Símablaðið - 01.05.1991, Page 11
Ragnhildur Guðmundsdóttir.
Ögmundur Jónasson.
Ragnhildur Guðmundsdóttir setti ráð-
stefnuna og bauð þátttakendur velkomna.
Hún lagði út af orðunum „að kunna, skilja,
vita og vilja“. Hún sagði þetta merk tíma-
mót hjá félaginu. verið væri að fara inn á
nýjar leiðir við að upplýsa félagsmenn um
réttindi og skyldur. Hér yrði einkum fjallað
um það fyrrnefnda og þá sérstaklega það
sem félagið hefur fram að færa. Ragnhildur
þakkaði fræðslunefnd undirbúning ráðstefn-
unnar. Þetta væri önnur ráðstefnan sem hún
gengist fyrir á þessum vetri. Hún minnti á
að samningar væru lausir í haust og þessi
samkoma gæti verið ágætur undirbúningur
að því að hrista fólkið saman til samstöðu.
Jette Jakobsdóttir tók við stjórn ráðstefn-
unnar og kynnti dagskrá, framsögumenn og
gesti félagsins.
Ögmundur Jónasson flutti ávarp. í því
kom fram að í upphafi síns formannsferils
hefði hann tekið þátt í fræðslunámskeiði
F.Í.S. í Munaðarnesi haustið 1988 og nú
væri eitt af hans síðustu verkum á kjörtíma-
bilinu að koma á ráðstefnu hjá sama félagi.
Þetta væri skemmtileg tilviljun sem segði
sitthvað um blómlega félagsstarfsemi F.I.S.
Ögmundur rifjaði upp ýmis áform frá
1988 um að laga starfsemi B.S.R.B. að
breyttum aðstæðum við það að félögin hafa
samningsréttinn í sínum höndum. Unnið
hefði verið markvisst að því að efla
B.S.R.B. sem þjónustutæki við aðildarfé-
lögin. A hverjum degi leita tugir manna til
skrifstofunnar með óskir um upplýsingar og
beiðnir um að greiða úr málum. Aðstoð er
veitt varðandi skýringar á samningum og
lögskýringar eru gefnar til stjórna og ein-
staklinga.
„Þjónustustörf skrifstofu B.S.R.B. svipar
til heimilisstarfa. Þá fyrst er eftir þeim tekið
þegar þau eru ógerð.“
Ogmundur sagði frá málefnahópum sem
starfa innan B.S.R.B.. Hve mikið starf þeir
hefðu leyst af hendi og hve gagnlegt það
hefði verið varðandi stefnumörkun og um-
ræðu alla innan B.S.R.B. að hafa virkan
hóp fjölda einstaklinga er miðluðu þekkingu
sinni og reynslu til stjórnar samtakanna.
Hann vék að komandi samningum og ræddi
ýmsa möguleika í þeim efnum - samflot eða
hver semji fyrir sig. Allt þarf að meta eftir
aðstæðum hverju sinni með það að mark-
miði að þjóna hagsmunum fólks sem best.
Styrkur félaganna í B.S.R.B. í tveim síðustu
samningum var samvinna af fúsum og frjáls-
um vilja.
Ögmundur óskaði símamönnum til ham-
ingju með ráðstefnuna og sagðist vona að
hún yrði til fróðleiks og ánægju.
SÍMABLAÐIÐ 9