Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2006, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 29. APRlL 2006
Fyrst og fremst ÐV
Útgáfufélag:
365 - prentmiðlar
Ritstjórar:
Björgvin Guðmundsson
Páll Baldvin Baldvinsson
Fréttastjóri:
Óskar Hrafn Þorvaldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550
5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 -
Ritstjórn: 550 5020 Fréttaskot: 550
5090 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is
Augiýsingar: auglysingar@dv.is.
Umbrot:
365 - prentmiðlar.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja.
Dreifing: Pósthúsið ehf.
dreifing@posthusid.is
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent
efni blaðsins í stafrænu formi og úr
gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Karen Kjartansdóttir heima og aö heiman
Vjeðrið
Nu viðrar svo sannarlega vel og
tími til kominn að fara að norpa
I efnislitlum fötum í íslensku
sumarnepjunni. Ég missi vist af
helgarvaktinni minni í þetta
skipti og ætla því að njóta þess
að vera með syni mínum og
lesa mértil um íslenskt
veðurfar. Það er ekki hægt að
ganga inn í
sumarið án
þess að velta
veðrinu fyrir
sér og þá er
nauðsyn-
legt að hafa
orðaforða
sem inniheldur
fleiri orð en
„skítaveður". Fátt þykir mér
sorglegra en fullorðið ómálga
fólk og þar sem veðrið er okkur
(slendingum fjarskalega
hugleikið þegar sumarið er að
senda sína fyrstu geisla til
jarðar hvet ég alla til að gera
hið sama.
gartólk hefur lítið að segja
talar það gjarnan um veðrið, og
þannig er ég. Ég hef skrifað
fleiri pistla í þetta blað en ég
kæri mig um að hafa tölu á og
alltaf fundið mérnæg
umfjöllunarefni. Fyrsti pistillinn
minn gerði þó heldur
takmarkaða lukku og endaði
með því að einn
helsti menningar-
viti þjóðarinnar
skrifaði langt
lesendabréf í
tilefni hans og
kallaði mig
galvaskan
helgimyndabrjót.
Ég sem hafði þá
einmitt reynt að skrifa um
málefni sem ég taldi fullvlst að
engan myndi styggja. Eftir
þessa reynslu tók ég þá
ákvörðun að segja hlutina
umbúðalaust og virðist það
hafa fallið betur í kramið hjá
öldnum menningarvitum
þjóðarinnar.
Þessa stundina hef ég þó ekki
frá neinu að segja, að minnsta
kosti engu sem ég vil setja
niður á blað. I stað þess að
blaðra um eitthvað
sem engu máli
skiptir ætla ég
að drífa mig út
í leifar íslenska
sólskinsinsog
snæða
grillmat. Á
næstu dögum
ætla ég svo að gera
dauðaleit að spennandi lesefni
I verslunum Reykjavíkur.
i&uáRií&í&é
Leiðari
Edlifjölmiðla er að lcrejja samtímann svara um hvergildi okkar eru.
Margir þeirra setja sérþau markmið að fara með veggjum ogstyggja
engan. Samfélag kyrrstöðu heimtarslíka miðlun.
Páll Baldvin Baldvinsson
Átímamótum
Megi sonur þinn lifa tíma mikilla
breytinga, segir kínversk bölvun.
Örar breytingar ganga nú yfir ís-
lenskt samfélag og fjölmiðlar hafa ekki
farið varhluta af því.
Þetta eintak sem þú nú lest vérður síð-
asta tölublað DV sem kemur út í daglegri
útgáfu. Um næstu helgi kemur Helgar-
blað DV út, en útgáfu virka daga vikunnar
verður hætt frá og með deginum í dag.
DV var endurreist fyrir fáeinum misser-
um eftir nokkurra daga hlé á útgáfu þess.
Fyrir þann tíma hafði blaðið átt sér langa
sögu en það er elst dagblaða í útgáfu á Is-
landi.
íslensk dagblaðasaga er fjölskrúðug:
lengi voru dagblöð í landinu ofurseld
pólitískum hreyfingum og lutu þeirra
forsjá. Sum þeirra voru í eigu fjársterkra
einstaklinga sem réðu miklu um efnis-
tök ritstjórna. Tími hinnar frjálsu pressu
í landinu á sér því skamma og stopula
sögu. Dagblaðið Vísir sem Dagblaðið
spratt af, var í upphafi málsvari borgara-
legra hugmynda. Þegar Vísir og Dagblað-
ið runnu svo saman varð til sterkur fjöl-
miðill sem stóð utan við verndarsvæði
hinna pólitísku flokka.
Vikublöð áttunda og níunda áratugar
síðustu aldar voru kærkomin og nauðsyn-
leg viðbót í flóru mannlífsins í landinu og
drógu mörg dám af hressilegri aðkomu
nýrra kynslóða. Þau sóttu fram af öryggi
hins unga, stigu fram með sín stuttu
sverð, kölluðu eftir hreinskilni og ein-
drægni og opnum skoðanaskiptum.
Þegar DV var endurreist undir stjórn
Illuga Jökulssonar og Mikaels Torfasonar
var ætlun manna að ganga til hreinskil-
innar umræðu um mannlíf hér á landi.
En hólmganga þeirra var mörkuð
harkalegri samkeppni við þá miðla sem
fyrir voru.
Eðli fjölmiðla er að krefja samtímann
svara um hver gildi okkar eru. Margir
þeirra setja sér þau markmið að fara með
veggjum og styggja engan. Samfélag kyrr-
stöðu heimtar slíka miðlun. En þar í er
líka fólk sem vill hreyfingu, kallar á upp-
lýsingar af ýmsu tagi, jafnvel um það sem
„fína pakkinu" í Reykjavík, eins og það
var eitt sinn orðað, kann ekki að þykja
sæmilegt. DV var þess miðill.
Dagblöð á íslandi hafa alltaf átt erfitt
fjárhagslega. Jafnvel þau sem hafa stað-
ið í skjaldborg verslunarveldis landsins.
Nú þegar efnahagslegar forsendur fyr-
ir útgáfu DV virka daga eru brostnar og
daglegri útgáfu er hætt er okkur starfs-
mönnum blaðsins efst í huga þakklæti
til samferðamanna okkar. Helgarútgáfa
DV mun halda áfram með lungann af því
starfsfólki sem stóð að daglegri útgáfu.
Þeir sem hverfa af starfsvettvangi okkar
eru kvaddir með virktum og gæfuóskum.
Við sem höldum áfram störfum við útgáfu
Helgarblaðs DV munum ótrauð halda
áfram að miðla upplýsingum og skemmt-
un og mæta með nýtt Helgarblað DV á
markað lesenda um næstu helgi.
sem ættii ad gcfa út ljóð sí n á cnsku
I.GuÖnÍ
Ágústsson
" - '1
2. Ólafur Ragnai
Gtímsson
Diainonds Are
3. Jónína Ben.
Bedmonn &
Omputers.
4. Sólveig
Pétursdóttir
OilOnThePillo
5. Bubbi
Smoking In My Cat.
m:;
Regína
fráttir fyrir íólk
NÚ ER HÚN Regína Thorarensen
öll. Horfin á vit feðra sinna og þar
með er lokið merkilegri sögu í ís-
lenskri blaðamennsku sem mörgu
yngra fólki er ef til’ vill ókunnugt
REGÍNA SENDI LENGI fréttir frá Eski-
firði og jafnvel Gjögri og þekkja
mátti stílinn langar leiðir. Helst
vegna þess að hann stakk í stúf við
það sem þá tíðkaðist og var meira í
ætt við fréttaskrif eins og við þekkj-
um þau í dag.
REGÍNA SKRIFAÐI FRÉTTIR fyrir fólk
og þær íjölluðu einnig um fólk. Reg-
ína vissi sem var að allar fréttir eiga
sér upphaf og endi í mannlegum
sálum en ekki stofnunum eða bygg-
ingum.
EKKIVAR REGÍNA langskólagengin í
fræðunum og ekki hafði hún drukk-
ið í sig áhrif danska Ekstra-blaðsins
á krám í Kaupmannahöfn eða lesið
The Sun í London. Regína hafði að-
Fyrst og fremst
eins það eitt sem fær blaðamann til
að rísa undir nafni. Hún sagði sög-
ur úr sínu nánasta umhverfi sem
af mátti draga lærdóm um gang
heimsmála ef út í það væri farið. Og
svo var hún skemmtileg en það er
grundvallaratriði í blaðamennsku
eins og allir lesendur vita.
EINN LJÓÐUR VAR þó á ráði Regínu
þegar kom að fréttaskrifum. Hún
átti stundum erfitt með að hemja
eigin skoðanir og þá helst þegar
kom að forystu Sjálfstæðisflokks-
ins. Á blómaskeiði fréttaritarafer-
ils hennar var Þorsteinn Pálsson
formaður Sjálfstæðisflokksins og
kunni Regína því ekki vel. Á tímabili
Hún varmóðirís-
lenskrar nútímablaða-
mennsku án þess að
hafa hugmynd um það.
endaði hún allar fréttir sínar á per-
sónulýsingu á Þorsteini sem flestar
voru fjarri sanni, En þetta var galli
sem meðalgóður blaðamannaskóli í
Evrópu hefði getað sniðið af henni.
En þangað fór hún reyndar aldrei.
Blessuð sé minning Regínu Thor-
arensen. Hún var móðir íslenskrar
nútímablaðamennsku án þess að
hafa hugmynd um það. Fyrir það á
hún miklar þakkir skildar. Hvíl í
friði.
eir@dv.is
Regína Thorarensen Frábær
fréttatritari sem var langtá undan og
vissulega til hliðar við samtið sfna.
Þorvaldur ekki Þorsteinn Tannhvöss tengda-
>
Q
f þessum dálki í DV í gær, þar
sem vakin er sérstök athygli á skrif-
um sem birtast í öðrum
miðlum, var vitnað
í grein Þorvald-
ar Gylfasonar,
prófessors við
viðskipta- og
hagfræðideild
Háskóla ís-
lands, sem birtist
í Fréttablaðinu 27.
apríl. Fyrirsögn
greinarinnar er
,Um þvætting".
Þorsteinn Gylfason
Fyrir mistök í myndvinnslu var
greinin eignuð bróður hans, Þor-
steini Gylfasyni, prófessor
í heimspeki við Há-
skóla íslands. Þor- / '
steinn andaðist
16.08.2005. Eru
Þorvaldur og aðr-
ir hlutaðeigandi
beðnir velvirð-
ingar á mistökum
þessum.
mamma
„Fari saman í skaphöfn
fólks bæði hégómleiki og
óheiðarleiki fer að kárna gam-
anið. Afleiðingarnar af slíkri
blöndu komast oft á forsíður
blaða og í fyrstu frétt í sjón-
varpi og útvarpi," skrifar Guð-
rún Guðlaugsdóttir blaðamað-
ur í Moggagrein í gær.
Sé eitthvað snúnara við-
itiogbflaefttr
únnvið rnig
gar
leð
•ð-
,’MIU l lt 1 1/lU --
ureignar en tensdamamma _
GuðriSnGuðlaugsdóttir
hlýtur það að teljast fyrrver-
andi tengdamamma. Ááá-
i. Fáum blandast hugur um
Guðrún Guðlaugsdóttir Sendir
stnum fyrrverandi tengdasyni
eitraðar athugasemdir undir rós.
að Guðrún er
þama að tala
um Eyþór Arn-
alds sem stíg-
ur dansinn í
sveitarstjórna-
kosningum
komandi. At-
hyglisvert er
þó það viðhorf
blaðamanns
að kvarta
undan því að
fólk sé fjöl-
miðlaglatt.