Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.2002, Side 42

Ægir - 01.10.2002, Side 42
42 F R Ó Ð L E I K U R O G S K E M M T U N K R O S S G Á TA N Útselur er nokkuð stærri en land- selur og þyngri. Hann getur orðið allt að 3 m á lengd og brimlarnir allt að 300 kg að þyngd. Urturnar eru þó minni og léttari eða að með- altali um 2 m á lengd og um 165 kg. Höfuð útselsins er frammjótt og hátt nef, framhreifarnir eru mun minni en á landselnum og ofar á búknum. Tveir hreifar eru að aftan og milli þeirra lítill dindill. Litur útselsins er dökkur, oft nær svartur en urturnar eru ljósar á kvið og gráblettóttar á hálsi. Útselur lifir einungis í Norður-Atlantshafi og í Eystrasalti. Hann er að finna norður eftir strönd Noregs og í kringum Bretland, Færeyjar, Ís- land og Grænland. Hann lifir einnig við austurströnd Norður- Ameríku. Hér við land er útselurinn mest við sunnan og vestan- vert landið. Yfirleitt er mest um útsel á stöðum sem eru fyrir opnu hafi. Um fjögurra ára aldur eru flestar urtur orðnar kyn- þroska og kæpa fyrst árið eftir. Brimlarnir verða kynþroska um 6 ára. Útselurinn kæpir á haustin og veturna og oftast er það á skerjum eða útnesjum yfirleitt nokkuð frá byggð. Urtan fæðir einn kóp á ári en til eru dæmi þess að tveir kópar hafi fæðst. Um fæðingu eru ururnar um 8 kg en brimlarnir um 12 kg og liggja þeir í bóli í þrjár til fjórar vikur án þess að fara í sjóinn. Þá hafa þeir náð steingráum lit, búnir að missa fæðingarhárin sem eru gulhvít. Aðalfæða útselsins eru grunnsævisfiskar svo sem þorskur, ufsi steinbítur, marhnútur og hrognkelsi. Við Ísland eru um 8.000 dýr samkvæmt áætlun sem var gerð árið 1995 og hefur farið eitthvað fækkandi undanfarið. Aðallega hefur selurinn verið veiddur fyrir kjötið af honum því í dag eru skinnin ekki verðmikil eins og áður fyrr og af einhverju leiti er kjötið notað í loðdýrafóður. Undanfarin ár hefur hann einnig verið veiddur fyrir hvatningu frá aðilum í útgerð og fiskvinnslu og á síðustu 10 árum hafa verið veiddir frá 1000 til 2.500 útsel- ir árlega. Halichoetus grypus Útselur

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.