Símablaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 2
F.v.: Hulda Lárusdóttir, Halldór Stefánsson, Magnús Ólafsson, Soffía Sveinsdóttir, Svan-
hildur Sverrisdóttir, Friðrik Lindberg, Ingibjörg Hafberg, Unnur Laufey Jónsdóttir, Gísli
Vilmundarson, Jette Jakobsdóttir, Guðrún Þorvaldsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Guðrún
Jónsdóttir, Alda Viggósdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Sigríður E. Helgadóttir, Haukur fs-
leifsson, Sjöfn Sveinsdóttir, Rúnar Sveinsson, Astrid Jensdóttir, Jakob Tryggvason, Kjartan
Sigurjónsson, söngstjóri og Sigurður Alfonsson.
Mynd: Friðrik Lindberg
Símakórinn
- stofnaður 4. febrúar s.l.
Það er draumur margra að syngja í kór og við í Langlínusalnum í Reykjavík erum engin
undantekning þar á. Því var það, þegar Soffía, Jette og Grétar voru óvænt skipuð í
skemmtinefnd F.Í.S. á félagsráðsfundi í nóvember s.l., að Sigríður E. greip það á lofti og
sagði að réttast væri að stofna símakór. Við fórum fljótlega að leita að stjórnanda en það
gekk illa og vorum við orðin vonlítil, þegar Ragnhildur, formaðurinn okkar, mundi allt í
einu að hún þekkti einn. Þetta var Kjartan Sigurjónsson, organisti, mjög hæfur maður sem
kom eins og engill og bjargaði heiðri okkar. Símakórinn var svo stofnaður 4. febrúar 1991
og í honum eru 25 símamenn. Frumraun okkar var á árshátíðinni, sem haldin var í Sigtúni
2. mars s.l. Okkur var mjög vel tekið og virtust símamenn dálítið hissa, en ánægðir með
okkur. Óneitanlega hressir þetta upp á félagslífið í félaginu okkar og er það vel.
Nú fara sumarfríin í hönd, en við byrjum aftur af fullum krafti í haust. Það er ótrúlega
gaman að syngja í kór og hvetjum við fleiri símamenn til að koma og vera með.
Soffía Sveinsdóttir, Sigríður E. Helgadóttir
FORSIÐAN
Myndin er frá Vestmannaeyjum. Fremst á myndinni er Stóraklif, en þar hefur Póstur og
sími haft aðstöðu um langt árabil fyrir sín radíósambönd. Mynd: Mats Wibe lund.