandi og selja frysti-
skipið Barða til Namibíu sé verið
að leggja meiri áherslu á land-
vinnslu hjá Síldarvinnslunni. Nýi
Barði NK er bæði útbúinn til ís-
fiskveiða og frystingar, en til að
byrja með verður áherslan lögð á
ísfiskveiðarnar.
Skipstjóri á Barða NK-120 er
Sveinn Benediktsson, sem var
skipstjóri á gamla Barða NK.
Fyrsti stýrimaður er Hjörvar
Hjálmarsson og yfirvélstjóri er
Gísli Gylfason. Á ísfiskveiðum
verða sextán menn í áhöfn skips-
ins, en átján á heilfrystingu.
Stýrimennirnir Hjörvar Hjálmarsson og Bjarni Ólafur Hjálmarsson
og Vignir Lúðvíksson, vélstjóri. Þeir stýrðu skipinu heim frá
Póllandi. Hjörvar verður fyrsti stýrimaður á skipinu, en Sveinn
Benediktsson skipstjóri. Myndir: Ágúst Ólafsson.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar, Kristinn V. Jóhannesson,
stjórnarformaður, og Freysteinn Bjarnason, útgerðarstjóri, í brú Barða NK-120.