Símablaðið - 01.05.1991, Page 16
Auður Bessadóttir.
Gunnar Þórólfsson.
hefði sett reglur í handbókina sem birst hafa
í stjórnartíðindum um skilmála slysatrygg-
inga vegna slysa sem ríkisstarfsmenn verða
fyrir í starfi og utan, ásamt farangurstrygg-
ingar starfsmanna á ferðalögum. Hún sagði
þessar reglur þokkalega læsilegar þannig að
hún myndi aðeins draga út nokkra áherslu-
þætti og nefndi hún eftirfarandi.
REGLUR VEGNA SLYSA SEM
STARFSMENN VERÐA FYRIR í STARFI
★ Starfsmenn eru slysatryggðir fyrir dauða
eða vegna varanlegrar örorku.
★ Tryggðir eru fastir og lausráðnir starfs-
menn enda starfið talið aðalstarf.
★ Menn eru tryggðir á eðlilegri leið frá
heimili til vinnustaðar og frá vinnustað
til heimilis.
★ Starfsmenn eru ekki tryggðir ef þeir eru
að sinna einkaerindum í vinnutíma utan
vinnustaðar.
★ Starfsmenn eru ekki tryggðir ef þeir eru
á bakvakt heima en tryggingin hefst með
útkalli.
★ Bætur greiðast því aðeins að slysið sé
aðalorsök þess að sá sem tryggður er
deyr eða missir varanlega starfsorku sína
að nokkru eða öllu leyti.
★ Ekki eru greiddar bætur fyrir fótbrot t.d.
nema um varanlega örorku sé að ræða.
★ Slasaða ber að leita læknis strax eftir
slys.
★ Tilkynna skal slys eins fljótt og unnt er.
★ Heimilt er að láta trúnaðarlækni skoða
þann slasaða.
★ Reglur þessar eiga við um slys sem áttu
sér stað frá og með 1. apríl 1989.
Auður vék einnig að reglum vegna slysa
sem starfsmenn verða fyrir utan starfs og
reglum um farangurstryggingar starfsmanna
og vísast til handbókar í þeim efnum.
Gunnar Þórólfsson ræddi um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Ör-
yggisnefnd hefur verið starfandi hjá Pósti og
síma síðan 1986. Gunnar vék að aðdraganda
þess að nefndin var sett á laggirnar. Lög frá
1980, áskorun frá Landsfundi F.Í.S. 1984
um að slík nefnd yrði til hjá Pósti og síma.
Hann nefndi vandkvæði við undirbúning
vegna umfangs P & S. Svo var það 25. mars
1986 að fyrsti fundurinn var haldinn í örygg-
isnefndinni sem skipuð er eftirtöldum:
Fyrir
u
P & S Inga Svava Ingólfsdóttir
“ Sverrir Skarphéðinsson
F.Í.S. Gunnar Þórólfsson
P.F.Í. Sigríður Hansdóttir
BHMR Kristinn Einarsson
ASI Jason Jóhann Vilhjálmsson
14 SÍMABLAÐIÐ