Símablaðið - 01.05.1991, Page 25
FRETTIR
Þing BSRB
Þing BSRB fer fram dagana 27. til 29.
maí. Þar er fjallað um þau mál sem efst
eru á baugi í launa-, kjara- og réttindamál-
um ríkis- og bæjarstarfsmanna. Þar er
einnig komin ný stjórn samtakanna.,
Fulltrúar FIS á þinginu eru þessir:,
Ragnhildur Guðmundsdóttir,
Sigurður Jónsson,
Þorsteinn Oskarsson,
Þorgerður Einarsdóttir,
Bergljót Sigfúsdóttir,
Hafsteinn Guðmundsson,
Haukur Isleifsson,
Jette Jakobsdóttir,
Óskar Ingimundarson,
Sigurður L. Björgvinsson.
Og til vara:,
Garðar Hannesson,
Brynjúlfur Erlingsson,
Sigríður Helgadóttir,
Sigmar Bjarnason,
Ómar Sveinsson,
Hrefna Kristindóttir,
Anna M. Guðmundsóttir,
Trausti Haraldsson,
Einar Einarsson.
Sbl. 100591
Tímamót í kjaramálum
Samstarfsnefnd fulltrúa launadeildar fjár-
málaráðuneytisins og FIS hefur starfað á
undanförnum árum við að afgreiða launa-
mál einstaklinga og hópa innan FÍS. M.a.
vegna breyttra og nýrra starfa á samnings-
tímanum.
Nú hefur sú breyting orðið á að fyrst um
sinn verður fjallað um mál einstaklinga af
samstarfsnefnd með fulltrúum P&S og FÍS.
Fyrsti fundurinn af þessu tagi var 12. apríl
s.l.
Oft hefur verið rætt um að samningar
færu til ríkisfyrirtækja. Engin ákvörðun
hefur verið tekin um það - en þetta gæti
verið fyrsta skrefið í þá átt. Það mun tím-
inn leiða í ljós.
Sbl. 100591
Dagvinnan dugi!
Samningar F.Í.S. og ríkisins eru lausir
31. ágúst. í sumar verður unnið að nánari
útfærslu kröfugerðar félagsins. Heildar-
stefnan er skýr: „Mannsæmandi kaup fyrir
8 stunda vinnudag". Það er Ijóst að félagið
er tilbúið að semja um bætt kaup og kjör á
hvern þann hátt sem að gagni má koma
fyrir félagsmenn. Til að ná því markmiði
hafnar félagið engum leiðum fyrirfram.
Sjáið nánar leiðara um þetta efni.
Sb. 100591
Handbók FÍS
Á ráðstefnu FÍS 20. apríl var lögð fram
handbók fræðslunefndar félagsins. Þessi
bók er til á skrifstofu félagsins og geta þeir
félagsmenn sem þess óska fengið hana
senda.
I handbókinni eru flestar þær upplýsing-
ar er að gagni mega koma fyrir félagsmenn
varðandi kaup, kjör og ýmis réttindi. Með
handbókina og Símablaðið við hendina
eiga félagsmenn að standa vel að vígi varð-
andi félagslegan fróðleik.
Sbl. 100591
3,5% launahækkun l.Júní?
í gildandi kjaasamningum FÍS er gert
ráð fyrir 2% launahækkun 1. júní. Auk
þess eigum við að fá bætur fari verðhækk-
anir fram úr viðmiðunarmörkum og vegna
bættra viðskiptakjara. Þegar þessi frétt er
skrifuð (10. mai ’91) er útlit fyrir að laun
eigi að hækka um 3,5% 1. júní.
Sbl. 100591
SÍMABLAÐIÐ 23