Símablaðið - 01.05.1991, Síða 22
Aðalfundur F.Í.S.
Aðalfundur F.Í.S. var haldinn 9. apríl sl. Dagskrá fundarins var sem hér segir: Lesin fund-
argerð síðasta aðalfundar. Skýrsla framkvæmdastjórnar. Reikningar félagsins. Félagsgjöld
og fjárhagsáætlun. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara. Önnur mál.
Ragnhildur Guðmundsdóttir, formaður F.Í.S., ræddi skýrslu framkvæmdastjórnar og
skýrði einstaka liði. Haukur ísleifsson, gjaldkeri F.Í.S. las upp reikninga félagsins og fjár-
hagsáætlun fyrir árið 1991. Fundurinn samþykkti reikningana.
Tvær tillögur komu fram um félagsgjöld.
Tillaga framkvæmdastjórnar um 1,5% og tillaga um 1,25%. Tillaga framkvæmdastjórnar
var samþykkt.
Eftirfarandi ályktanir voru bornar fram á fundinum:
„Aðalfundur Félgs íslenskra símamanna haldinn 9. apríl 1991, vekur athygli á þýðingu
þess að félagið gæti hagsmuna félagsmanna við að njóta hæfileika sinna í starfi hjá Pósti og
síma. Félagið tryggi að þess sé gætt við ráðningu í störf að sú hæfni og þekking, sem fæst
með löngum starfsaldri og þeirri reynslu sem honum fylgir verði metin eigi síður en skóla-
ganga.
Fundurinn leggur áherslu á að hæfir og reyndir starfsmenn Pósts og síma fái notið sín í
starfi til hagsbóta fyrir fyrirtækið og þar með landsmenn alla er njóta þjónustu þess.
í umræðu undanfarinna ára hefur æ oftar verið rætt um að starfsmenn ættu að njóta ár-
angurs starfa sinna. Nú er fjárhagsafkoma Pósts og síma góð, sem þakka má góðu starfs-
fólki og árangurinn því ótvíræður. Síminn á íslandi er rekinn eins og best gerist s.b. um-
ræðu sem var á Alþingi s.l. vetur. Nú er kominn tími til að sitja ekki lengur við orðin tóm
og láta starfsfólkið njóta árangurs verka sinna.“
„Aðalfundur Félags íslenskra símamanna haldinn 9. apríl 1991, leggur höfuðáherslu á eft-
irfarandi í komandi samningum:
1. Kaupmáttur dagvinnulauna verði stóraukinn.
2. Sömu laun verði greidd fyrir sömu vinnu hjá sama atvinnurekanda, óháð stéttarfélagi.
í áraraðir hefur afkoma launafólks byggst á óhóflegri yfirvinnu. Þetta hefur leitt til and-
varaleysis með þeim afleiðingum að dagvinnutekjur símamanna eru nú langt undir því sem
þarf til framfærslu fjölskyldu. Nú er svo komið að allt að fjórfaldar dagvinnutekjur þarf til
að framfleyta meðal fjölskyldu.
Yfirvinna hefur dregist saman að undanförnu með þeim afleiðingum að heildartekjur
hafa lækkað verulega og afkoma fjölskyldna símamanna versnað að sama skapi.
Allt þetta gerist á sama tíma og Póstur og sími skilar mörg hundruð milljón króna tekjum
í ríkissjóð.“
Endurskoðendur reikninga félagsins voru kosnir þau Ásvaldur Bjarnason (endurkosinn) og
Guðrún Halldórsdóttir og til vara Hólmfríður Sigurjónsdóttir.
Milli sextíu og sjötíu félagar mættu á fundinn. Fundarstjóri var Sigurður Jónsson.
Úr fundargerðarbók F.Í.S.
Halldór Stefánsson, ritari.
20 SÍMABLAÐIÐ