Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2006, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 7. JÚLl2006
Fréttir DV
Bláttáfram-
hlaupið
íkvöld
Róbert Traustason, Arn-
aldur Birgir Konráðsson og
Evert Víglundsson munu
leggja af stað á miðnætti í
kvöld frá Hellu en þeir ætla
sér að hlaupa alla leið til
Reykjavíkur. Vegalengdin
er um 100 km en félagarnir
hlaupa til styrktar samtök-
unum Blátt áfram sem berj-
ast gegn kynferðisofbeldi
gagnvart börnum.
Bæjarstjóri
fagnaráhuga
Jónmundur Guðmars-
son, bæjarstjóri á Seltjam-
amesi, fagnar áhuga bygg-
ingaverktaka á því að byggja
á Seltjamarnesi en DV birti
frétt þess efnis á dögun-
um að eignarhaldsfélagið
ORK hygðist byggja íbúðir
fyrir fólk eldra en 50 ára við
Skerjabraut. Jónmundur
sagðist ekki vilja tjá sig um
fyrirætlanir fyrirtækisins
þar sem skipulagsyfirvöld
á Nesinu hefðu ekki fengið
málið til umsagnar en sagði
jákvætt að fundað hefði ver-
ið með íbúum og mið tekið
af athugasemdum þeirra.
Fær Sigurður
feitari
elliiífeyri?
í dag verður kveð-
inn upp dómur í máli
Sigurðar Helgasonar
eldri gegn FL Group.
Sigurður krefst þess að
fyrirtækið greiði hon-
um hluta af kauprétt-
arsamningum sem
aðrir æðstu stjómendur fyr-
irtækisins hafa fengið og vís-
ar í samning frá árinu 1977.
Fyrirtækið hefur neitað að
borga og þurfti því að fá úr-
skurð dómara.
\
Breytingar
hjá Tollstjóra
Sigurður Skúh Bergsson,
sem verið hefur forstöðu-
maður tollasviðs Tollstjór-
ans í Reykjavík lét nýverið af
þeirri stöðu og gegnir starfi
aðstoðartollstjóra við hlið
tollstjórans Snorra Olsen og
er jafnframt staðgengill hans.
í stól forstöðumanns settist
þá Karen Bragadóttir, sem
er þrítug að aldri og mennt-
uð sem lögfræðingur. Karen
hefur unnið hjá Tollstjóran-
um í Reykjavík frá árinu 2001
og tók því við stöðunni eftir
fimm ár í starfi. Breytingar
hafa verið hjá tollinum að
undanfömu en tollasviðið
er nýtt sviðsheiti sem varð til
við sameiningu tollheimtu-
og tollgæslusviðs.
Athafnamennirnir Magnús Kristinsson og Kristinn Björnsson högnuðust hressilega
þegar þeir seldu hluti sína í Straumi-Burðarási til FL Group fyrir skömmu fyrir saman-
lagt um 47 milljarða.
geta gengiö sáttir it úr Straumi-
Buröarási eftir að hafa hagnast
“ " um í9 'milljarða á söluhlutabréfa —
sinna i bankanum á dögunum. -
DV-mynd Páll Bergmann
Geta gengiö sattir ut Magnus
Kristinsson og KrisíinnBjörnsson
Þótt athafnamennimir Magnús Kristinsson og Kristinn Bjömsson
hafi orðið undir í valdabaráttunni gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni
í Straumi-Burðarási er óhætt að segja að þeir hafi ekki borið skarð-
an hlut frá borði þegar þeir seldu bréf sín í bankanum á dögunum.
Samkvæmt útreikningum DV
munu Magnús og Kristinn hafa
grætt tæpa 29 milljarða á sölu bréfa
sinna í Straumi-Burðarási til FL
Group fýrir 47 milljarða á dögun-
um. Hlutur þeirra var rétt tæp 24%
en greitt var með hlutabréfum í KB
banka og FL Group.
19 milljarðar hjá Magnúsi
Magnús Kristinsson, útgerð-
armaður í Vestmannaeyjum, sat í
stjórn Straums Fjárfestingabanka
allt frá árinu 2001 og keypti sinn
fyrsta hlut í apríl sama ár. Þá var
gengi hlutarins í fyrirtækinu 2,76.
Síðan þá hefur hann hægt og bít-
andi aukið við hlut sinn í bankan-
um í gegnum fjögur eignarhaldsfé-
lög sín, MK-44, Smáey, Berg Hugin
og Eyjaís og verið með stærstu hlut-
höfum. Magnús seldi 14,72% hlut
sinn á genginu 18,9 en langstærst-
ur hluti bréfa Magnúsar var keypt-
ur áður en Straumur sameinaðist
Burðarási í október á síðasta ári og
gengi bréfanna rauk upp. Verðmæti
bréfa Magnúsar í FL Group er um
22,4 milljarðar en 7,6 milljarðar í
KB banka. Ætla má að Magnús hafi
ekki keypt bréf fyrir meira en tæpa
ellefu milljarða í Straumi þann tíma
sem hann var þar á meðal hluthafa
og því hagnast um 19 milljarða.
Kom inn þegar Skeljungur
seldi
Kristinn Björnsson kynntist
Straumi þegar hann sat í stjórn
bankans fýrir hönd Skeljungs þar
sem hann var forstjóri. Eftir að hann
hætti þar og Skeljungur seldi hlut
sinn í bankanum í mars 2003 byrj-
aði Kristinn að fjárfesta af miklum
krafti í gegnum eignarhaldsfélög-
in SK, SKE og Mercatura. Nær ailt
hlutafé Kristins er keypt á genginu
5 til 8,25 og má áætía að Kristinn
hafi hagnast um tæpa ellefu millj-
arða á sölunni til FL Group. Kristinn
bættist í hluthafahóp FL Group og
KB banka líkt og vinur hans Magn-
Samkvæmt útreikning-
um DV munu Magnús
og Kristinn hafa grætt
tæpa 29 milljarða
króna á sölu bréfa
sinna í Straumi-Burða-
rási til FL Group fyrir 47
milljarða á dögunum.
ús sem hann tók stöðu með gegn
Björgólfi Thor og hinum svokallaða
Burðarássarmi bankans.
Hent úr varaformannsstóli
Magnús var stjórnarformaður
Straums fyrir sameininguna við
Burðarás og varð varaformað-
ur í stjórn hins sameinaða fjár-
festingabanka. Svo virðist þó sem
hann og Björgólfur Thor Björgólfs-
son, stjórnarformaður bankans,
hafi ekki dansað í takt því Magnúsi
var ýtt burt úr varaformannsstóln-
um að loknum aðalfundi þann 3.
mars síðastíiðinn, honum tíl lítillar
ánægju. Skömmu síðar tók Magn-
ús hins vegar aftur við varafor-
mennsku í viðleitni Björgólfs Thors
tíl að lægja öldurnar. Það sauð síðan
upp úr á stjórnarfundi fýrir þremur
vikum þar sem Þórði Má Jóhannes-
syni, forstjóra bankans, var sagt upp
störfum þvert gegn vilja Magnúsar
og Kristins Björnssonar.
Þórður Már með í ráðum
Eftir að Þórður Már var rek-
inn var ljóst að hvorki Magnúsi né
Kristni var vært innan bankans.
Það má kallast gráglettni örlaganna
að Þórður Már ku hafa verið einn
af arkitektunum á bak við kaup FL
Group á hlut þeirra félaga. Þórður
Már og Jón Ásgeir Jóhannesson, for-
stjóri Baugs annars stærsta hluthafa
FL Group, eru perluvinir og heim-
ildir herma að þeir ásamt Hannesi
Smárasyni, forstjóra og stærsta hlut-
hafa FL Group, hafi útfært kaupin.
Játa sig ekki sigraða
Hvorki Magnús né Kristinn hafa
viljað viðurkenna það opinberlega
að þeir hafi orðið undir í valdabar-
áttunni í bankanum. Enda skipt-
ir það kannski ekki öllu máli þeg-
ar fjárfestingin gefur slíkan arð sem
raun ber vitni í þessu tilfelli.
oskar@dv.is
Atvinnuöryggi íslenskra sviðsleikara minnkandi
Leikarar í lausu lofti
„Vá fyrir dyrum? Já, þess vegna,"
segir Amar Jónsson stórleikari í sam-
tali við DV
Föstum stöðum leikara hefur fækk-
að mjög á síðastliðnum árum. Amar
segir það umhugsunarefhi.
„Þeir em örfáir fastráðnir eftir í
Borgarleilchúsinu. Og um tíu manns
hafa farið af föstum samningi í Þjóð-
leikhúsinu. Velta má fyrir sér því hvort
þetta sé æskileg þróun. Hvers kon-
ar leikhús við erum að stefiia í?" segir
Amar.
Hrafii-
liiidur
'Iheodórs-
dóttir hjá
Féiagi
íslenskra
leikara
segir þetta
rétt hjá Amari.
Fastráðnum
Randver Þorláksson
Áhyggjuefni aö atvinnuöryggi
fari minnkandi meöal leikara.
Hrafnhildur Theodórsdóttir Stöðugild-
um hefur fækkað mjög á umliðnum árum.
stöðum leikara og leikmynda- og bún-
ingahönnuða hafi fækkað mjög upp á
síðkastið.
„Þeir em nú 13 eftir í Borgarleik-
húsinu. Vom 23 þegar best lét. Þar
vom fastráðnir þrír leikmynda- og
búningahöfundar. Enginn núna. Þetta
breyttist mildð árið 2002 þegar leikfé-
lagið rambaði á barmi gjaldþrots. Þá
var farið í mikinn niðurskurð - ekki
bara á þessum póstum."
Samhliða þessu hefur stöðugildum
fækkað mjöghjá Þjóðleikhúsinu. Sam-
kvæmt heimildum DV er þungt hljóð-
ið í mörgum þar innan veggja - telja
að sér þrengt. Tinna Gunnlaugsdótt-
ir Þjóðleikhússtjóri sagðist, þegar hún
tók við, ætla að fækka um tíu meðal
þeirra sem lægstan hefðu starfsaldur-
inn. Upp úr því urðu ýmsar breyting-
ar, einhveijir leikara fóm í launalaust
leyfi, Spaugstofugengið sagði laus-
um sínum samningum og breytingar
og tilfærslur urðu. Losnuðu þá um 12
stöðugildi sem Tinna hefur ekld ráð-
ið í. „Áhyggjuefni er að stöðugildum
skuli fækka," segir Randver Þorláks-
son, formaður félags íslenskra leikara.
Og telur vert að velta fyrir sér stöðunni
í íslensku leiíchúsi. „Eg hef barist fyr-
ir fastráðningum sem flestra. Sem er
það atvinnuöryggi sem leikarinn hef-
ur. Lausráðinn leikari býr ekld við ör-
yggi," segir Randver.
Randver segist aðspurður ekki geta
sagt að það sé beinlínis flótti úr stétt-
inni vegna þessa. Hins vegar hafi allt-
af verið afföll, fólk hætti í þessu fagi
meira en í öðrum, því markaðurinn sé
svo HtOl. „Það er tragedían í þessu."