Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2006, Blaðsíða 64
I* f 3 Í Í ílfj jíOÍ! Við tökum J!
fréttaskotum allan sólarhrínginn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
nafnleyndar er gætt. j-'j-^q j-1 rj q
SKAFTAHLÍÐ 24,105 REYKJAVÍK [sTOFNAÐ 1910] SÍMISS05000
690710 111117'
Laxveiði
Allt upp í loit
Átökin á íslenskum flármálamark-
aði taka á sig ýmsar myndir. Og ekki
eru þau alltaf bundin við malbikuð
stræti stórborganna. Sveitasælan fær
líka að kenna á því; allavega þar sem
laxveiðiárnar renna tærar til hafs.
Laxveiðihollin hafa lengi verið
, helgustu vé þeirra sem peninga eiga.
Þar hafa stórlaxar viðskiptalífsins
getað leitað skjóls og endurnýjað
krafta til framtíðar. Fjármálastofnan-
ir hafa fyrir löngu keypt upp Öll þau
veiðileyfi sem eitthvað bragð er að
og venjulegra fólk hefur snúið sér að
súungsveiði í vötnum.
Nú eru blikur á lofti þegar menn
vakna á morgnana og hafa eignast
nýja óvini vegna tilfærslna á eignar-
haldi í fyrirtækjum vítt og breitt um
kauphallir. Um leið hafa þeir eign-
ast nýja vini sem þeir í raun völdu
ekki sjálfir. Það verður að spila leik-
inn rétt.
Laxveiði Veiðihollin i uppnámi vegna
viðskipta með hlutabréf.
En þá ruglast allt í laxveiðihollun-
um. Þeir sem áður voru saman geta
ekki verið það lengur. Sumir verða
að víkja og aðrir koma inn. Það geng-
ur ekki að andstæðingar í viðskipt-
um veiði saman. Stundin við bakk-
ann og í veiðihúsinu er of heilög til
þess. Allt annað bliknar við hliðina á
því bræðralagi sem þar er.
Eiginlega er þetta orðið eins
og atvinnuknattspyrnan þar sem
mönnum er skipt út af og inn á; nýir
keyptir og gamlir seldir. Sumir kom-
ast ekki í liðið. Það verður víða vandi
í veiðihúsum í sumar.
Því er víða unnið hörðum hönd-
um á bak við gljáfægt gler að því að
stokka upp veiðihollin svo laxveiði-
sumarið fari ekki í vaskinn. Heilag-
ar stundir skulu standa. Allt er í húfi.
Skítt með það þó miiljónir og jafn-
vel margar tapist í amstri dagsins
og vélrænum viðskiptum. Þar get-
y. ur skuggi fallið á og menn gráta það
ekki svo lengi. En veiðihoilin verða
að vera hrein og iínur skýrar. Bakkar
laxveiðiánna eru fráteknir fyrir „við-
skiptavini".
Svo byrja vandræðin á ný næsta
sumar því þá verður allt breytt. Á
ekkert er að treysta þegar veiðihollin
og verðbréfin skarast.
Þeir laxera!
• Silvía Nótt, eða Ágústa Eva
Erlendsdóttir, fer sem kunn-
ugt er með hlutverk í Mýrinni
og leikur þar dóttur Erlends
rannsóknarlögreglumanns.
Vegna hlutverksins þurfti
að lita hár hennar rautt og
hvarf þar með ljósi toppur-
inn sem verið hefur helsta
einkenni Silvíu Nætur. Var
þá hárgreiðslukona
fengin til að útbúa
20 ljósa toppa sem
Silvía ætlar að taka
með sér til Aþenu í
Eurovision og kost-
uðu þeir hundrað
þúsund krónur...
• Ekki er það mikið meira sem
Arnaldur Indriðason, höfundur
sögunnar, fær fýrir sinn snúð. Ailt
er stílað upp á prósentur af gróða
ef verður. Annars þarf Arnaldur
ekki að kvarta yfir peningaleysi öf-
ugt við flesta aðra kollega hans hér
á landi. Sagður ríkastur íslenskra
rithöfunda og hafa úr meiru að
moða en erfingjar Laxness og er
Á undanfðrnum árum hefur það færst í vöxt að gera upp gömul
hús víða um land og þar kemur bárujárnið sannarlega við sögu.
Einnig hafa hönnuðir húsa aldrei lagt bárujámið á hilluna þrátt
fyrir miklar tískusveiflur í hönnun. Það sést vel á mörgum nýjum
húsum. Blikksmiðja Gylfa býður uppá heildarlausnir á þakfrágangi
og veggklæðningum úr bárujárni. Allir fyigihlutir eru framleiddir
hjá Blikksmiðju Gylfa og ávallt til á lager. Þaulreyndir fagmenn
með áratuga reynslu eru til staðar og veita tæknilegar upplýsingar
og ráðgjöf. Nóg er að koma með teikningar á staðinn og
fagmenn Blikksmiðju Gylfa finna réttu lausnina.
fiui lumsmfisíitð
U
v