Símablaðið - 01.05.1991, Page 17
Kristjana H. Guðmundsdóttir.
Þóra Kristinsdóttir.
í hverju kjördæmi er svo starfandi örygg-
isnefnd P & S sem í sitja tveir menn. Éinn
frá P & S og einn frá starfsmönnum.
Gunnar sagði það hlutverk nefndarinnar
að skipuleggja aðgerðir varðandi aðbúnað
og hollustuhætti og öryggi innan P&S,
fræða um það efni og hafa eftirlit með að
reglum sé fylgt. Hann nefndi nokkur dæmi
af störfum nefndarinnar svo sem að fara yfir
teikningar af nýbyggingum og breytingum á
húsnæði, athuga um atvinnusjúkdóma
vegna rafstöðusviðs o.fl. o.fl.
Gunnar benti á að best væri að hafa sam-
band við einhvern úr nefndinni með bréfi ef
fólk vildi t.d. láta athuga eitthvað í sínu um-
hverfi sem það teldi að ekki væri eins og
það ætti að vera.
Kristjana H. Guðmundsdóttir ræddi um
Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (LSR).
Hann var stofnaður árið 1943 og meginhlut-
verk að tryggja sjóðfélögum og fjölskyldum
þeirra lífeyri.
Kristjana vísaði til handbókarinnar þar
sem fjölmörg góð dæmi væri að finna um út-
reikning eftirlauna - en að öðru leyti vildi
hún segja frá nokkrum atriðum varðandi líf-
eyrissjóðinn. Iðgjöld til sjóðsins eru 10% af
launum sjóðsfélaga. Launamaðurinn greiðir
4% og atvinnurekandinn 6%. Þegar kemur
að greiðslu lífeyris úr sjóðnum er miðað við
% af launum eins og þau eru hverju sinni í
því starfi er sjóðfélagi gegndi.
Kristjana rakti athygli á óánægju manna
með það að lífeyrissjóðsgreiðslur skuli hafa
áhrif á rétt manna til fullrar tekjutryggingar.
I raun ættu allir að hafa sama rétt til fullrar
tekjutryggingar. Almannatryggingakerfið
væri jafnt fjármagnað af sköttum ríkisstarfs-
manna sem annarra því ættu þeir sama rétt
á greiðslum úr því og aðrir. Hún ræddi um
rétt eftirlifandi maka og barna til lífeyris-
greiðslna. Hún sagði frá því að árið 1980
hefði komið ákvæði inn í lögin um Lífeyris-
sjóð starfsm. rík. um að þeir sjóðfélagar
sem vinna vaktavinnu með reglubundnum
hætti eigi rétt á greiðslum í sjóðinn af þess-
ari vinnu og þar af leiðandi hærri greiðslum
úr sjóðnum er þeir fara á eftirlaun. Miðað
er við einn fastan launaflokk í þessu tilviki.
Kristjana sagði að sjóðurinn gegndi tví-
þættu hlutverki. Að greiða lífeyri og veita
lán. Rétt á láni hafa þeir sjóðsfélagar sem
greitt hafa til sjóðsins í 2lA ár miðað við fullt
starf. Að lokum gat hún þess að margir sjóðs-
félagar væru óánægðir með að ekki skuli vera
send útskrift yfir inneign með reglubundnum
hætti til sjóðsfélaga. Hún vildi hér með koma
þessari athugasemd á framfæri.
SÍMABLAÐIÐ 15