Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2006, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2006, Page 10
1 0 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV Kostir & Gallar Bjarni þykir hafa góða nær- veru, skemmtilegur og af- bragðssöngvari. Traustur vin- ur og stórskemmtilegur pabbi. Hann er óþægilega hrein- skilinn, sjúklega skipulagð- ur og vinnur ofmikið. „Hann Bjarni er opinn og lifandi og skemmtilegur og syngur vel sem ég fékk að heyra í fertugsafmæl- inu mínu í fyrra. Svo er hann góð manneskja. Ég kynnt- ist honum þegar við vorum bæði í Háskóla íslands. Hann varodd- viti Vöku og ég var oddviti Röskvu. Á þeim árum var hann duglegur að sauma út myndir eins og þær sem maður sér hjá gömlum frænkum. Galli hans er að hann býr á Seltjarnarnesi, ég vil að sjálfsögðu að hann búi í Reykjavík." Steinunn Valdís óskarsdóttir borgar- stjóri. „Ég hefekkert nema gott um Bjarna að segja. Hann er indælispiltur og heiðvirður sveitamaður af Skaganum. Hann er mikið náttúrubarn og hefur þægilega nærveru. Svo er hann góður heimilisfaðir og hefur líka frábæran framkvæmdastjóra á heimilinu sem honum veitir ekki afþvl hann hefur allt ofmikið að gera og vinnur ofmikið." Guörún Helgadóttir, rithöfundur og tengdamóðir Bjarna. „Hann er stórkostlegur gestgjafí og skemmtilegt að vera með honum. Hann er ráðagóður og gott að leita til hans og hann gefur sér tíma til að sinna vinum sínum. Hann erstór- skemmtilegur pabbi og mjög duglegur að sinna börnunum sínum. Gallar hans eru að hann erstundum óþarflega hreinskil- inn. Hann kemurstundum með blákalt mat á hlutina sém mað- ur vill ekki alltafheyra. Svo er hann líka sjúklega skipulagður og reynir að fá alla til að setja sér markmið, en það getur líka verið kostur. Svo heldur hannað öll mannamót eigi að enda i einni rosalegri söngskemmtun." Margrét Jónasdóttir sagnfræöingur. Bjami Ármannsson er fæddur 23. mars 1968. Hann er af Akranesi og gekk i framhaldsskóla þar. Þaðan lá leiðin i Háskóla Islands þarsem hann nam tölvunarfræði. Þarstarfaði hann m.a. í háskólapólitíkinni fyrir Vöku og lét talsvert til sín taka. Bjarni fór utan í IMD-skólann í Sviss þar sem hann lagði stund á MBA-fræði og þeg- ar heim var komiö fór hann að vinna hjá ríkinu, hjá hinum nýstofnaða Fjárfestingabanka at- vinnulifsins eða FBA Með sameiningu Islands- banka og FBA varð Bjarni svo bankastjóri Is- landsbanka við hlið Vals Valssonar en eftir að hann hætti hefur Bjarni gegnt starfinu einn. Vilja þreksal íbúar á Bfldudal hafa skorað á bæjar- stjóm Vestur- byggðar að koma upp þrek- sal í Byltunni, íþróttahúsi Bflddælinga. „Það er engin aðstaða í húsinu, það em margir sem vilja nýta sér þreksai en við höfúm þurft að fara á Tálknafjörð til þess," segir Sólrún Bryndís Aradóttir, ein þeirra er stóðu íyrir undirskriftasöínuninni. Askorunarlista með undir- skriftum 87 íbúa Bfldudals var skilað inn til bæjarstjóm- ar Vesturbyggðar. Mikael Már Pálsson þegir um afdrif tveggja milljóna króna sem millifærðar voru ólöglega af heimabönkum sex einstaklinga inn á reikninga hans. Grunur leikur á að þýfið hafi verið notað til að fjármagna tilraun Mikaels til smygls á fjórum kíló- um af amfetamíni sem upp komst á föstudag. Með Mikael í för var kærasta hans, Halldóra Gunnlaugsdóttir. Mikael segir hana ekki hafa vitað af amfetamininu sem fannst falið í farangri þeirra. Fjápmapaði smyglið með heimaðankaráni & »1 'TtPtir nmnmmmv r~ ____ Mikael Már Pálsson náði að koma um tveimur milljónum króna, sem millifærðar voru ólöglega inn á tvo reikninga í hans eigu, undan áður en hann var handtekinn í byrjun desember. Grunur leikur á að stórfellt amfetamínsmygl Mikaels Más Pálssonar, sem upp komst á föstudag, hafi verið fjármagnað með þýfinu. París Kserustuparið kom með fjögur klló afametamlni frá Frakklandi. Mikael Már Pálsson var handtek- inn þann 5. desember síðastliðinn í tengslum við hið svokallaða heima- bankamál. Upp hafði komist að í sex skipti hafði verið brotist inn í heima- banka einstaklinga og millifærðar þaöan talsverðar upphæðir. Allar millifærslurnar fóru inn á tvo mis- munandi reikninga, sem báðir voru í eigu Mikaels. Samtais voru um tvær milljónir lagðar inn á reikninga hans með þessum hætti. Mest munaði þó um eina millifærsluna sem nam um einni og hálfri milljón króna. Mikael Már hafði sjálfur tekið þessar tvær milljónir út af reikningum sínum áður en hann var handtekinn. Út- tektirnar voru tvær og fékk hann upphæðina greidda í reiðufé. Játar að hafa komið þýfinu undan í yfirheyrslum hjá lögreglu játaði Mikael að hafa móttekið heima- bankaþýfið. Hann játaði einnig að hafa tekið það út úr banka í reiðufé. Mikael þvertók þó fyrir að hafa framkvæmt sjálfar millifærslurnar, bar að hann væri aðeins miOOiður. Mikael neitaði þó að segja með hverjum hann hafði unnið að rán- unum. Þá þverneitaði hann einnig að upplýsa hvar milljónirnar tvær sem hann tók út væru niðurkomnar. Tvisvar í gæsluvarðhald á einum mánuði Á fjórða degi yfirheyrslnanna, eða þann 9. desember, var Mikael sleppt úr gæsluvarðhaldi. Hann hafði haldið sig fast við framburð sinn og lögregla sá ekki ástæðu til að halda honum lengur. Lítið fór fýrir Mikeal í fyrstu. í lok desember fór hann þó með kærustu sinni, Hall- dóru Gunnlaugsdóttur, til Parísar. Þau sögðu vinum og kunningjum að þau væru að fara í boði foreldra Mikaels. Eftir vikudvöl erlendis snéru þau síðan heim þann 3. janú- ar. Við komuna til íslands fundu tollverðir fjögur kfló af amfetamíni í farangri Mikaels og Halldóru. Þau voru handtekin og úrskurðuð í gæsluvarðhald. Mikael í annað skipti á innan við mánuði. Mikil umsvif Mikaels Við yfirheyrslur hefur Mikael | haldið því stíft fram að kærasta hans hafi ekki vitað af am- fetamíninu í farangri þeirra. Þessu hefur Halldóra einnig haldið fram í yfirheyrslum. Henni er þó enn haldið í gæslu- varðhaldi ásamt kærasta sínum. I MHuiéJ M hiiföi sjáífiir iJÍíiO jj-iKtir svter wUJjöwr ú i tifr-jjknhi'j- uin díniun íiöur an íitinn vtir huntliek- Uul Úiiek iirn- tir voru ivier Athygli vekur að bankamálið og am fetamínsmyglið eru með stærri lögreglu- málum sem komið hafa upp síðustu misseri. Og Mikael virðist vera lykilmað- ur í þeim báðum. Rannsókn lögreglu heldur áfram. andri@dv.is Mikael Már Pálsson Kom tveimur milljónum undan i heima- bankamálinu. Amfetamin Efnin sem Mikael reyndi að smygla hingað til lands reyndust afarsterk. Halldora Gunn- laugsdóttir Sögð saklaus afkærasta sínum Mikael. oj fékk htinn uppíi&ðinú rroitltlti í roióufé, mjmm 'jr-iiiiiliií heima- Skipulagsráð Reykjavíkur fundaði í gærmorgun Bauhaus fær loks grænt Ijós á íslandi „Skipulagsráð hittist í morgun.' Það samþykkti að fela skipulagsfull- trúa að vinna drög að deiliskipulags- forsókn fyrir þetta svæði. Og líta til umsóknar Bauhaus í þeirri vinnu," segir Helga Bragadóttir, skipulags- fulltrúi í Reykjavík. Byggingavömverslanakeðjan Bauhaus sótti fyrir skemmstu um að reisa 20 þúsund fermetra verslun austan megjn við Vesturlandsveg, skammt frá Úlfarsfelli. Bauhaus rekur um 200 búðir víðs vegar um Evrópu. „Það hefur lengi staðið til að gera deiliskipulag þarna. Þetta er ekki langt frá nýju byggðinni við Úlfars- fell, sem er tif uppbyggingar 2008. Þessi umsókn samræmist því aðal- skipulagi og það verður farið í þessa vinnu á næstu vikum," segir Helga. Þessar fregnir hljóma eflaust vel í eyrum Bauhaus-manna, sem eiga þó eftir að fá samþykki borgarráðs fyrir lóðinni. Þeir hafa rekið sig á hvern vegginn á fætur öðmm í leit sinni að lóð á höfuðborgarsvæðinu. Fyrst fóm viðræður um lóð í Linda- hverfi í Kópavogi út um þúfur. Síðan hætti Urriðaholt ehf. við samning um sölu á lóð í Urriðaholti í Garða- bæ á síðustu stundu og seldi Byko í staðinn. Nú virðist því sem Bauhaus sé komið einu skrefi nær að byggja verslunina, sem á að verða stærsta byggingavömverslun landsins. Ef leyfi fæst fyrir að byggja verður hún til um mitt árið 2007. Samkeppnisaðilarnir eru ekki langt undan. Hinum megin við Vest- urlandsveginn er síðan áformað að Byko, Rúmfatalagerinn og fleiri búð- ir verði saman í 40 þúsund fermetra verslunarhúsnæði. Á svipuðum slóðum við Vesturlandsveginn er svo Húsasmiðjuna að finna. Vesturlandsvegur Lóðin, sem Bauhaus vill reisa stærstu bygginga- vöruverslun landsins á, e við hlíðar Úlfarsfells. Bauhaus Ustveláís- lenska markaðinn og viija ólmir komast að.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.